Spyr hvort greiðslur lögaðila til stjórnmálaflokka eigi að vera heimilaðar

Formaður Við­reisnar segir að það sé engin til­viljun að rík­is­stjórnin hafi beitt sér fyrir millj­arða lækkun á veiði­gjaldi.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, segir að henni hafi, líkt og öllum, verið veru­lega brugðið við frétta­flutn­ing Kveiks og Stund­ar­innar af Samherja. Hún segir að eðli­lega verði þetta stór­mál rann­sakað og að gefa verði þartil­gerðum aðilum gott svig­rúm til þess. Hún sé hins vegar á sama tíma þeirrar skoð­unar að ekki megi leyfa „öld­unum að lægja“ án þess að nokkur breyt­ing eigi sér stað. Þetta kemur fram í stöðu­færslu Þor­gerðar Katrínar á Facebook.

Grímulaus sérhagsmunagæsla ríkisstjórnarflokkanna

[links]Þor­gerður Katrín segir að þing­menn verði að spyrja sig hvað þeir geti gert til gera leik­regl­urnar gegn­særri og skýr­ari í þágu almanna­hags­muna, ekki sér­hags­muna. 

„Við höfum upp­lifað grímu­lausa sér­hags­muna­gæslu rík­is­stjórn­ar­flokk­anna á þessu kjör­tíma­bili,“ segir Þor­gerður Katrín og bætir því við að það sé engin til­viljun að rík­is­stjórnin hafi beitt sér fyrir millj­arða lækkun á veiði­gjaldi.

Hún segir jafn­framt að drög að stjórn­ar­skrár­á­kvæði um auð­lindir sem for­sæt­is­ráð­herra hafi sett fram í sam­ráðs­gátt séu ákveðin von­brigði. „Ég ótt­ast að verði þetta ákvæði að veru­leika, eins og það er sett fram í dag af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar og ef tíma­bundnir samn­ingar verði ekki inn­leiddir sam­hliða að nið­ur­staðan verði sú að kvót­inn verði til var­an­legrar nýt­ingar og að end­ingu alfarið í eigu útgerð­ar­manna. Í boði rík­is­stjórn­ar­innar,“ segir Þor­gerður Katrín. 

90 prósent af styrkjum sjávarútvegsfyrirtækja til ríkisstjórnarflokkanna

Enn fremur veltir Þor­gerður Katrín upp þeirri spurn­ingu um hvort greiðslur lög­að­ila til stjórn­mála­flokka eigi að vera heim­il­aðar yfir­höfuð. „Það teikn­ast að minnsta kosti upp ansi óþægi­leg mynd þegar veru­leik­inn er sá að 90% af styrkjum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja til stjórn­mála­flokka sem sæti eiga á Alþingi í dag runnu til rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja á síð­asta ári,“ segir Þor­gerður Katrín. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mútur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Upp­skrift að því að drepa umræð­una með börnum

Á þriðju­dag voru ætl­aðar mútu­greiðslur, skatt­svik og pen­inga­þvætt­is­til­burðir Samherja opin­beraðir. Líkt og venja er var lítið um varnir dag­inn eftir. Gögnin sem umfjöll­unin byggði á, og trú­verð­ug­leiki upp­ljóstr­ar­ans sem reyndi ekki með neinum hætti að breiða yfir sinn þátt í mál­inu, var enda yfir­þyrm­andi. Réttlát reiði kraum­aði í sam­fé­lag­inu og hvert rann­sókn­aremb­ætti á fætur öðru, í hverju land­inu á fætur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár