Ættu starfsmenn að eiga hlutabréf í eigin fyrirtækjum?

Fjallað er um hluta­bréfa­eign starfs­manna fyr­ir­tækja, og aðferðir við einka­væð­ingu, í Vís­bend­ingu sem koma til áskrif­enda í dag.

„Erfitt er að ímynda sér hug­mynd sem bæði Karl Marx og Margaret Thatcher hefðu getað sam­mælst um, sér­stak­lega hug­mynd sem snýst um vel­ferð hins vinn­andi manns. Þó virð­ist útgáfa hluta­bréfa fyr­ir­tækja til eigin starfs­manna geta sam­ræmst hug­mynd­ar­fræði þeirra beggja og þannig sam­einað einn af meg­in­átaka­punktum félags-og mark­aðs­hyggju. Stuðn­ingur við þessa hug­mynd hefur vaxið meðal stjórn­mála­fólks, fræði­manna og hags­muna­sam­taka á und­an­förnum miss­erum, en ekki eru allir jafn­sann­færðir um ágæti hennar. Hverju myndi hún breyta og hverju bæri að var­ast við fram­kvæmd hennar?“

Þetta er meðal þess sem er til umfjöll­unar í grein eftir Jónas Atla Gunn­ars­son, Msc. í hag­fræði, í Vís­bend­ingu sem koma til áskrif­enda í dag. Í grein­inni fjallar hann um aðferðir við einka­væð­ingu, og þá einkum í mik­illi einka­væð­ing­ar­hr­inu í Bret­landi. Í henni var meðal ann­ars horft til þess að selja starfs­fólki heilu fyr­ir­tækin, fremur en hæst­bjóð­anda.

Aðferð­irnar voru umdeildar, og má segja að þær séu enn mikið hita mál í stjórn­málum.

Stoltir starfsmenn

„Árið 1982, í miðri einka­væð­ing­ar­hr­inu rík­is­stjórnar Bret­lands, ákvað Margaret Thatcher, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður íhalds­flokks­ins, að selja ætti eign­ar­hlut rík­is­ins í Opinbera frakt­fé­lag­inu (e. National Freight Corporation). Salan var merki­leg fyrir þær sakir að hún fór ekki beint til hæst­bjóð­anda, heldur var starfs­mönnum félags­ins fyrst boðið að kaupa hluti í því á lágu verði. Að lokum voru 82 pró­sent fyr­ir­tæk­is­ins í eigu starfs­mann­anna, ásamt fjöl­skyldum þeirra og líf­eyr­is­sjóðum.

Sölunni var ætlað að skapa hvata meðal starfs­manna til að auka skil­virkni sína í starfi. Sem hlut­hafar í félag­inu myndu þeir fá að njóta ávaxta erf­iðis síns og hagn­ast ef starf­semin gengi vel. Svo virð­ist sem sú áætlun hafi gengið upp, en á örfáum árum jókst fram­leiðni frakt­fé­lags­ins um 70% og hluta­bréf þess marg­föld­uð­ust í virði (1).

Eftir árang­urs­ríka sölu á National Freight Corporation varð hluta­bréfa­út­gáfa til starfs­manna algeng leið til einka­væð­ingar á rík­is­fyr­ir­tækjum á níunda og tíunda ára­tugnum, bæði í Bret­landi og í Austur-Evrópu eftir fall Sov­ét­ríkj­anna,“ segir í grein Jónasar Atla.

Þetta er ein­ung­ist brot af grein­inni, sem fór til áskrif­enda Vís­bend­ingar í morgun, á útgáfu­degi. Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér. 

(1) McDonnell, D. (2012). Democratic Enter­prise: Ethical business for the 21st century. Diarmuid McDonnell.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár