Hanna Björg hugsi – „Stærsta kvennastétt á Íslandi hafnar konum, aftur og aftur og aftur“

Fram­halds­skóla­kenn­ari í Borg­ar­holts­skóla sem sótt­ist eftir því að verða næsti for­maður KÍ segir að skóla­kerfið sé annað hvort hluti af vand­anum eða lausn­inni. Það verði aldrei jafn­rétti á Íslandi ef skóla­kerfið er ekki virkur aðili í þeirri veg­ferð.

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir
Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir Mynd: hannarakelphotography

„Þá er þessum kafla lokið. Ég tap­aði. Auðvitað er ég aum, súr og spæld en ég verð fljót að jafna mig. En ég er líka hugsi.“

Þetta skrifar Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir, fram­halds­skóla­kenn­ari og fram­bjóð­andi til emb­ættis for­manns Kenn­ara­sam­bands Íslands (KÍ) í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni í dag.

Nið­ur­stöður lágu fyrir í gær og var Magnús Þór Jóns­son, skóla­stjóri í Selja­skóla, kjör­inn nýr for­maður KÍ með tæp 42 pró­sent atkvæða. Hanna Björg hlaut rúm 16 pró­sent atkvæða í raf­rænni atkvæða­greiðslu.

Hanna Björg segir í stöðu­upp­færsl­unni að stærsta kvenna­stétt á Íslandi hafni konum – aftur og aftur og aftur. „Einkum og sér í lagi femíniskri konu. Þar sem ég er helst þekkt fyrir jafn­rétt­is­starf mitt í skóla­kerf­inu, þá hef ég áhyggjur. Hver er staða jafn­rétt­is­mála í skólum lands­ins? Ég hef sagt og segi enn, skóla­kerfið er annað hvort hluti af vand­anum eða lausn­inni. Það verður aldrei jafn­rétti á Íslandi ef skóla­kerfið er ekki virkur aðili í þeirri veg­ferð. Hverjar eru horf­urnar? Sú stað­reynd að ég er umdeild vegna jafn­rétt­is­vinnu minnar – segir okkur að jafn­rétt­is­hug­sjónin er umdeild og hvernig komumst við þá áfram?“ spyr hún.

„Eigum enn langt í jafnréttislandið og paradísina“

Við kenn­ara vill Hanna Björg segja: „Ég vona að nið­ur­staða kosn­ing­anna sé ekki vís­bend­ing um við­horf ykkar til inn­leið­ingar jafn­rétt­is­hug­sjón­ar­innar í skóla­kerfið. Við ykkur hin vil ég segja – við eigum enn langt í jafn­rétt­is­landið og paradís­ina. Ég er stolt af kosn­inga­bar­átt­unni minni sem var heið­ar­leg, ein­læg og mál­efna­leg.“

Þá þakkar Hanna Björg þeim 1.083 kenn­urum sem kusu hana. „Auð­mjúkar þakkir fyrir öll fal­legu orðin, ein­læga stuðn­ing­inn og allt peppið frá fjöl­skyld­unni minni, vinum og þeim sem ég þekki ekki neitt – ég bý að þessu alla ævi.

Ég óska kenn­ara­stétt­inni þess að vera sam­einuð og sterk, og ég óska verð­andi for­manni far­sældar í starfi,“ skrifar hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár