Vilja færa öryrkja og aldraða upp í lágmarkslaun

Þingmenn þriggja flokka hafa lagt fram breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar.

Fimmtán þing­menn þriggja flokka, Sam­fylk­ingar, Pírata og Flokks fólks­ins, lögðu fram breyt­ing­ar­til­lögu við frum­varp til fjár­laga fyrir árið 2020 í gær. Þau leggja til hækkun á fram­lagi til líf­eyris aldr­aðra og öryrkja svo standa megi undir kröf­unni um að engin sé með minna en lág­marks­laun í tekjur.

Þriðja umræða um fjár­lögin hófst á þing­inu í gær og mun halda áfram í dag. Ekki liggur ljóst fyrir hvenær atkvæða­greiðsla muni fara fram um til­lög­una.

Fyrsti flutn­ings­maður er Ágúst Ólafur Ágústs­son og með honum eru Logi Ein­ars­son, Halldóra Mogensen, Inga Sæland, Björn Leví Gunn­ars­syni, Guðjón S. Brjáns­son, Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, Guð­mundur Andri Thorsson, Helga Vala Helga­dóttir, Helgi Hrafn Gunn­ars­son, Jón Þór Ólafsson, María Hjálm­ars­dóttir, Oddný G. Harð­ar­dóttir, Smári McCarthy og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir.

Kostar um 38 milljarða að færa þessa hópa upp í lágmarkslaun

Samkvæmt til­lög­unni kostar það um 13 millj­arða að færa alla öryrkja upp í lág­marks­laun og um 25 millj­arða að gera það sama við alla aldr­aða, sam­tals um 38 millj­arða króna.

Hrinda af stað undirskriftasöfnun

Nú stendur yfir und­ir­skrifta­söfnun þar sem þess er kraf­ist að eng­inn sé með minna en lág­marks­laun. „Samkvæmt kjara­samn­ingum hafa lág­marks­laun á Íslandi verið 317 þús­und krónur á mán­uði frá 1. apríl síð­ast­liðnum og þau hækka í 335 þús­und krónur 1. apríl á næsta ári,“ segir á vef­síðu söfn­un­ar­innar.

Þá kemur fram að í dag séu lægstu eft­ir­laun frá Trygg­inga­stofnun aðeins rúm­lega 248 þús­und krónur á mán­uði eða tæp­lega 69 þús­und krónum lægri en lág­marks­laun. Samkvæmt fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar hækki lægstu eft­ir­laun ekki um nema 3,5 pró­sent um ára­mótin og verði því rúm­lega 78 þús­und krónum lægri en lág­marks­laun í land­inu eftir 1. apríl næst­kom­andi.

Munurinn á lægsta örorku­líf­eyri og lág­marks­launum sé eilítið minni. Rúmlega 66 þús­und krónur frá 1. apríl 2019 verði tæp­lega 76 þús­und krónur frá 1. apríl næst­kom­andi.

Verið að dæma varnarlausasta fólkið til grimmrar fátækar

„Öllum ætti að vera ljóst að með því að láta öryrkja og eft­ir­launa­fólk hafa tekjur sem eru langt undir lág­marks­launum er verið að dæma tug þús­undir af varn­ar­laus­asta fólki lands­ins til grimmrar fátækar,“ segir á vef­síðu und­ir­skrifta­söfn­un­ar­innar.

Stjórn Eflingar styður við fyrr­nefnda und­ir­skrifta­söfnun og telur að eng­inn eigi að þurfa að lifa af lægri inn­komu en lág­marks­launum og krefst stjórnin breyt­inga.

„Fólk nær varla að draga fram lífið á lægstu launum og eng­inn ætti að vera með lægri fram­færslu en lág­marks­laun,“ segir á vef­síðu Eflingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár