„Karlar afsakaðir og konur gerðar ábyrgar“

Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands telur að mik­il­vægt sé að fólk átti sig á því að sú orð­ræða sem bein­ist gegn tveimur konum um þessar mundir sé ekki ein­göngu skað­leg þeim per­sónu­lega heldur sam­fé­lag­inu öllu.

Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands for­dæmir umræðu og orð­ræðu í garð tveggja kvenna sem hittu menn úr enska knatt­spyrnu­lands­lið­inu á hót­eli í Reykja­vík nýlega. Með sam­skiptum sínum við kon­urnar gerð­ust menn­irnir brot­legir við sótt­varna­lög þar sem þeir voru í sótt­kví. Mál þetta komst í hámæli á sam­fé­lags­miðlum og fjöl­miðlum bæði í Bret­landi og hér heima.

Þetta kemur fram í ályktun félags­ins sem send var fjöl­miðlum í dag.

Þá segir að sú umfjöllun sem fylgt hafi í kjöl­farið og sú orð­ræða sem notuð hafi verið um kon­urnar tvær sé ein birt­ing­ar­mynd þess staf­ræna ofbeldis sem við­gengst á net­miðlum um heim allan. „Umræðan afhjúpar þann tví­skinn­ung sem ein­kennir nauðg­un­ar­menn­ingu þar sem karlar eru afsak­aðir og konur gerðar ábyrgar. Þrátt fyrir að karl­arnir hafi verið þeir sem gerð­ust brot­legir við sótt­varn­ar­lög eru það kon­urnar sem verða fyrir hvað harða­stri gagn­rýni og mega þola óheyri­legar sví­virð­ingar, per­sónu­legan óhróður og druslu­skömmun frá net­verjum og fjöl­miðla­mönnum.“

Kemur í veg fyrir fulla þátttöku kvenna í lýðræðislegri umræðu

Fram kemur hjá Kven­rétt­inda­fé­lag­inu að þessi umræða og skömmun sé dæmi um staf­rænt ofbeldi, sem hafi auk­ist á und­an­förnum árum með nýrri tækni og auk­inni notkun á sam­fé­lags­miðlum. Stafrænt ofbeldi og áreiti sé kynjað fyr­ir­bæri. „Í nýlegri rann­sókn World Wide Web Foundation segj­ast 52 pró­sent stúlkna og ungra kvenna hafa orðið fyrir staf­rænu ofbeldi, 64 pró­sent ungs fólks þekkja ein­hvern sem orðið hefur fyrir staf­rænu ofbeldi og 87 pró­sent telja að vanda­málið sé að versna,“ segir í álykt­un­inni.

Stafrænt ofbeldi gegn konum og stúlkum komi þannig í veg fyrir fulla þátt­töku kvenna í lýð­ræð­is­legri umræðu í sam­fé­lag­inu og sé því bein ógn við lýð­ræðið sjálft. Rann­sóknir bendi til þess að þau sem verða fyrir staf­rænu ofbeldi líði fyrir það bæði á net­inu og í raun­heimum. Ofbeldi og hót­anir valdi því að fólk, sér­stak­lega konur, rit­skoði sig á net­inu og jafn­vel veigri sér við að nota inter­netið. Stafrænt ofbeldi geti einnig valdið því að þolendur breyti sínum dag­legum venjum utan inter­nets­ins og dragi sig í hlé í félags­legum sam­skiptum.

Ákveðin vantrú á réttarkerfinu á Íslandi

Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands hefur gert rann­sókn á mis­mun­andi birt­ing­ar­myndum staf­ræns ofbeldis á Norð­ur­lönd­unum og hvernig þolendur upp­lifa leit­ina að rétt­læti vegna þessa ofbeldis. Leiddi sú rann­sókn í ljós ákveðna van­trú á rétt­ar­kerf­inu á Íslandi. Meiri­hluti kvenna sem höfðu upp­lifað ofbeldi á net­inu og haft var sam­band við höfðu ekki leitað rétt­lætis. Þær töldu það ekki hafa neitt upp á sig að leita hjálpar eða kæra og sögðu kerfið ekki virka. Rann­sókn­ina má finna hér.

Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands áréttar að mik­il­vægt sé að fólk átti sig á því að sú orð­ræða sem bein­ist gegn tveimur konum um þessar mundir sé ekki ein­göngu skað­leg þeim per­sónu­lega heldur sam­fé­lag­inu öllu. Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands for­dæmir alla slíka orð­ræðu og umfjöllun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár