„Í mínum huga kemur ekkert annað til greina en að eignir Samherja verði frystar núna strax á meðan á rannsókn stendur. Um er að ræða rannsókn á mögulegu mútubroti, peningaþvætti og skattalagabrotum. Hér er ekki um einhverja sjoppu að ræða heldur milljarðafyrirtæki með umtalsverð umsvif í fjölda ríkja og skattaskjólssvæðum.“
Þetta segir Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, í stöðuuppfærslu á Facebook. Hún minnir þar auk þess á að eignir dægurlagahljómsveitarinnar Sigurrósar hafi verið frystar vegna rannsóknar á meintum skattalagabrotum hljómsveitarmeðlima sem varðaði nokkra tugi eða hundruð milljóna.
„Þá tel ég heldur ekkert annað koma til greina en að sjávarútvegsráðherra og fyrrverandi stjórnarformaður Samherja stígi til hliðar á meðan á rannsókn héraðssaksóknara stendur enda málið algjörlega fordæmalaust.“ Þar á Helga Vala við Kristján Þór Júlíusson.
Eigið fé Samherjasamstæðunnar, samkvæmt ársreikningum félaga hennar á Íslandi, var 111 milljarðar króna um síðustu áramót.
Krafa Helgu Völu er sett fram í kjölfar þess að umfjöllun, sem unnin var í samstarfi Kveiks, Stundarinnar, Al Jazeera og Wikileaks og opinberuð var í gærkvöldi. Í henni kom fram að hópur sem inniheldur meðal annars sjávarútvegs- og dómsmálaráðherra Namibíu, hefur fengið 1,4 milljarð króna hið minnsta greiddan frá Samherja á undanförnum árum. Auk þess hafi ráðherra í Angóla fengið greiðslur. Namibísku ráðherrarnir hafa báðir sagt af sér embætti í dag.
[adspot]Í umfjölluninni kom einnig fram að rökstuddur grunur sé um stórfellda skattasniðgöngu Samherja við að koma ágóðanum af þeim viðskiptum sem fyrirtækið stundaði þar undan og til skattaskjóla. Þá liggur fyrir að norski bankinn DNB, sem er að hluta til í eigu norska ríkisins, stöðvaði viðskipti við félög tengd Samherja á Kýpur og Marshall-eyjum vegna þess að reglur um varnir gegn peningaþvætti voru ekki uppfyllt. Þau mál eru til skoðunar hjá norsku efnahagsbrotadeildinni og deildar embættis héraðssaksóknara þar í landi, samkvæmt Stundinni.
Kjarninn greindi frá því í gærkvöldi að Jóhannes Stefánsson, sem var verkefnastjóri Samherja í Namibíu fram til ársins 2016, og steig fram í Kveik-þætti kvöldsins, hefði rætt við starfsmenn héraðssaksóknara í gær. Jóhannes viðurkenndi í Kveiks-þættinum að hafa brotið lög fyrir hönd Samherja þegar fyrirtækið náði í umtalsverðan kvóta í Namibíu. Þar kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfirvöld í Namibíu, hefði fengið lagalega stöðu uppljóstrara og aðstoðaði nú við rannsókn þeirra á starfsháttum Samherja.
Embætti skattrannsóknarstjóra staðfesti einnig við Kjarnann í dag að því hafi borist gögn nýlega frá namibískum yfirvöldum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.





















































Athugasemdir