Segjast hafa fylgt verklagi í máli barnshafandi konu

Útlend­inga­stofnun hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna albanskrar fjöl­skyldu sem var vísað úr landi í nótt.

Ein­stak­lingum sem synjað hefur verið um alþjóð­lega vernd og eiga ekki annan rétt til dvalar hér á landi lögum sam­kvæmt ber að yfir­gefa landið. Þegar ákvörðun í máli er fram­kvæmd­ar­hæf sendir Útlend­inga­stofnun beiðni um lög­reglu­fylgd til stoð­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Útlend­inga­stofnun.

Tilefni til­kynn­ing­ar­innar er að á Facebook-síðu Réttur barna á flótta birt­ist færsla í morgun þar sem kemur fram að í nótt hafi lít­illi albanskri fjöl­skyldu verið vísað úr landi þrátt fyrir að vera í miðju mála­ferli við Útlend­inga­stofnun. Þrátt fyrir að móð­irin sé komin níu mán­uði á leið og þrátt fyrir að eiga tveggja ára gam­alt barn – barn sem fædd­ist á 36. viku.

„Þrátt fyrir lækn­is­vott­orð frá mæðra­vernd eftir skoðun með tveimur læknum, ljós­móður og hjúkr­un­ar­fræð­ingi í gær, þess efnis að móð­irin ætti ekki að fljúga. Þrátt fyrir að fjöl­skyldur með börn skuli ávallt fá tveggja vikna fyr­ir­vara eigi að vísa þeim úr landi. Þá gerði lög­reglan þetta,“ stendur í færsl­unni.

Samkvæmt sam­tök­unum lá konan inni á mæðra­vernd í gær­kvöldi eftir að hafa fengið miklar blæð­ingar úr nefi. Þá hefði lög­reglan verið heima hjá þeim og beitt föð­ur­inn valdi vegna þess að hann hugð­ist hringja í vin sinn vegna ástands­ins.

„Lög­reglan beið fyrir neðan glugg­ann hennar á mæðra­vernd með bíl sem lýsti inn í her­bergið svo tímunum skipti í gær, til­búin að taka fjöl­skyld­una upp á flug­völl. Bíllinn fór ekki fyrr en 22:30.

Í skjóli nætur kom lög­reglan aftur og með­ferðis hafði hún lækn­is­vott­orð frá lækni að nafni Kai Blöndal. Móðirin hefur ekki fengið lækn­is­skoðun frá Kai vegna með­göng­unnar, en sam­kvæmt vott­orð­inu taldi hún móð­ur­ina geta flogið, þrátt fyrir að vera komin 35 vikur og 5 daga á leið. Lög­reglan keyrði þau upp á flug­völl til að vísa þeim úr landi. Flugið fór tím­an­lega en við höfum ekki fengið það stað­fest hvort fjöl­skyldan hafi farið um borð.

Á þessum tíma­punkti er ekk­ert vitað um líðan barn­anna eða for­eldr­anna,“ segir í færsl­unni.

Ekkert hafi komið fram um að flutningur úr landi myndi stefna öryggi í hættu

Í til­kynn­ingu Útlend­inga­stofn­unar kemur fram að und­ir­bún­ingur stoð­deildar varð­andi til­högun á lög­reglu­fylgd snú­ist meðal ann­ars að því að meta stöðu ein­stak­lings í sam­ræmi við heil­brigð­is­að­stæður. Sé það eftir atvikum gert með því að afla vott­orðs frá lækni um hvort við­kom­andi sé ferða­fær. Ef vott­orð liggi fyrir um að flutn­ingur ein­stak­lings úr landi muni stefna öryggi hans í hættu þá sé flutn­ingi frestað þangað til ástandið breyt­ist. Fyrir því séu for­dæmi bæði í til­viki barns­haf­andi kvenna og ein­stak­linga sem glíma við veik­indi.

„Þessu verk­lagi var fylgt í því máli sem nú er til umfjöll­unar eins og öðrum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Enn fremur kemur fram hjá Útlend­inga­stofnun að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra afl­aði hún vott­orðs frá lækni á heilsu­gæsl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um að við­kom­andi væri ferða­fær. „Við­kom­andi leit­aði síðan sjálf til læknis á kvenna­deild Land­spít­al­ans þar sem gefið var út annað vott­orð og stoð­deild fékk afrit af. Í því vott­orði kom ekk­ert fram um að flutn­ingur við­kom­andi úr landi myndi stefna öryggi hennar í hættu og því var fyr­ir­hug­uðum flutn­ingi ekki frestað.“

Eigi erfitt með langt flug

Í lækn­is­vott­orði sem No Borders Iceland birti á Facebook-síðu sinni í dag kemur fram að konan sé gengin 35 vikur og 5 daga. Hún sé slæm af stoð­verkja­verkjum í baki og eigi erfitt með langt flug.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár