Kvörtuðu yfir framgöngu Þórólfs „gagnvart sjávarútveginum“

Pró­fessor í hag­fræði hefur misst verk­efni vegna þess að útgerð­ar­menn hafa lagst gegn þátt­töku hans. Reynsla þeirra af með­ferð Þórólfs á gögnum og fram­ganga hans gagn­vart útveg­inum sögð vera „með þeim hætti að á störfum hans ríkir full­komið van­traust“.

Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands.
Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands. Mynd: Aðsend

Þann 17. júní 2019 barst Þórólfi Matth­í­assyni, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, skeyti frá erlendu einka­fyr­ir­tæki um að taka þátt í úttekt sem það var að vinna um sjálf­bærni ýsu og ufsa við Ísland. Ástæðan var sú að annar íslenskur fræði­maður hafði þurft að segja sig frá verk­inu vegna ann­arra verk­efna og sá hafði bent á Þórólf.

Þórólfur samdi við erlenda ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið tveimur dögum síðar um að taka að sér að vinna að úttekt­inni.

[links]Þann 1. júlí 2019 barst Þórólfi hins vegar skeyti frá fyr­ir­tæk­inu þar sem kom fram að ákveðnir hags­muna­að­ilar sem greiddu fyrir úttekt­ina hefði umtals­verðan fyr­ir­vara á því að Þórólfur ynni að verk­efn­inu. Hags­muna­að­il­arnir, tengdir sjáv­ar­út­vegi, hefðu ein­fald­lega ákveðið að Þórólfur ætti ekki að vera hluti af teym­inu sem ynni úttekt­ina. Engin efn­is­leg skýr­ing var gefin á þessu önnur en sú að það væri ekki óal­gengt að svona lagað gerð­ist í verk­efnum sem fyr­ir­tækið ynni að á Íslandi, og eftir atvikum í öðrum löndum.

Þórólfur hefur tekið þátt í opin­berra umræðu um sjáv­ar­út­veg og skipu­lag hans árum saman og oftar en ekki verið gagn­rýnin á það fyr­ir­komu­lag sem er við lýði. Kjarninn greindi í gær frá því að Kristján Vil­helms­son, annar aðal­eig­andi og útgerð­ar­stjóri Samherja, hefði sent bréf til banda­rísks háskóla sem Jón Steins­son hag­fræð­ingur starf­aði fyrir vegna þátt­töku Jóns í sömu umræðu, þar sem hann kvart­aði yfir þeirri þátt­töku.

Vildu ekki að Þórólfur sæi gögn útvegsmanna

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Þórólfur hefur orðið þess áskynja að hags­muna­að­ilar í sjáv­ar­út­vegi hafi lagst gegn þátt­töku hans í verk­efnum. Í des­em­ber 2009 var skipuð eft­ir­lits­nefnd um aðgerðir í þágu ein­stak­linga, heim­ila og fyr­ir­tækja vegna hruns­ins. Til­gangur nefnd­ar­innar meðal ann­ars að gæta þess að sann­girni og jafn­ræðis yrði gætt þegar verið væri að taka ákvarð­anir um end­ur­skipu­lagn­ingu skulda. Í nefnd­ina voru skip­aðir þrír ein­stak­lingar: Þórólfur, María Thjell, þá for­stöðu­maður laga­stofn­unar Háskóla Íslands sem var for­maður hennar, og Sigríður Ármanns­dóttir, lög­giltur end­ur­skoð­andi.

[adspot]Í mars 2010 barst Maríu Thjell, for­manni nefnd­ar­innar, tölvu­póst frá Friðriki J. Arn­gríms­syni, sem þá var fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­bands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ), sam­tök sem í dag heita Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS). Afrit af póst­inum var sent á alla stjórn og vara­stjórn LÍÚ á þeim tíma.

Í tölvu­póst­inum sagði Friðrik:

„Blessuð.

Við mig hafði sam­band útgerð­ar­maður sem hlýddi á erindi þitt í morgun. Honum til mik­illar skelf­ingar þá lítur svo út að Þórólfur Matth­í­as­son muni hafa aðgang að öllum hans málum í bönkum. Það vill hann ekki að ger­ist.

Maður á vegum Þórólfs hefur nýverið beðið sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki um gögn um rekstur og efna­hag þeirra en verið neitað.

Reynsla útgerð­ar­manna af með­ferð Þórólfs á gögnum og fram­ganga hans gagn­vart sjáv­ar­út­veg­inum hefur verið með þeim hætti að á störfum hans ríkir full­komið van­traust.

Mér er kunn­ugt um að fleiri en þessi útgerð­ar­maður vilja ekki að Þórólfur kom­ist í trún­að­ar­gögn sem þá varðar í krafti setu sinnar í eft­ir­lits­nefnd­inni skv. lögum nr. 107/2009 .

Hvað þarf að gera til að verj­ast því?“

Full alvara

Í svar­pósti til Friðriks, sem sendur var dag­inn eftir, lagði nefnd­ar­for­mað­ur­inn áherslu á að nefndin væri bundin algjörum trún­aði vegna þeirra gagna sem hún myndi skoða. Þau yrðu ein­ungis skoðuð inni í bönkum og engin afrit tekin úr húsi. „Nefndin má ekki tjá sig um gögnin á neinn hátt eða nota vit­neskju sem hún fær á grund­velli þeirra, hvorki beint né óbeint. Það á því ekki að vera nokkur þörf á því að hafa áhyggjur af því að Þórólfur hafi sem nefnd­ar­maður aðgang að gögnum þeirra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem fara í gegnum fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu og gætu því veri skoðuð af nefnd­inni.“

[adspot]Klukku­tíma og tveimur mín­útum eftir að svar­póst­ur­inn var sendur svar­aði Friðrik honum. Í svar­inu var Maríu þakkað fyrir svarið. Síðan stóð: „Það er full alvara á bak við það að menn vilja ekki að Þórólfur Matth­í­as­son kom­ist í gögn sem fyr­ir­tæki þeirra varðar og þá skiptir laga­bók­stafur um trúnað engu máli. Það er því ein­dregin ósk að tryggt verði að það ger­ist ekki.“

Síðar sama dag barst Friðriki svar þar sem honum var greint frá því að nið­ur­staðan væri sú sama og áður. „Ekki er hægt að taka undir þau sjón­ar­mið sem haldið er fram af hálfu LÍÚ.“

Var að vinna að úttekt

Í upp­runa­lega tölvu­póst­inum sem Friðrik sendi til for­manns eft­ir­lits­nefnd­ar­innar vitn­aði hann til þess að maður „á vegum Þórólfs hefur nýverið beðið sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki um gögn um rekstur og efna­hag þeirra en verið neitað.“

Samkvæmt tölvu­póstum sem Kjarninn hefur undir höndum var þar um að ræða þáver­andi aðstoð­ar­mann Þórólfs, en hann var þá að vinna að úttekt á íslenskum sjáv­ar­út­vegi. Í tölvu­pósti sem aðstoð­ar­mað­ur­inn sendi á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki voru þau beðin um afrit af árs­reikn­ingum sínum fyrir árið 2007, til að tölu­legar upp­lýs­ingar í úttekt­inni gætu verið sem nákvæm­astar. Hægt er að nálg­ast slíka reikn­inga hjá árs­reikn­inga­skrá, en oftar en ekki eru þeir þar í sam­an­dregnu formi og gefa því ekki jafn glögga mynd af stöðu fyr­ir­tækja. Þess vegna voru þau sjálf beðin um að láta rann­sak­endum í té afrit af þeim.

Í tölvu­póst­inum kom fram að reikn­ing­arnir yrðu „Reikn­ing­arnir verða aðeins not­aðir til þess að fá heild­stæða mynd af sjáv­ar­út­veg­inum en ekki til þess að skoða hvert og eitt fyr­ir­tæki nákvæm­lega. Við gerð úttekt­ar­innar verður farið með allar þær upp­lýs­ingar sem tengj­ast ykkur sem trún­að­ar­mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menntun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár