31 mínúta og 16 sekúndur

Amazon er stór­veldi í smá­sölu. Íslenskur sjáv­ar­út­vegur á mikið undir því að styrkja við­skipta­sam­bandið við þetta landamæra­lausa mark­aðs­svæði. Úttekt Vís­bend­ingar sýnir að mikið er í húfi fyrir sjáv­ar­út­veg­inn að ná góðri fót­festu innan Amazon hag­kerf­is­ins.

Metið er 31 mín­úta. Og hitt metið er 16 sek­úndur. Met í hverju? Við skulum segja, í verslun. Þetta eru inn­kaupa­hraða­met fjöl­skyld­unnar í verslun.

Í meira en eitt ár höfum við fjöl­skyldan, með fáum und­an­tekn­ingum, gert öll okkar mat­ar­inn­kaup í gegnum Amazon Fresh og dótt­ur­fé­lag Amazon, Whole Foods. Á þeim tæp­lega fimm árum sem við höfum verið búsett í Banda­ríkj­unum höfum við mest verslað hjá Amazon.

Heimavöllurinn

Við búum á heima­svæði Amazon, í Seattle í Washington ríki, þar sem fyr­ir­tækið varð til. Hér er Amazon sann­kölluð efna­hags­vél fyrir svæðið. Félagið hefur nýtt þá stöðu sína til til­rauna- og vöru­þró­un­ar­starf­semi alla tíð og sér ekki fyrir end­ann á því. Yfir 70 þús­und manns starfa á vegum Amazon á Seattle-svæð­inu og þar af eru yfir 45 þús­und í höf­uð­stöðv­unum sem dreifast á yfir 40 bygg­ingar.

Tilraun 1

Ég ákvað að gera til­raun og sjá hversu hröð þjón­usta var í boði hjá Amazon, þegar kom að kaupum á íslensku sjáv­ar­fangi.

Ég fór í sím­ann, opn­aði appið, og pant­aði lax og þorsk - frá Íslandi - og nýtti mér Prime Now þjón­ustu Amazon til að flýta ferl­inu sem mest.

Ein hvítvín flaut með, en það var ekki lagt upp með það. Aug­lýs­ingin birt­ist svo glanna­lega inn í miðri pöntun að ég gat eig­in­lega ekki annað en kippt henni með.

Amazon Prime Now er flýti­þjón­usta við heim­send­ingu á vörum. Amazon býður upp á þetta meðal ann­ars í krafti þess hversu sterkir inn­við­irnir eru þegar kemur að vöru­flutn­ingi í nær­sam­fé­lögum.

Amazon nýtir sér dreifi­kerfi pósts­ins þegar það á við. Innreið Uber og Lyft hefur síðan gjör­bylt heim­send­ing­ar­kerfum og gert það mögu­legt að koma mat­ar­send­ingum til fólks á skemmri tíma en áður hefur verið hægt. Þá hefur upp­bygg­ing Amazon á eigin dreifi­kerfi - á láði og lofti - ýtt undir hrað­ari þjón­ustu.

Það er skemmst frá því að segja að þjón­ustu­stigið með Amazon Prime Now er með ólík­indum. Pokar af vörum - gæða­vörum frá íslenskum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum - voru komnar heim að dyrum á 31 mín­útu. Bíl­stjóri frá Uber kom með vör­urnar til mín með bros á vör.

Þessi til­raun heppn­að­ist vel og sýndi mér að þjón­ustu­stigið hjá Amazon er orðið veru­lega hátt.

Tilraun 2

Aðra til­raun gerði ég í Amazon Go versl­un­inni sem er við höf­uð­stöðv­arnar í Seattle. Það er fyrsta verslun sinnar teg­undar í heim­inum og byggir á hreyfiskynj­urum og mynda­véla­tækni í lofti versl­un­ar­innar, sem nemur allar hreyf­ingar not­enda eftir að þeir hafa skráð sig inn í versl­un­ina í gegnum Amazon Go appið.

Ég gekk rak­leiðis að hill­unni og kippti með mér dós af Siggi’s skyr - þó ekki nema bara til að styðja ein­stakt frum­kvöðla­æv­in­týri Sigurðar K. Hilm­ars­sonar. Þetta tók mig 16 sek­úndur. Um leið birt­ist strim­ill­inn í sím­anum mínum með stað­fest­ingu á að varan hefði verið skuld­færð af kredit­kort­inu mínu.

Líkt og með net­versl­un­ar­tækni Amazon þá er það þjón­ustu­stigið sem kemur manni mest á óvart. Engir búð­ar­kassar eru í versl­un­inni og allt gengur hratt fyrir sig.

Framundan er svo ævin­týra­legur vöxtur Amazon þegar kemur að upp­bygg­ingu Amazon Go versl­ana sem byggja á fyrr­nefndri tækni. Samkvæmt áætl­unum fyr­ir­tæk­is­ins munu þús­undir versl­ana spretta upp, þar sem fáir munu vinna og raðir heyra sög­unni til.

Ekki vanmeta áhrifin

Ég hef að und­an­förnu unnið að athugun á tæki­færum og ógn­unum fyrir íslenskan sjáv­ar­út­veg á þeim mark­aði sem starf­semi Amazon hefur búið til. Þetta er landamæra­laus mark­aður sem vex á ógn­ar­hraða og byggir að miklu leyti á sífellt hækk­andi þjón­ustu­stigi Amazon þar sem allt snýst um að nota tækn­ina til að auð­velda við­skipta­vinum lífið.

Eitt af því sem kom mér mest á óvart var hversu umfangs­mikið við­skipta­sam­bandið er milli Íslands og Amazon. Á bil­inu 40-60% af öllum fiski sem rækt­aður er í fisk­eldi á Íslandi er keypt af Amazon - í gegnum dótt­ur­fé­lagið Whole Foods - þegar heild­ar­keðjan er rakin allt til enda. Þá hafa ýmsar aðrar vörur einnig vaxið nokkuð innan Amazon að und­an­förnu, og má nefna íslenskan þorsk sem dæmi. En það er engu að síður ljóst að mikil tæki­færi eru í því fólgin að auka söl­una á þorsk­inum og sýni­leika íslenska þorsks­ins hjá Amazon.

Í skýrslu sem fylgir með þess­ari grein er staða íslensks sjáv­ar­út­vegs innan þessa mark­aðs­svæðis - Amazon - gerð að umtals­efni. Meðal þess sem fjallað er um eru þær umfangs­miklu breyt­ing­arnar sem eru að verða á smá­sölu­mark­aði og eru að setja tölu­verða pressu á mat­væla­fram­leið­endur.

Með sífellt betri þjón­ustu í net­við­skiptum, þar sem heim­send­ing­ar­kerfi eru að verða áreið­an­legri og fljót­virk­ari, munu kröfur til fram­leið­anda um að skila frá sér góðri vöru með skil­virkum hætti aukast mikið. Mik­il­vægt verður fyrir sjáv­ar­út­veg­inn að átta sig á því að hækk­andi þjón­ustu­stig Amazon - sem síðan er að hreyfa við öllum smá­sölu­fyr­ir­tækjum - setur auk­inn þrýst­ing á að fram­leiðsla gangi vel og að hugað sé sér­stak­lega vel að öllum þáttum virð­is­keðj­unnar.

Loforð Amazon - sem sett var fram á fyrri hluta árs­ins 2019 - um að frá og með næstu ára­mótum muni fyr­ir­tækið geta afhent allar vörur innan sól­ar­hrings, er gríð­ar­lega umfangs­mikil breyt­ing fyrir smá­sölu í heim­inum. Amazon er að setja algjör­lega ný við­mið og þessi yfir­lýs­ing fyr­ir­tæk­is­ins kom flestum grein­endum í opna skjöldu. Fæstir höfðu reiknað með að Amazon gæti tekið þetta skref svona fljótt og það hefur þegar haft mikil áhrif á þróun hjá öðrum smá­sölurisum, eins og Costco og WalMart.

Amazon fylgdi þessu svo eftir með því að leggja inn pöntun á 100 þús­und raf­magns­sendi­bílum hjá fyr­ir­tæki í Michigan, til að styrkja eigin dreifi­kerfi og flýta því að gera þetta lof­orð að veru­leika.

Erfitt að vera langt frá mörkuðum

Fyrir mat­væla­fram­leið­endur á Íslandi hefur alltaf verið krefj­andi að vera langt frá erlendum mörk­uðum. Lega lands­ins getur reynst erf­ið­ari eftir því sem þjón­ustu­stig í net­við­skiptum hækkar. Mik­il­vægt verður fyrir sjáv­ar­út­veg­inn - og hið opin­bera einnig - að finna leiðir til að láta flutn­inga ganga enn hraðar fyrir sig, meðal ann­ars með því að flýta toll­af­greiðslu fyrir flug- og skipa­flutn­inga.

Þá þarf einnig að velta því fyrir sér, hvort sam­starf um að ná niður flutn­ings­kostn­aði muni þurfa til, svo að hann verði ekki of stór hindrun, áður en vör­unum er flogið eða siglt inn á mark­aðs­svæði.

Hækkun á þjón­ustu­stigi í net­verslun er þannig bæði tæki­færi og ógnun fyrir íslenskan sjáv­ar­út­veg.

Ég vil þakka þeim sem ég ræddi við til að glöggva mig á við­skipta­sam­band­inu milli Amazon og íslensks sjáv­ar­út­vegs. Það voru bæði stjórn­endur hjá íslenskum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum og sölu­fólk.

Þá hjálp­uðu góð sam­töl við leið­toga í tækni­fyr­ir­tækjum hér á Seattle svæð­inu - mest vina­fólk sem starfar hjá Amazon, Microsoft, Marel og SalesForce - við að leggja (örlítið) mat á það hvernig breyt­ing­arnar í smá­sölu geti haft áhrif í íslenskum sjáv­ar­út­vegi.

Skýrslu Vís­bend­ingar um Amazon má nálg­ast hér. Henni er einnig dreift á umræðu­svæði Lands­bank­ans, en umræða fór fram, í sam­starfi Vís­bend­ingar við Lands­bank­ann, á Sjáv­ar­út­vegs­ráð­stefn­unni í Hörpu í dag, um net­verslun á alþjóða­mörk­uðum.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár