Áform um að greiða Valitor út í arð lögð til hliðar í bili

Aðal­fundur Arion banka fer fram í dag.

Ekkert verður af því að Valitor Holding, dótt­ur­fé­lag Arion banka, verði aðgreint frá bank­anum, áður en kemur að útboði og skrán­ingu, þannig að hluta­bréf greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­is­ins verði að stærstum hluta greidd út í formi arðs til hlut­hafa.

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag, en aðal­fundur bank­ans fer fram í dag.

Eins og greint var frá á vef Kjarnans í vik­unni, þá stendur til að gera breyt­ingar á stjórn Arion banka, en Herdís Dröfn Fjeld­sted, fram­kvæmda­stjóri Fram­taks­sjóðs Íslands, tekur sæti í stjórn­inni.

„Meiri­hluti hlut­hafa, vog­un­ar­sjóðir og Kaupþing, hefur sóst nokkuð eftir að Valitor yrði aðskilið frá sam­stæð­unni með arð­greiðslu. Við þá ráð­stöfun myndu sjóð­irnir og Goldman Sachs, sem eiga um 32 pró­sent í Arion banka, jafn­framt eiga kaup­rétt að 21,4 pró­senta hlut til við­bótar í Valitor af Kaup­þingi. Er kaup­rétt­ur­inn á tals­vert hærra verði en sem nemur bók­færðu virði Valitors í reikn­ingum Arion banka. Slíkar arð­greiðslu­hug­myndir hafa mætt nokk­urri mót­stöðu. Þannig hafði Banka­sýslan, sem þangað til fyrir skemmstu hélt um 13 pró­senta hlut rík­is­ins í bank­anum, komið þeirri skoðun sinni skýrt á fram­færi að stofn­unin væri mót­fallin því að ráð­stafa hluta­bréfum Valitors í formi arð­greiðslu. Fremur ætti að selja fyr­ir­tækið í opni sölu­ferli,“ segir í umfjöllun Frétta­blaðs­ins í dag.

Íslenska ríkið seldi 13 pró­sent hlut sinn í bank­anum fyrir 23,4 millj­arða króna, á grund­velli kaup­réttar sem Kaup­þing átti á hlut­un­um, sam­kvæmt hlut­hafa­sam­komu­lagi frá árinu 2009.

Eigið fé bank­ans í lok árs í fyrra nam 225,7 millj­örðum króna og heild­ar­eignir 1.147,8 millj­örð­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár