Kristján Þór: Ábyrgðin í svona málum liggur hjá fyrirtækinu sjálfu

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra segir að hann hafi fyrir rúmum fimm árum rétt rekið inn nefið á skrif­stofu Samherja og heilsað þre­menn­ing­unum frá Namibíu og átt við þá spjall um dag­inn og veg­inn.

Kristján Þór Júlíusson
Kristján Þór Júl­í­us­son Mynd: Bára Huld Beck

Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, segir í sam­tali við RÚV að það beri aldrei einn ábyrgð í stöðu eins og Samherji er kom­inn í. „Það bara liggur í hlut­ar­ins eðli. Ábyrgðin í svona málum liggur hjá fyr­ir­tæk­inu sjálfu. Það gefur alveg auga­leið. Það er fyr­ir­tækið sjálft sem þarf að svara fyrir þær ásak­anir sem bornar eru upp.“

Kristján Þór segir Kveiks­þátt­inn í gær, þar sem fjallað er um greiðslur Samherja til stjórn­mála­manna og hátt settra emb­ætt­is­manna í Namibíu hafa verið mjög slá­andi. Hann segir það vera klárt mál að þessar upp­lýs­ingar skaði íslenskan sjáv­ar­út­veg. Mik­il­vægt sé að málið verði rann­sakað.

Hann seg­ist enn fremur ekki hafa haft afskipti af Samherja, rekstri eða öðru, frá því hann hætti í stjórn fyrir tæpum tveimur ára­tugum. „En auð­vitað hefur maður taugar til fyr­ir­tæk­is­ins og starf­sem­innar fyrir norðan. Eðlilega, þetta er stór partur af norð­lensku sam­fé­lagi.“

„Ég hef engin afskipti af þessu eða upplýsingar um viðskipti“

[links]Í frétt Stund­ar­innar í gær kom fram að Kristján Þór hefði í ágúst árið 2014, en þá gegndi hann emb­ætti heil­brigð­is­ráð­herra, komið inn á fund með þre­menn­ing­unum frá Namibíu sem unnu að því gegn mútu­greiðslum að útvega Samherja kvóta í land­inu. Fund­ur­inn hefði verið hald­inn í höf­uð­stöðvum Samherja í turn­inum í Borg­ar­túni í Reykja­vík og hefði Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, kynnt Kristján Þór sem „sinn mann“ í rík­is­stjórn­inni. Þessu heldur Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri útgerðar Samherja í Namibíu, fram í frétt Stund­ar­innar.

Kristján Þór segir við RÚV að fyrir rúmum fimm árum hafi hann rekið inn nefið á skrif­stof­una og heilsað þessum mönnum og átt við þá spjall um dag­inn og veg­inn. „En grund­vall­ar­at­riði í þessum málum fyrir mig er að ég hef engin afskipti af þessu eða upp­lýs­ingar um við­skipti eða neitt því um líkt og þar af leið­andi hef ég ekk­ert að fela í þessum efnum,“ segir Kristján. Hann segir það algjöra til­viljun að hann hafi verið á skrif­stofu Samherja á sama tima og þessir menn.

„Þannig hitt­ist bara á í þessu til­felli að ég á per­sónu­legan fund með ein­stak­lingi sem ég hef þekkt í langan tíma um allt önnur mál að þá rekst ég á þessa ein­stak­linga,“ segir Kristján Þór og þver­tekur við RÚV á sama tíma fyrir það að hafa verið boð­aður til fundar á skrif­stof­unni á þessum tíma. Hann seg­ist ekk­ert hafa heyrt af við­skipt­unum sem fjallað er um í Kveik fyrr en hann hafi fengið upp­lýs­inga­beiðni frá Stund­inni í síð­ustu viku.

Samherjamenn verða að svara sjálfir fyrir sig

Kristján seg­ist hafa heyrt í nokkrum starfs­mönnum Samherja und­an­farna daga. Meðal ann­ars Þor­steini Má Vil­helms­syni for­stjóra. „Ég var bara að spyrja hvernig honum liði ein­fald­lega,“ segir Kristján Þór og bætir því við að Sam­herj­a­menn verði að svara því sjálfir hvað átt var við þegar fram kom að þeir hefðu sagt að Kristján Þór væri þeirra maður.

„Því verða þeir að svara sjálfir. Ég hef hingað til bara litið á mig sem minn eigin og minnar fjösl­kyldu og er þekktur fyrir flest annað en að vera mjög und­an­láts­samur. Ég hef nú frekar orð á mér fyrir að vera frekar stífur í fram­göngu,“ segir hann í sam­tali við RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár