Hillary Clinton meðal þátttakenda á Heimsþingi kvenleiðtoga

Á mánu­dag hefst árlegt Heims­þing kven­leið­toga, Reykja­vík Global Forum, og stendur til mið­viku­dags. Meðal þáttak­enda þetta árið ásamt Hillary Clinton eru Svetlana Tik­hanovskaya og Erna Solberg.

Hillary Clinton hefði vafalaust frekar viljað taka þátt í Heimsþingi kvenleiðtoga í Hörpu heldur en yfir netið.
Hillary Clinton hefði vafa­laust frekar viljað taka þátt í Heims­þingi kven­leið­toga í Hörpu heldur en yfir netið. Mynd: EPA

Hillary Clinton, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, er einn þeirra kven­leið­toga sem munu sækja sækja Heims­þing kven­leið­toga sem hefst á mánu­dag og stendur til mið­viku­dags. Þetta er í þriðja sinn sem þingið er haldið en að því standa alþjóð­legu þing­kvenna­sam­tökin Women Political Leaders í sam­starfi við rík­is­stjórn Íslands og Alþingi. Vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins fer þingið að þessu sinni fram á net­inu en það hefur verið haldið í Hörpu und­an­farin ár.

Í frétta­til­kynn­ingu vegna þings­ins segir að til­gangur þess sé að gefa þátt­tak­endum tækifræi til þess að ræða og skipt­ast á hug­myndum um hvernig kven­leið­togar geti beitt sér fyrir betra sam­fé­lagi, auknu jafn­rétti milli kynja og vald­efl­ingu kvenna í sem víð­ustu sam­hengi. Heims­þingið er sam­starfs­verk­efni til fjög­urra ára og er Vigdís Finn­boga­dóttir, fyrr­ver­andi for­seti Íslands, sér­stakur vernd­ari þess.

Fjöldi þjóðarleiðtoga tekur þátt

Hátt í þrjá­tíu núver­andi og fyrr­ver­andi þjóð­ar­leið­togar taka þátt í þing­inu þetta árið. Þeirra á meðal eru: Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra; Erna Solberg, for­sæt­is­ráð­herra Noregs; Kersti Kalju­laid, for­seti Eist­lands; Julia Gillard, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Ástralíu; Helen Clar, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Nýja Sjálands og Michelle Bachelet fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Síle. Auk þeirra munu margar áhrifa­miklar konur sækja þingið og taka þátt í sam­tölum. Þeirra á meðal áður­nefnd Hillary Clinton, Svetlana Tik­hanovskaya, Melinda Gates og Phumzile Mlambo-Ngcuka, fram­kvæmda­stjóri UN Women.

,,Við erum mjög ánægð að geta, þrátt fyrir heims­far­aldur, haldið heims­þingið raf­rænt og að til þátt­töku hafi skráð sig svo stór og öfl­ugur hópur kven­leið­toga alls staðar að úr heim­inum. Að sjálf­sögðu söknum við þess að geta ekki fyllt Hörpu og höf­uð­borg­ina af krafti þeirra kven­leið­toga sem hingað koma á hverju ári, en mark­miðin eru óbreytt og mik­il­væg­ara nú en nokkru sinni fyrr að ræða leiðir og fjölga tæki­færum til að auka áhrif og völd kvenna í heim­inum,” er haft eftir Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í frétta­til­kynn­ingu sem send var út vegna þings­ins en Hanna Birna er stjórn­ar­for­maður fram­kvæmda­stjórnar heims­þings kven­leið­toga

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár