Sameina kraftana gegn frumvarpi ráðherra

Ellefu hags­muna­sam­tök hafa sent frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu.

Ellefu hags­muna­sam­tök á vinnu­mark­aði hafa sent frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu, þar sem segir að ekki sé hægt að sam­þykkja frum­varp Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, í núver­andi mynd.

Um er að ræða frum­varp sem nú liggur fyrir um breyt­ingu á búvöru­lögum og tolla­lögum.

Á meðal sam­taka sem standa að yfir­lýs­ing­unni eru Félags atvinnu­rek­enda og Bænda­sam­tök Íslands. „Nauð­syn­legt er að vinna málið áfram og finna því heppi­legri far­veg, m.a. til að bregð­ast við mögu­legum frá­vikum sem alltaf kunna að koma upp í búvöru­fram­leiðslu, sem háð er veð­ur­fari og öðrum ytri aðstæðum. Und­ir­rit­aðir aðilar vilja gjarnan koma að þeirri vinnu,“ segir í yfir­lýs­ingu sam­tak­anna.

Samtökin sem skrifa undir yfir­lýs­ing­una eru Bænda­sam­tök Íslands, Félag atvinnu­rek­enda, Félag eggja­bænda, Félag kjúklinga­bænda, Félag svína­bænda, Lands­sam­band kúa­bænda, Lands­sam­band sauð­fjár­bænda, Neyt­enda­sam­tökin, Samband garð­yrkju­bænda, Samtök iðn­að­ar­ins og Sölu­fé­lag garð­yrkju­manna.

Frum­varpið er samið í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu með hlið­sjón af til­lögum starfs­hóps um end­ur­skoðun á reglu­verki um úthlutun toll­kvóta land­bún­að­ar­vara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár