Eitur: Fagmennska og vandvirkni

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um Eitur eftir Lot Vekemans sem sýnt er í Borg­ar­leik­hús­inu.

Borgarleikhúsið: Eitur

Höfundur: Lot Vekemans

Þýðing: Ragna Sig­urð­ar­dóttir

Leik­stjórn: Kristín Jóhann­es­dóttir

Leikmynd: Börkur Jónsson

Búningar: Þórunn María Jóns­dóttir

Lýsing: Björn Berg­steinn Guð­munds­son

Tónlist og hljóð­mynd: Garðar Borg­þórs­son

Leikarar: Nína Dögg FIl­ipp­us­dóttir, Hilmir Snær Guðnason

Hún er máttug og voldug, leik­mynd Barkar Jóns­sonar, kirkjan sem gnæfir yfir sviði og sal Litla sviðs­ins í Borg­ar­leik­hús­inu; kirkju­blær en samt andar hlýju frá glugga, ekki síst vegna trjánna úti­við sem hvíla í föl­leitri birtu, anda frá sér kyrrð og vekja hug­renn­inga­tengsl við jap­anskt lands­lag. Það er ákveð­inn hátíð­leiki og form­leg­heit yfir sviðs­mynd­inni, veggirnir líkt og byggðir úr stein­steypu­blokkum og hverfa upp í loftið. Aðeins einn inn- og útgangur bak­sviðs, við glugg­ann nokkrir harðir bekkir eða stólar. Á þess­ari leik­mynd hvílir stíl­hrein lýs­ing Bjarnar Berg­steins Guð­munds­sonar og með bún­ingum Þórunnar Maríu Jóns­dóttur verður hin sjón­ræna mynd að fal­legri umgjörð um þá atburða­rás sem senn fer af stað.

Nína Dögg Fil­ipp­us­dóttir og Hilmir Snær Guðnason leika einu hlut­verkin, þau eru nafn­laus og nefn­ast í leik­skrá ein­göngu "Hún" og "Hann". Við fáum næsta lítið að vita um for­tíð þeirra annað en að fljót­lega verður ljóst að þau hafa verið gift, en skildu í kjöl­far slyss sem eina barn varð fyrir og er jarð­sett í kirkju­garði þess­arar kirkju. Svo virð­ist sem nokkur tími sé lið­inn frá skiln­að­inum og þau hafa ekki haft neitt sam­band síðan; en svo hefur Hann fengið bréf frá yfir­völdum þar sem tjáð er að vegna eit­urs í jarð­vegi kirkju­garðs­ins þarf að flytja grafir og aðstand­endur þurfa að mæta til að hægt sé að ganga frá praktískum atriðum varð­andi þá aðgerð.

Hann kemur í kirkj­una og á nokkurn veg að baki; Hún er mætt til að taka á móti honum og nú fer af stað upp­gjör. Í ljós kemur að hér hefur verið trassað að takast á við allt sem vekur með mann­inum sorg: barns­missir, skiln­aður, brostnar vonir, ham­ingju­missir. Eitrið er víða, ekki síst í hugum okkar mann­anna.

[adspot]Lot Vekemans er hol­lensk og Eitur mun vera fyrsta verk hennar á íslensku leik­sviði. Það er vel valið verk. Það fjallar um mann­legt eðli og þján­ingu sem allir hafa ein­hvern tím­ann kynnst, annað hvort á sjálfum sér eða af ein­hverjum í nán­asta umhverfi. Sorgin er sammann­leg og þó ekki - einatt er sagt að eng­inn fái lært af ann­ars reynslu og sjaldan á það betur við en þegar um er að ræða jafn gegn­um­gríp­andi til­finn­ingu og sorg­ina. En Lot Vekemans tekst í sam­ræðu Hans og Hennar að kom­ast hjá því að gera sorg­ina að einka­máli per­són­anna, það er ljóst þegar í upp­hafi leiks að þau eiga allar þessar sorgir saman. Missir barns, upp­lausn hjóna­bands, sem ekki verður annað skilið en hafi verið ást­ríkt og ham­ingju­samt í upp­hafi, og van­mátt­ur­inn að takast á við hvort tveggja, sem að sínu leyti vekur upp enn eitt sorg­ar­ferlið. Eitt er að takast ekki að standa saman, annað að geta ekki gert upp mis­tökin, horft aftur fram á veg.

Upp­gjörið er mik­il­vægt til að geta sæst við for­tíð sína og sögu og hér er það kirfi­lega und­ir­strikað. Í við­tali við höf­und­inn sem birt er í leik­skrá talar hún um hvernig við mann­eskjur forð­umst að tala um það sem gerst hefur, per­són­urnar Hún og Hann forð­ast af öllum mætti aug­ljósar spurn­ingar, spurn­ingar sem verður að taka á og svara svo unnt sé að öðl­ast sátt, ró, frið.

Leik­rits­formið hentar hér efn­inu betur en margt annað list­rænt form; leik­skáldið hefur ein­göngu hið tal­aða orð til að knýja áfram atburða­rás­ina og þróun sög­unnar, til­finn­inga per­són­anna - en með því fylgir einnig það tæki sem oft er van­metið: þögnin. Hér er snilld­ar­lega farið með hvort tveggja: sam­talið – og þögn­ina.

Það skal segj­ast eins og er að sam­leikur þeirra Nínu Daggar og Hilmis Snæs er með miklum ágætum. Þau eru bæði í hópi okkar albestu leik­ara og geta með smáum með­ulum í fasi, látæði, svip­brigðum og augn­gotum skapað og við­haldið spennu. Hér eru þau bæði í sínu albesta essi og auð­fundið að var­færin og ákveðin leik­stjórn Krist­ínar Jóhann­es­dóttur leiðir þau far­sæl­lega frá upp­hafi til enda.

Auðvitað má velta því fyrir sér, hvert höf­undur fer með hinar tragísku per­sónur sínar. Hvernig endar þessi saga? Hann er nokkuð óvæntur, endir­inn, þótt hann sé í full­kom­lega rök­réttu sam­hengi við það sem lagt er upp með. Ekki skal upp ljóstrað hvernig upp­gjöri Hennar og Hans lýkur, en eins og venja er þegar horft er á gott leik­hús, þá tekur hver það til sín sem þurfa þykir – og það er sitt­hvað sem má nær­ast á hér.

Það er vita­skuld auð­fundið þegar á heiti verks­ins, Eitur, að hér er engin grín­bomba á ferð­inni. Efnið er háal­var­legt og úr því unnið í sam­ræmi við það. En hver sá sem vill sjá leik­verk sem á erindi og sjá það gert af fag­mennsku og vand­virkni á ekki að láta Eitur fram­hjá sér fara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklistargagnrýni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár