Breytingar hindraðar sem hefðu fært neytendum hundruð milljóna ábata

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka versl­unar og þjón­ustu gagn­rýnir Félag atvinnu­rek­enda og Samtök iðn­að­ar­ins harð­lega og segir að þau hafi tekið höndum saman með sér­hags­muna­öflun til að hafa ábata af íslenskum neyt­endum.

Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu.
Andrés Magn­ús­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka versl­unar og þjón­ustu. Mynd: SVÞ

„Maður hefði nú að fyrra bragði ekki búist við að sam­tök á borð við Félag atvinnu­rek­enda og Samtök iðn­að­ar­ins sem, í orði kveðnu a.m.k., haldið hafa á lofti sjón­ar­miðum við­skipta­frelsis og frjálsrar sam­keppni, sam­ein­ist um að leggja stein í götu frum­varps, sem hafði það að raun­veru­legu mark­miði að færa íslenskum neyt­endum ábata upp á fleiri hund­ruð millj­ónir króna á ári.“

[links]Þetta skrifar Andrés Magn­ús­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka versl­unar og þjón­ustu, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag þar sem hann fjallar um nýsam­þykkt lög um breyt­ingar á ýmsum laga­á­kvæðum um toll­kvóta fyrir inn­fluttar land­bún­að­ar­af­urðir.

Andrés segir í grein sinni að til þessa hafi neyt­endur ekki notið mark­aðs­verðs á inn­fluttri land­bún­að­ar­vöru en að frum­varp Krist­jáns Þórs Júl­í­us­son­ar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, sem lagt var fram um fyrr­nefndar breyt­ingar hafi haft alla burði til að gera það að veru­leika, neyt­endum til hags­bóta.

Vörslumenn sérhagsmuna víða

Í byrjun des­em­ber, þegar leið að því að frum­varpið yrði afgreitt úr þing­nefnd, gerð­ist hins vegar sá for­dæma­lausi atburður af ell­efu hags­muna­sam­tök, sem sum hver hafa nán­ast ætið verið á sitt hvorri hlið umræð­unnar í málum sem þessum, sendu frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu, þar sem sagði að ekki væri hægt að sam­þykkja frum­varpið í núver­andi mynd.

[adspot]Á meðal sam­taka sem stóðu að yfir­lýs­ing­unni voru Félag atvinnu­rek­enda, Samtök iðn­að­ar­ins og Bænda­sam­tök Íslands. „Nauð­syn­legt er að vinna málið áfram og finna því heppi­legri far­veg, m.a. til að bregð­ast við ­mögu­legum frá­vikum sem alltaf kunna að koma upp í búvöru­fram­leiðslu, sem háð er veð­ur­fari og öðrum ytri aðstæð­um. Und­ir­rit­aðir aðilar vilja gjarnan koma að þeirri vinn­u,“ sagði í yfir­lýs­ingu sam­tak­anna.

Sam­tökin sem skrif­uðu undir yfir­lýs­ing­una voru Bænda­sam­tök Íslands, Félag atvinnu­rek­enda, Félag eggja­bænda, Félag kjúklinga­bænda, Félag svína­bænda, Lands­sam­band kúa­bænda, Lands­sam­band sauð­fjár­bænda, Neyt­enda­sam­tök­in, Sam­band garð­yrkju­bænda, Sam­tök iðn­að­ar­ins og Sölu­fé­lag garð­yrkju­manna.

Neyt­enda­sam­tökin drógu síðar sína und­ir­skrift til baka.

Andrés segir í grein sinni að þing­heimur hafi, í skjóli þessa atburðar, gert víð­tækar breyt­ingar á frum­varp­inu sem tekið hafi mjög mið af sér­kröfum inn­lendra fram­leið­enda en verið á kostnað neyt­enda.

Í nið­ur­lagi greinar hans segir: „Það er til kín­verskur máls­háttur sem segir: Það heyr­ist jafnan meira í því sem þú gerir en í því sem þú segir. Vörslu­menn sér­hags­muna leyn­ast greini­lega víðar en margur heldur.“

Segir samþykkt málsins fagnaðarefni

Alþingi sam­þykkti breytt frum­varp síð­ast­lið­inn þriðju­dag. Í frétta­til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að mark­mið frum­varps­ins hafi verið að koma ávinn­ingnum sem skap­ast með úthlutun toll­kvóta í meira mæli til neyt­enda í formi lægra vöru­verðs. „Með sam­þykkt frum­varps­ins verður núgild­andi úthlut­un­ar­að­ferð toll­kvóta breytt með þeim hætti að stuðst verður við svo­kallað jafn­væg­is­út­boð. Í því felst að lægsta sam­þykkta til­boð útboðs ákvarðar verð allra sam­þykktra til­boða, þ.e. allir sem fá úthlutað toll­kvóta greiða það verð sem lægsta sam­þykka til­boð hljóð­aði upp á. Þannig er gróf­lega áætlað að með breyt­ing­unni muni tekjur rík­is­sjóðs vegna útboða á toll­kvótum lækka um 240-590 millj­ónir króna á ári.“

Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, sagð­ist hafa talið núgild­andi fyr­ir­komu­lag við úthlutun toll­kvóta bæði óeðli­legt og ósann­gjarnt, sér­stak­lega fyrir hags­muni neyt­enda. „Því er sam­þykkt Alþingis á þessu frum­varpi sér­stakt fagn­að­ar­efni enda má gera ráð fyrir að kostn­aður vegna útboða lækki tals­vert. Þá verður allt reglu­verk um úthlutun toll­kvóta sann­gjarn­ara og ein­fald­ara til hags­bóta fyrir neyt­endur, fram­leið­endur og inn­flytj­endur mat­væla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár