Esau og Shanghala báðir búnir að segja af sér ráðherraembætti

Þeir tveir ráð­herrar Namibíu sem sagðir eru hafa þegið háar mútu­greiðslur frá Samherja í skiptum fyrir að úthluta þeim kvóta hafa báðir sagt af sér.

Sacky Shanghala.
Sacky Shang­hala. Mynd: Kveikur:/Skjáskot

Bern­hardt Esau, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, og Sacky Shang­hala, dóms­mála­ráð­herra lands­ins, hafa báðir sagt af sér emb­ætti.

Það ger­ist í kjöl­far þess að Hage Geingob, for­seti Namibíu, lýsti því yfir að þeir þyrftu að hverfa úr rík­is­stjórn­inni og að hann ætl­aði sér að reka þá úr henni. Frá þessu er greint á namibíska frétta­miðl­inum Namibian Sun.

Fyrr í dag var greint frá því að Geingob væri kom­inn með nóg af ásök­unum um spill­ingu á hendur ráð­herr­unum tveimur og að þeir yrðu að víkja úr rík­is­stjórn.

[adspot]Í gær­kvöldi var opin­berað, í ítar­legri umfjöllun, að hópur sem inni­heldur meðal ann­ars Shangala og Esau hefði fengið 1,4 millj­arða króna hið minnsta greiddan frá Sam­herja á und­an­förnum árum. Auk þess hefði ráð­herra í Angóla fengið greiðsl­ur.

Í sér­stökum tvö­földum Kveiks­þætti sem sýndur var á RÚV í gær­kvöld kom fram að vís­bend­ingar væru um að þarna væri um mútu­greiðslur að ræða til að kom­ast yfir kvóta í land­inu á sem ódýrastan hátt. Umfjöll­unin var unnin í sam­starfi Kveiks, Stund­ar­innar, Al Jazeera og Wiki­leaks.

Þar sagði einnig að starfs­hættir Sam­herja í Namib­íu, og þeirra sem fyr­ir­tækið á að hafa greitt mútur til, hefðu verið til rann­sóknar hjá þremur eft­ir­lits­stofn­unum í land­inu, meðal ann­ars spill­ing­ar­lög­regl­unni þar. Auk þess eru yfir­völd á Íslandi og í Nor­egi með­vituð um mál­ið.

Umfjöll­unin er byggð á þús­undum skjala og tölvu­póst­sam­skipta starfs­manna Sam­herja þar sem starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins, eins þess stærsta á Íslandi, í Namibíu síð­ast­lið­inn tæpan ára­tug er til umræðu. Gögn­unum var lekið til Wiki­leaks og Kveikur hef­ur, ásamt Stund­inni, unnið ítar­lega umfjöllun úr þeim.

Auk þess var í Kveik birt við­tal við Jóhannes Stef­áns­son, sem var verk­efna­stjóri Sam­herja í Namibíu fram á árið 2016, þar sem hann við­ur­kenndi að hafa brotið lög fyrir hönd Sam­herja þegar fyr­ir­tækið náði í umtals­verðan kvóta í land­inu. Þar kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfir­völd í Namib­íu, hefði fengið laga­lega stöðu upp­ljóstr­ara og aðstoð­aði nú við rann­sókn þeirra á starfs­háttum Sam­herj­a.

Jóhannes sagði í Kveik að hann hefði ekki hafa gert neitt í Namibíu nema án aðkomu Þor­steins Más Bald­vins­son­ar, for­stjóra Sam­herja. Þar kall­aði hann starf­semi Sam­herja í Namibíu „skipu­lagða glæp­a­starf­semi“ þar sem fyr­ir­tækið græði á auð­lindum lands­ins en hafi svo fært alla pen­ing­anna sem það græddi út úr því til að fjár­festa ann­ars staðar í heim­in­um. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mútur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Upp­skrift að því að drepa umræð­una með börnum

Á þriðju­dag voru ætl­aðar mútu­greiðslur, skatt­svik og pen­inga­þvætt­is­til­burðir Samherja opin­beraðir. Líkt og venja er var lítið um varnir dag­inn eftir. Gögnin sem umfjöll­unin byggði á, og trú­verð­ug­leiki upp­ljóstr­ar­ans sem reyndi ekki með neinum hætti að breiða yfir sinn þátt í mál­inu, var enda yfir­þyrm­andi. Réttlát reiði kraum­aði í sam­fé­lag­inu og hvert rann­sókn­aremb­ætti á fætur öðru, í hverju land­inu á fætur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár