Engin samþætt verkáætlun vegna fordóma eða annars misréttis í skólum hjá KÍ

Samkvæmt KÍ er það ekki hlut­verk stétt­ar­fé­lags­ins að útbúa verk­á­ætlun til að takast á við kyn­þátta­for­dóma í skólum heldur sveit­ar­fé­laga og ríkis sem eru rekstr­ar­að­ilar skóla. Engar slíkar verk­á­ætl­anir eru til hjá Reykja­vík­ur­borg.

Kenn­ara­sam­bandi Íslands (KÍ) hafa ekki borist kvart­anir um kyn­þátta­for­dóma sér­stak­lega og ekki er haldið utan um töl­fræði varð­andi kvart­anir vegna for­dóma í garð nem­enda þar sem mál­efni kenn­ara eru einkum á könnu stétt­ar­fé­lags­ins. Slíkar kvart­anir gætu hafa borist til fræðslu­yf­ir­valda sveit­ar­fé­laga og skóla­stjórn­enda allra skóla­stiga.

Þetta kemur fram í svari jafn­réttis­nefndar Kenn­ara­sam­bands Íslands (KÍ) fyrir hönd sam­bands­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Þá segir í svar­inu að sam­þætt verk­á­ætlun vegna for­dóma eða ann­ars mis­réttis í skólum sé ekki til hjá KÍ „enda ekki hlut­verk stétt­ar­fé­lags­ins að útbúa verk­á­ætlun heldur sveit­ar­fé­laga og ríkis sem eru rekstr­ar­að­ilar skóla“.

Reykjavíkurborg heldur ekki utan um tölurnar

Faðir barna sem orðið hafa fyrir for­dómum í skóla gagn­rýndi Reykja­vík­ur­borg fyrir aðgerða­leysi í sam­tali við Kjarn­ann á dög­un­um. Hann telur að gera verði betur og móta betri stefnu hvað kyn­þátta­for­dóma varðar í skólum borg­ar­inn­ar.

Kjarninn greindi frá því í vik­unni að Reykja­vík­ur­borg héldi ekki utan um tölur um kvart­anir er varða kyn­þátta­for­dóma í skólum borg­ar­inn­ar. Í svari Reykja­vík­ur­borgar við fyr­ir­spurn Kjarnans kom fram að engin sam­þætt verk­á­ætlun væri til staðar hjá borg­inni til að takast á við kyn­þátta­for­dóma í skól­um.

„Al­mennar reglur eru varð­andi ein­elti og ofbeld­is­hegð­un. Í vetur var sam­þykkt að setja á stofn starfs­hóp til að vinna að aðgerða­á­ætlun og verk­lagi til að bregð­ast við rasískum ummæl­um, skrifum og/eða hegðun hjá börnum og starfs­fólki í skóla- og frí­stunda­starfi. Aðgerða­á­ætl­unin verði nýtt þegar rasísk atvik eiga sér stað í skólaum­hverf­inu og verði jafn­framt veg­vísir fyrir þá fræðslu og símenntun sem þarf að eiga sér stað innan skóla­sam­fé­lags­ins. Þessi starfs­hópur hefur vinnu sína síðla sum­ars 2022 og er að vænta nið­ur­staða í byrjun haust­ann­ar,“ sagði í svar­inu.

Illa gengið að knýja á um breytingar í kennaramenntun og starfsþróun kennara

Í svari jafn­réttis­nefndar KÍ segir að allt frá árinu 2012 hafi nefndin skorað á stjórn­endur skóla­sam­fé­lags­ins alls að kenna jafn­réttis- og kynja­fræði.

[links]„Illa hefur gengið að knýja á um breyt­ingar í kenn­ara­menntun og starfs­þróun kenn­ara en ör þróun sam­fé­lags­ins, vax­andi for­dómar og slauf­un­ar­menn­ing kallar á að nú verði gerðar löngu þarfar breyt­ingar. Þess ber að geta að á mennta­vís­inda­sviði starfa öfl­ugir kenn­arar sem leggja áherslu á að kenn­ara­nemar fái kennslu um jafn­rétt­is­mál. Á fram­halds­skóla­stigi eru þrír skólar með jafn­réttis- og kynja­fræði sem skyldu­fag en flestir bjóða upp á það sem val­fag. Á leik- og grunn­skóla­stigi hefur inn­leið­ingin gengið hægar. Eins og gengur er mis­mik­ill áhugi á jafn­rétt­is­málum í skólum. Stjórn­völd hafa ekki sett inn­leið­ingu jafn­réttis í skóla­kerf­inu á dag­skrá þrátt fyrir að nefndin hafi ítrekað vakið athygli á mik­il­vægi þess.“

Fram kemur hjá jafn­réttis­nefnd KÍ að alla tíð hafi sýn nefnd­ar­innar verið sú að jafn­rétti verði ekki náð í sam­fé­lag­inu án mark­vissrar og kerf­is­bund­innar aðkomu skóla­kerf­is­ins. Alls staðar þar sem jafn­rétt­is­mál ber á góma séu þátt­tak­endur sam­mála um mik­il­vægi þess að jafn­rétt­i­svæða skóla­kerfið í heild sinni þannig að kenn­arar séu færir um að sinna grunn­þætt­inum jafn­rétti sem á að vera rauður þráður í öllu skóla­starfi frá leik­skóla og upp í háskóla.

Ætti að vera eðlilegur hluti alls skólahalds að uppræta misrétti og fordóma

Þá segir í svar­inu að mik­il­vægt sé að allir kenn­arar séu í stakk búnir að grípa inn í aðstæður sem upp koma í skóla­starfi, upp­ræta hverskyns mis­rétti og for­dóma og sinna for­vörnum þar sem í skólum fyr­ir­finn­ast for­dómar, áreitni og ofbeldi rétt eins og í sam­fé­lag­inu öllu.

„Við eigum ekki að sætta okkur við að skólar fái aðkeypta sér­fræð­inga einu sinni á ári til að sinna því sem ætti að vera eðli­legur hluti alls skóla­halds og í verka­hring kenn­ara. Við eigum að knýja á um jafn­rétt­i­svæð­ingu skóla­kerf­is­ins því það myndi bæta lífs­gæði okkar allra.

Frá árinu 2013 hefur skóla­kerfið stuðst við sex grunn­þætti mennt­unar og er einn þeirra jafn­rétti sem á sem fyrr segir að vera rauður þráður allrar mennt­unar barn­anna okkar. Allt frá því að jafn­rétt­islög voru sett árið 1974 hefur verið grein um jafn­rétt­is­fræðslu í skólum en sú grein sem er nr. 15. Í jafn­rétt­islögum frá árinu 2020 er enn skýr­ari en þar kemur fram að „ [á] öllum skóla­stigum skulu nem­endur hljóta jafn­réttis- og kynja­fræðslu við hæfi þar sem m.a. er kennt um kynj­aðar staðalí­myndir, kyn­bundið náms- og starfs­val og mál­efni fatl­aðs fólks og hinsegin fólks.“ Hluti þess­arar fræðslu á að vera um for­dóma enda nær jafn­réttis og kynja­fræðsla utan um alla flokka jafn­réttis ekki aðeins þá sem nefndir eru í lögum.“

Varðandi það sem framundan er hjá KÍ þá hefur jafn­réttis­nefnd í hyggju að leggja end­ur­skoð­aða jafn­rétt­is­stefnu og -áætlun fyrir þing KÍ hvar for­dómum verður gert hærra undir höfði en verið hefur. „Einnig vill jafn­réttis­nefnd að á vegum KÍ og/eða sveit­ar­fé­laga verði jafn­rétt­is­ráð­gjafi sem fari í skóla, starfi með kenn­urum og nem­endum og upp­ræti erfið mál og mun nefndin leggja til ályktun um slíkan ráð­gjafa á næsta þingi KÍ sem verður 1.-4. nóv­em­ber 2022,“ segir að lokum í svar­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menntun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár