Magnús Þór nýr formaður KÍ

Nið­ur­stöður í for­manns­kjöri Kenn­ara­sam­bands Íslands liggja nú fyrir. Magnús Þór Jónsson, skóla­stjóri í Selja­skóla, sigr­aði.

Magnús Þór Jónsson er nýr formaður KÍ.
Magnús Þór Jónsson er nýr for­maður KÍ. Mynd: Skjáskot/www.ki.is

Magnús Þór Jónsson hefur verið kos­inn nýr for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands (KÍ), að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá sam­band­inu.

Nýkjör­inn for­maður tekur við for­mennsku af Ragnari Þór Pét­urs­syni á átt­unda þingi Kenn­ara­sam­bands­ins sem fram fer í apríl á næsta ári. Ragnar Þór lætur þá form­lega af emb­ætti en hann hefur gegnt for­mennsku í KÍ frá árinu 2018. Forveri hans var Þórður Árni Hjalte­sted sem sat á for­manns­stóli 2011 til 2018. Eiríkur Jónsson var fyrsti for­maður KÍ, gegndi for­mennsku frá 2000 til 2011.

Fjögur voru í fram­boði. Anna María Gunn­ars­dóttir hlaut 2.171 atkvæði eða 32,51 pró­sent, Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir hlaut 1.083 atkvæði eða 16,22 pró­sent, Heimir Eyvinds­son hlaut 522 atkvæði eða 8,27 pró­sent, Magnús Þór Jónsson hlaut 2.778 atkvæði eða 41,61 pró­sent og voru auðir seðlar 93 eða 1,39 pró­sent. Á kjör­skrá voru 11.068 og greiddu 6.676 atkvæði, eða 60,32 pró­sent.

Atkvæða­greiðslan var raf­ræn og hófst klukkan 12:00 mánu­dag­inn 2. nóv­em­ber og lauk klukkan 14.00 í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menntun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár