Halda ekki utan um tölur um kvartanir er varða kynþáttafordóma

Faðir barna sem orðið hafa fyrir kyn­þátta­for­dómum gagn­rýnir aðgerða­leysi í skólum borg­ar­innar. Reykja­vík­ur­borg hefur sam­þykkt að setja á stofn starfs­hóp til að vinna að aðgerða­á­ætlun til að bregð­ast m.a. við rasískum ummælum og skrifum.

Reykja­vík­ur­borg heldur ekki utan um tölur um kvart­anir er varða kyn­þátta­for­dóma í skólum borg­ar­innar, að því er fram kemur í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Faðir barna sem orðið hafa fyrir for­dómum í skóla gagn­rýndi Reykja­vík­ur­borg fyrir aðgerða­leysi í sam­tali við Kjarnann á dög­unum. Hann telur að gera verði betur og móta betri stefnu hvað kyn­þátta­for­dóma varðar í skólum borg­ar­innar.

Í svari Reykja­vík­ur­borgar kemur fram að engin sam­þætt verk­á­ætlun sé til staðar hjá borg­inni til að takast á við kyn­þátta­for­dóma í skólum. „Almennar reglur eru varð­andi ein­elti og ofbeld­is­hegðun. Í vetur var sam­þykkt að setja á stofn starfs­hóp til að vinna að aðgerða­á­ætlun og verk­lagi til að bregð­ast við rasískum ummælum, skrifum og/eða hegðun hjá börnum og starfs­fólki í skóla- og frí­stunda­starfi. Aðgerða­á­ætl­unin verði nýtt þegar rasísk atvik eiga sér stað í skólaum­hverf­inu og verði jafn­framt veg­vísir fyrir þá fræðslu og símenntun sem þarf að eiga sér stað innan skóla­sam­fé­lags­ins. Þessi starfs­hópur hefur vinnu sína síðla sum­ars 2022 og er að vænta nið­ur­staða í byrjun haust­annar,“ segir í svar­inu.

[adspot]

Þá kemur fram hjá Reykja­vík­ur­borg að fjöl­menn­ing­arteymi skóla- og frí­stunda­sviðs hafi staðið að fræðslu um fjöl­menn­ingu, for­dóma og fjöl­breyti­leika árlega. Bæði sé boðið upp á mið­læg nám­skeið, sem og nám­skeið fyrir hverja starfs­stöð skóla- og frí­stunda­sviðs.

Námskeið fyrir börn og unglinga um fjölbreytileika og fordóma

Enn fremur segir í svar­inu að nám­skeiðið „Hvaðan ertu“ sem haldið var í vetur hafi verið mjög vel sótt. Full­trúar fjöl­menn­ing­arteymis skóla- og frí­stunda­sviðs hafi staðið að nám­skeiðum fyrir börn og ung­linga í fjöl­mörgum grunn­skólum um fjöl­breyti­leika, for­dóma og við­horf þar sem sér­stök áhersla er lögð á kyn­þátta­for­dóma og birt­ing­ar­form þess. Til að mynda hafi verið útbúið verk­efni sem heitir „Fyr­ir­myndir“ sem fjallar meðal ann­ars um kyn­þátta­for­dóma.

Reykja­vík­ur­borg er í sam­starfi vegna fjöl­menn­ingar við önnur sveit­ar­fé­lög um mál­efni er varðar fjöl­breyti­leika, fjöl­tyngdi og fjöl­menn­ingu en ekki fjallað sér­stak­lega um kyn­þátta­for­dóma. „Það er von okkar að þetta geti orðið að veru­leika og unnt verði að fá önnur sveit­ar­fé­lög í sam­starf um þetta verk­efni,“ segir að lokum í svar­inu.

Engar afleiðingar fyrir þá sem sýna fordóma

[links]Íslenskur faðir barna af erlendum upp­runa sem nú stunda nám í yngri bekkjum grunn­skóla segir í sam­tali við Kjarnann að um leið og börnin hófu grunn­skóla­göngu sína hafi farið að bera á for­dómum í garð þeirra.

„Okkur nátt­úru­lega dauð­brá og létum þá vita sem áttu þarna hlut að máli,“ segir hann. Alltaf hafi verið sama við­kvæðið – öllum hafi fund­ist miður að heyra af for­dómunum en engar afleið­ingar hafi verið fyrir hin börnin sem sýndu for­dómana. „Það eru bara inn­an­tóm orð sem koma og það er það sem krist­all­ast í kringum þetta. Allir eru rosa hissa og sorg­mæddir og finnst leið­in­legt að heyra, og þar fram eftir göt­un­um, en svo nær það ekki lengra. Því mið­ur.“

Kölluð „drulli“, „kúk­ur“ og „nig­ger“

Hann gagn­rýnir skóla­yf­ir­völd og Reykja­vík­ur­borg þar sem hann er búsettur og segir að hann vilji að almennt verði tekið á þessum mál­um.

Börn manns­ins hafa verið kölluð ýmsum nöfnum á skóla­göngu sinni, á borð við „drulli“, „kúk­ur“ og „nig­ger“.

„Í mínum augum er þetta allt grafal­var­legt. Mér finnst vera galið að það sé í boði að meta alvar­leika brots­ins – bara það að láta svona út úr sér er mjög alvar­leg­t.“

Hann til­kynnti fram­kom­una til skóla­yf­ir­valda en hann segir að það hafi engar afleið­ingar haft fyrir ger­endur eða for­eldra, ein­ungis hafi verið talað við ger­endur og for­eldr­arnir látnir vita. Honum finnst að bæði skóla­yf­ir­völd og sveit­ar­fé­lög þurfi að taka á mál­unum af meiri festu.

Segir að stundum nægi að ræða við nemendur

Á fundi borg­ar­ráðs þann 7. jan­úar 2021 lagði áheyrn­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks Íslands, Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, fram fyr­ir­spurn sem var vísað til með­ferðar skóla- og frí­stunda­ráðs:

„Fyr­ir­spurnir varð­andi við­brögð við kyn­þátta­for­dómum í skólum: Hvernig er brugð­ist við ef rasísk atvik koma fram innan skóla Reykja­vík­ur­borgar? Hvaða verk­lag styðst Reykja­vík­ur­borg við ef að rasísk atvik eiga sér stað innan skóla- og frí­stunda­starfs? Hvernig er tek­ist á við kyn­þátta­for­dóma innan skóla Reykja­vík­ur­borgar? Hvernig er unnið með for­eldrum/for­ráða­mönnum, börnum og ung­mennum ef að slík atvik eiga sér stað? Hvernig er Reykja­vík­ur­borg að vinna gegn kyn­þátta­for­dómum og útlend­inga­andúð innan skóla- og frí­stunda­starfs? Er fræðslan ólík eftir skóla­stigum?“

Í svari frá Helga Gríms­syni, sviðs­stjóra skóla- og frí­stunda­sviðs, segir meðal ann­ars að þegar kyn­þátta­for­dómar koma fram innan grunn­skóla hjá borg­inni telj­ist slík atvik sem brot á skóla­reglum eða 2. stigs hegð­un­ar­frá­vik og sé verk­lags­reglum fylgt í sam­ræmi við alvar­leika brots­ins.

„Í öllum til­vikum er rætt við nem­and­ann eða nem­end­urna sem eiga í hlut. Ef brotið er gróft eða end­ur­tekið þá er for­eldrum/for­sjárað­ilum til­kynnt um brotið og þeir boð­aðir á fund í skól­anum. Gripið er til þeirra aðgerða sem þörf er talin á hverju sinni. Stundum nægir að ræða við nem­endur, með eða án for­eldra/for­sjárað­ila en stundum þarf að bregð­ast við á annan hátt s.s. að fá inn sér­staka fræðslu um fjöl­breyti­leika, mann­rétt­indi og kyn­þátta­for­dóma fyrir nem­endur,“ segir í svari Helga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár