Fannst þetta minna óþægilega á gamaldags nýlenduherra

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, segir að ef það sem kom fram í frétta­skýr­inga­þætti Kveiks í gær­kvöldi reyn­ist rétt þá sé þetta mál hið versta og til skammar fyrir Samherja.

Katrín Jakosbsdóttir, forsætsiráðherra.
Katrín Jakos­bs­dóttir, for­sætsi­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, seg­ist hafa verið mjög slegin yfir því sem fram kom í frétta­skýr­inga­þætti Kveiks í gær­kvöldi. Hún segir að nú blasi við að lyfta þurfi hverjum steini og að rann­saka þurfi þetta mál ofan í kjöl­inn.

„Það er alveg ljóst ef þessir mála­vextir reyn­ast réttir, eins og þeir voru birtir þarna, þá er þetta mál hið versta og til skammar fyrir Samherja og mikið áhyggju­efni fyrir íslenskan sjáv­ar­út­veg og íslenskt atvinnu­líf,“ segir Katrín í hádeg­is­fréttum RÚV.

[links]Í frétta­skýr­inga­þætti Kveiks í gær­kvöldi kom meðal ann­ars fram að vís­bend­ingar væru um að greiðslur upp á að minnsta kosti 1,4 millj­­arða króna frá Sam­herja til hóps sem inn­i­heldur meðal ann­­ars tvo ráð­herra í Namib­­íu, væru mút­u­greiðslur og að við­­skipti fyr­ir­tæk­is­ins í Afr­ík­u­land­inu væru skýr dæmi um spill­ing­u. Um­fjöll­unin var unnin í sam­starfi Kveiks, Stund­ar­innar, Al Jazeera og Wikileaks.

Katrín segir að stóra málið sé að íslensk fyr­ir­tæki fylgi lögum, bæði íslenskum lögum og lögum í þeim löndum sem þau starfa. Hún segir að fyrst og fremst þurfi að rann­saka þetta mál ofan í kjöl­inn og bendir á sú vinna sé hafin hjá hér­aðs­sak­sókn­ara og að skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafi jafn­framt fengið gögn frá namibískum yfir­völdum.

„Hins vegar verð ég að segja að eins og þetta mál blasti við í gær þá fannst mér það minna óþægi­lega á gam­al­dags nýlendu­herra sem eru að nýta veik­leika stjórn­kerfi við­kom­andi lands,“ segir Katrín.

Hún segir jafn­framt að hennar mati muni við­eig­andi yfir­völd hér á landi þurfa að eiga í sam­starfi við yfir­völd í öðrum löndum um fram­hald máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mútur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Upp­skrift að því að drepa umræð­una með börnum

Á þriðju­dag voru ætl­aðar mútu­greiðslur, skatt­svik og pen­inga­þvætt­is­til­burðir Samherja opin­beraðir. Líkt og venja er var lítið um varnir dag­inn eftir. Gögnin sem umfjöll­unin byggði á, og trú­verð­ug­leiki upp­ljóstr­ar­ans sem reyndi ekki með neinum hætti að breiða yfir sinn þátt í mál­inu, var enda yfir­þyrm­andi. Réttlát reiði kraum­aði í sam­fé­lag­inu og hvert rann­sókn­aremb­ætti á fætur öðru, í hverju land­inu á fætur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár