Valitor Holding hagnaðist um milljarð – Valitor hf. tapaði hálfum

Valitor Holding hagn­að­ist um tæpan millj­arð króna í fyrra. Ástæðan var m.a. áfram­hald­andi hagn­aður vegna sölu Visa Europe. Rekstr­ar­fé­lagið Valitor hf. tap­aði um hálfum millj­arði. Við­skipti við stóran kúnna, Stripe, munu drag­ast saman á næstu árum.

Viðar Þorkelsson er forstjóri Valitor.
Viðar Þor­kels­son er for­stjóri Valitor. Mynd: Samsett

Valitor Holding, dótt­ur­fé­lag Arion banka, hagn­að­ist um 940 millj­ónir króna í fyrra. Hluti af þeim hagn­aði er til­komin vegna eignar sem félagið á sem teng­ist söl­unni á Visa Europe á sínum tíma.

Alls var hlutur Valitor Holding vegna þeirrar sölu um 9,1 millj­arðar króna, sam­kvæmt við­tali við for­stjóra félags­ins í febr­úar 2016. Við þá upp­hæð átt svo að bæt­ast hlut­deild í fram­tíð­ar­tekjum sem kæmu til greiðslu síðar. Það er sú hlut­deild sem útskýrir hluta hagn­aðar Valitor Holding í fyrra.

[links]Uppgjör félags­ins hefur ekki verið birt opin­ber­lega en Viðar Þor­kels­son, for­stjóri Valitor Holding, stað­festir þetta í sam­tali við Kjarnann. Hann segir að Valitor Holding hafi verið að vaxa um 30 pró­sent á ári und­an­farin ár og fjár­fest mjög í gegnum rekstur í þeim vexti.

Valitor Holding er eign­ar­halds­fé­lag sem á nokkur önnur félög. Í fyrra keypti það til að mynda tvö erlend félög, IPS – International Payment Services Ltd. og Chip and Pin Solutions Ltd. inn í sam­stæð­una. Til­gangur kaupanna var að styrkja mark­aðs­stöðu Valitor gagn­vart sölu­að­ilum í Bret­landi.

Helsta eign Valitor Holding er síðan greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tækið Valitor hf. Það félag, sem er rekstr­ar­fé­lag, tap­aði 446,4 millj­ónum króna í fyrra. Viðar segir að það tap sé meðal ann­ars til­komið vegna ein­skipt­isliðar sem tengd­ist end­ur­skipu­lagn­ingu innan félags­ins.

Viðskipti Valitor við Stripe munu minnka

Um mitt ár 2015 var til­kynnt að alþjóð­lega stór­fyr­ir­tækið Apple hefði ákveðið að Bretland yrði fyrsta landið utan Banda­ríkj­anna þar sem boðið verður upp á ApplePay sem greiðslu­leið.

[adspot]Valitor hf. var valið sem eitt af sex fyr­ir­tækjum á Evr­ópu­mark­aði til að þjón­usta ApplePay. Í frétta­til­kynn­ingu sem Valitor sendi frá sér vegna þessa þann 11. júní 2015 sagði m.a.: „Þessa þjón­ustu mun Valitor veita í nánu sam­starfi við banda­ríska fyr­ir­tækið Stripe sem vinnur m.a. með Twitter og Facebook auk Apple. Frá 1. júlí munu breskir kaup­menn í við­skiptum við Stripe geta þróað stuðn­ing við ApplePay sem greiðslu­máta inn í eigið iOS app. Stripe, með Valitor sem færslu­hirði, er einn af örfáum aðilum sem fá að bjóða breskum kaup­mönnum upp á þessa þjón­ustu í fyrstu lotu. Í kjöl­farið mun öðrum sam­starfs­að­ilum Valitor á breskum mark­aði einnig standa til boða að taka við greiðslum með ApplePay.“

Kjarninn fékk upp­lýs­ingar um að til­kynnt hafi verið um vænt­an­legar breyt­ingar hefðu orðið á þessu við­skipta­sam­bandi. Viðar segir það rétt. Stripe sé með áform um að fara sjálft að bjóða upp á svip­aða þjón­ustu og Valitor veitir. „Stripe hafa til­kynnt okkur að við­skipta­sam­bandið við okkur muni breyt­ast og þró­ast. Þegar lengra líður frá þá munu við­skiptin minnka.“

Hann segir að Valitor séu að taka inn nýja stóra aðila inn í við­skipti um þessar mundir og vonir standi til að það sé hægt að kynna hverjir það séu á næst­unni.

Tekist á um eignina

Valitor sam­stæðan hefur verið mikið í umræð­unni að und­an­förnu. Í síð­ustu viku greindi Frétta­blaðið frá því að ekk­ert yrði af því að Valitor Holding yrði aðgreint frá bank­anum áður en hann verður skráður á markað í næsta mán­uði. Mikill vilji var hjá sumum erlendu hlut­höfum Arion banka að greiða hluta­bréf í Valitor Holding út í formi arðs til hlut­hafa áður en að skrán­ing­unni kæmi.

Kjarninn hafði áður greint frá því að að í kynn­ingu sem ráð­gjafar við sölu á Arion banka héldu fyrir líf­eyr­is­sjóði fyrr á þessu ári hefði komið fram að virði Valitor Holding væri veru­lega van­metið í bókum Arion banka.

Eigið fé Valitor Holding er bók­fært á um 16,3 millj­arða króna í bókum Arion banka, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem veittar voru á kynn­ing­ar­fund­unum. Í kynn­ing­unni segir að ef hlutur í Arion banka væri keyptur á verði sem er undir einni krónu fyrir hverja krónu af bók­færðu eigin fé megi álykta að „afsláttur hafi feng­ist á bók­færðu virði Valitor [Holding] hjá Arion“. Sé litið á þá marg­fald­ara sem settir eru á eigið fé sam­an­burð­ar­fé­laga Valitor [Holding] í Evrópu og Banda­ríkj­unum til að finna út mark­aðs­verð þeirra þá megi „álykta sem svo að verð­mæti félags­ins gæti verið hærra en skráð virði Valitor [Holding] í bókum Arion“.

Í kynn­ing­unni var settur fram svo­kall­aður afleiddur yfir­töku­marg­fald­ari á eigin fjár Valitor Holding og hann sagður vera 3,1. Miðað við það ætti virði Valitor Holding að vera yfir 50 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár