Segir þyrlukast henta illa smærri myntsvæðum

Hag­fræð­ingur skrifar um óhefð­bundna pen­inga­stefnu á krísu­tímum í Vís­bend­ingu vik­unnar.

Pen­inga­prentun án inni­stæðu hentar smærri mynt­svæðum illa sem leið seðla­banka til að örva hag­kerfi í kreppum. Magn­bundin íhlutun geti hins vegar nýst íslenskum stjórn­völdum, heim­ilum og fyr­ir­tækjum vel með lægri lang­tíma­vöxtum.

Þetta kemur fram í grein Þórunnar Helga­dóttur, hag­fræð­ings hjá Compass Lexecon í Madríd, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem kom út síð­asta föstu­dag.

Í grein­inni fjallar Þórunn um tvær aðgerðir sem heyra til óhefð­bund­innar pen­inga­stefnu á krísu­tímum, magn­bundna íhlutun (Quantitative easing) og þyrlu­kast (Helicopter drop).

Báðar aðgerð­irnar hafa verið nefndar sem hugs­an­leg úrræði til þess að koma í veg fyrir enn frek­ari sam­drátt vegna veiru­far­ald­urs­ins með því að auka pen­inga­magn í umferð.

Magnbundin íhlutun

Magn­bundin íhlutun, sem felur í sér kaup á rík­is­skulda­bréfum, er ætlað að örva fjár­mála­mark­aði og hafa þannig áhrif á lang­tíma­vexti. Seðla­banki Japans var fyrstur til að grípa til slíkra úrræða á árunum 2001-2006, en seðla­bankar Banda­ríkj­anna, Bret­lands og Evr­ópu­sam­bands­ins gerðu slíkt hið sama í kjöl­far fjár­málakrepp­unnar árið 2008 og efna­hags­þreng­ing­anna sem henni fylgdi.

Í grein sinni víkur Þórunn sér­stak­lega að við­brögðum Mario Draghi, banka­stjóra evr­ópska seðla­bank­ans, sem sagð­ist munu standa vörð um evr­una „hvað sem það kostar“ í frægri ræðu sinni í miðju krepp­unnar á Evru­svæð­inu.

[adspot]„Orð seðla­banka­stjór­ans voru heldur ekki inn­an­tóm. Nokkrum vikum síðar hóf seðla­bank­inn að kaupa upp skuldir aðild­ar­ríkja í þeim til­gangi að lækka vexti (e. Outright Monetary Transactions) og tveimur árum síðar hóf evr­ópski seðla­bank­inn einnig að beita magn­bund­inni íhlutun. Líkt og mynd 1 sýnir tóku lang­tíma­vextir á evru­svæð­inu dýfu í kjöl­far þess­ara aðgerða og hefur ítalski seðla­banka­stjór­inn hlotið við­ur­nefnið Super-Mario fyrir stað­festu sína í að bjarga evr­unni, sama hvað það kost­aði,” skrifar Þórunn.

Þyrlukast

Samkvæmt Þórunni er þyrlu­kast, sem felur í sér inni­stæðu­lausa pen­inga­prentun þar sem hinir nýprent­uðu seðlar verða eftir í hag­kerf­inu, umdeild­ari aðgerð. Hún bendir þó á að Jordi Galí, einn virt­asti þjóð­hag­fræð­ingur heims, segi að efna­hags­að­stæður nú, ef ein­hvern tím­ann kalli á þyrlu­kast á Evru­svæð­inu. „Hins vegar leggur Galí áherslu á að slíkar aðgerðir séu neyð­ar­úr­ræði sem aðeins ætti að beita ef ljóst er að aðrar aðferðir verði árang­urs­lausar eða hafi óæski­legar afleið­ingar,“ skrifar hún.

Einnig bætir Þórunn við að pen­inga­prentun á stóru mynt­svæði líkt og Evru­svæð­inu sé ólík­leg til að þynna út gjald­mið­il­inn þar sem evrur hafa alþjóð­legt verð­mæti, en að smærri mynt­svæði gætu lent í greiðslu­jöfn­un­ar­vanda ef slíkum úrræðum er beitt þar.

Fjallað er ítar­legar um málið í síð­ustu Vís­bend­ingu, sem hægt er að ger­ast áskrif­andi að hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár