Samdráttur í íslenska hagkerfinu verður 0,2 prósent í ár, vegna minni innlendrar eftirspurnar og lækkunar útflutnings. Á næsta ári nær hagkerfið sér á strik og búist er við því að hagvöxtur verði 1,7 prósent, þar sem þjóðarútgjöld muni taka við sér á ný. Næstu árin á eftir, frá 2021 til 2025, er búist við því að hagvöxtur verði á bilinu 2,5 til 2,7 prósent á ári.
Þetta kemur fram í nýrri þjóðhagsspá Hagstofu Íslands sem birt var í morgun.
Þar segir að heimilin hafi haldið að sér höndum í einkaneyslu í ár, og að hún hafi einungis aukist um 1,8 prósent. Ástæðan sé óvissa í efnahagsmálum, en þar er fyrst og síðast átt við óvissu sem skapaðist eftir gjaldþrot WOW air í mars og svo loðnubrest.
[adspot]Í spánni er búist við því að samneysla aukist um 2,5 prósent í ár og um 2,4 prósent á því næsta, meðal annars vegna aukins launakostnaðar hjá ríki og sveitarfélögum. „Gert er ráð fyrir að fjárfesting lækki um 9,1 prósent í ár vegna samdráttar í atvinnuvegafjárfestingu og opinberri fjárfestingu. Á næsta ári er reiknað með 3,7 prósent vexti fjárfestingar vegna bata í atvinnuvegafjárfestingu og aukningar í íbúðafjárfestingu. Áætlað er að fjárfesting aukist að meðaltali um rúmlega 3 prósent árin 2021-25. Framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar verður jákvætt í ár, einkum vegna samdráttar í innflutningi, en verður neikvætt á næsta ári og breytist lítið eftir það. Spáð er viðskiptaafgangi í ár sem nemur 2,9 prósent af vergri landsframleiðslu en á næstu árum er reiknað með að hann verði um 1,4 prósent.“
Í þjóðhagsspánni er því spáð að vísitala neysluverðs, sem mælir verðbólgu, hækki að meðaltali um þrjú prósent í ár. Verðbólgan hefur farið ört lækkandi þegar liðið hefur á árið eftir að hafa verið hærri í lok síðasta árs og upphafi þessa en hún hefur mælst frá byrjun árs 2014. Búist er við því að verðbólga fari nálægt 2,5 prósent verðbólgumarkmiði fyrir lok þessa árs. Í þjóðhagspánni segir að lægri verðbólga komi til vegna hóflegra launahækkana og forsendu um stöðugt gengi krónunnar. Horfur um atvinnuleysi hafa lítið breyst og er reiknað með að það verði 3,8 prósent í ár.
Reiknuðu hagvöxt vitlaust, tvisvar
Hagstofan hefur verið í vandræðum með hagvaxtaútreikning það sem af er þessu ári. Þann 3. september síðastliðinn leiðrétti hún tölur um hagvöxt á öðrum ársfjórðungi sem hún birti upphaflega nokkrum dögum áður. Í ljós hafði komið að hagvöxtur á ársfjórðungnum var 2,7 prósent en ekki 1,4 prósent líkt og sagði í fyrri tilkynningu hennar.
Þegar sú tilkynningin var birt voru fyrri niðurstöður um hagvöxt á fyrsta ársfjórðungi einnig leiðréttar. Í endurskoðaðri niðurstöðu Hagstofunnar kom í ljós að hagvöxtur á fyrstu þremur mánuðum ársins hafi verið neikvæður um 0,9 prósent en ekki jákvæður um 1,7 prósent líkt og fyrri niðurstöður hafi sagt til um.
[adspot]Því liggur fyrir að Hagstofa Íslands hafði reiknað út rangan hagvöxt fyrir báða þá tvo ársfjórðunga sem liðnir voru af árinu
Í frétt á vef stofnunarinnar vegna þessa sagði: „Hagstofu Íslands þykir miður að mistök hafi orðið og reynir eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig.“
Mismunandi skekkjur
Skekkjan í útreikningum stofnunarinnar vegna hagvaxtar fyrsta ársfjórðungs, sem var upp á 2,6 prósentustig, var vegna þess að „gögn innihalda upplýsingar um umfang og framvindu byggingarframkvæmda sem náðu yfir lengra tímabil en samsvarar viðmiðunartímabili þjóðhagsreikninga. Hefur það nú verið leiðrétt á grundvelli nýrra gagna. Samkvæmt endurskoðun mældist vöxtur íbúðafjárfestingar á 1. ársfjórðungi 22,2 prósent borið saman við 58,4 prósent samkvæmt áður útgefnum tölum.“
Skekkjan í útreikningum á hagvexti á öðrum ársfjórðungi átti rætur sínar að rekja til „mistaka sem urðu til þess að fjármunamyndun tímabilsins reyndist vanmetin um sem nemur 9,1 milljarði króna á verðlagi ársins. Áhrifin koma fram í tveimur undirliðum fjármunamyndunar, fjármunamyndun hins opinbera og í atvinnuvegafjárfestingu, nánar tiltekið í fjármunamyndun í skipum og flugvélum. Eftir leiðréttingu mælist 16,6 prósent vöxtur í fjármunamyndun hins opinbera og 26,5 prósent samdráttur í atvinnuvegafjárfestingu. Samdráttur í heildarfjármunamyndun mælist 9,2 prósent, borið saman við 14,2 prósent samkvæmt áður birtum niðurstöðum. Eftir leiðréttingu mælist vöxtur landsframleiðslunnar 2,7 prósent að raungildi á 2. ársfjórðungi, samanborið við 1,4 prósent samkvæmt áður birtum niðurstöðum. Landsframleiðslan á fyrstu sex mánuðum ársins 2019 jókst um 0,9 prósent borið saman við fyrstu sex mánuði ársins 2018 en samkvæmt áður birtum niðurstöðum mældist breyting landsframleiðslunnar 0,3 prósent á tímabilinu.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir