Erlendir íbúar ólíklegri til að svara lífskjararannsókn Hagstofu

Ein­stak­lingar sem eru valdir til að svara í lífs­kjara­rann­sókn Hagstofu eru mun ólík­legri til að svara henni ef þeir hafa erlendan bak­grunn. Samkvæmt stofn­un­inni leiðir þetta mis­ræmi þó ekki endi­lega til bjag­aðra nið­ur­staðna.

Svar­hlut­fall ein­stak­linga með erlendan bak­grunn í lífs­kjara­rann­sókn Hagstofu er tæp­lega helm­ingi lægra en hjá öðrum sem valdir eru í rann­sókn­ina. Hag­stofan seg­ist þó taka til­lit til þessa mis­ræmis í rann­sókn­inni með því að vigta svör þeirra meira svo þau end­ur­spegli sam­setn­ingu ald­urs, kynja, bak­grunns og heild­ar­launa í sam­fé­lag­inu. Þetta kemur fram í svari stofn­un­ar­innar við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Kjarninn hefur áður fjallað um lífs­kjara­rann­sókn­ina, en hún er fram­kvæmd árlega og er hluti af sam­ræmdri lífs­kjara­rann­sókn Evr­ópu­sam­bands­ins, sem ber saman lífs­kjör milli Evr­ópu­landa á milli ára. Samkvæmt bráða­birgða­nið­ur­stöðum úr rann­sókn­inni fækk­aði þeim heim­ilum sem áttu erfitt með að ná endum saman hér á landi í fyrra og hafa þau hlut­falls­lega aldrei mælst færri, en tæp­lega 19 pró­sent þjóð­ar­innar segja að hús­næð­is­kostn­aður sé þung fjár­hags­leg byrði.

Rannsókn Hagstofu byggir á svörum frá ein­stak­lingum sem eru valdir í hátt í fimm þús­und manna slembi­úr­tak úr Þjóðskrá um heim­il­is­að­stæður sínar. Nýtt úrtak er valið á hverju ári, en ein­stak­lingar og heim­ilin þeirra eru í úrtaki í fjögur ár í senn.

Anton Örn Karlsson, deild­ar­stjóri hjá Hagstofu, sagði í sam­tali við Kjarnann að lækk­andi svar­hlut­fall væri vanda­mál í úrtakskönn­unum um allan heim. Einnig sé mark­verður munur á svar­hlut­falli eftir bak­grunni fólks í úrtak­inu, en líkt og sést hér að neðan hefur það verið tæp­lega helm­ingi lægra hjá ein­stak­lingum með erlendan bak­grunn, miðað við aðra, síð­ustu þrjú árin.

Samkvæmt Antoni er tekið til­lit til mis­ræmis á svar­hlut­falli á milli hópa með því að finna réttar vigtir fyrir svör við­mæl­enda eftir aldri, kyni, bak­grunni og heild­ar­launum þeirra. Þvi sé ekki þar með sagt að nið­ur­stöður lífs­kjara­rann­sókn­ar­innar séu bjag­aðar þótt mis­ræmi sé á svar­hlut­falli eftir bak­grunni ein­stak­linga.

Innflytjendur í verri félagslegri stöðu

Aðspurður um hvort lífs­kjör þeirra sem svör­uðu könn­un­inni væru mis­mun­andi eftir bak­grunni þeirra sagði Anton að deildin hafi ekki rann­sakað það sér­stak­lega og að það stæði ekki til á næst­unni.

Þó benti hann á sam­an­tekt frá árinu 2019 um stöðu inn­flytj­enda hér­lendis, en sam­kvæmt henni eru með­al­tekjur að jafn­aði lægri hjá inn­flytj­endum. Enn fremur séu þeir lík­legri til að vera á leigu­mark­aði en inn­fæddir, auk þess sem fleiri þeirra búa þröngt. Sömu­leiðis hafa hlut­falls­lega fleiri inn­flytj­endur upp­lifað íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað heldur en inn­fæddir.

Eftir hrun ferða­þjón­ustu­geirans vegna heims­far­ald­urs­ins hefur atvinnu­leysi inn­flytj­enda einnig stór­auk­ist. Í jan­úar í fyrra, þegar almennt atvinnu­leysi mæld­ist 11,6 pró­sent sam­kvæmt Vinnu­mála­stofnun, var það í 24 pró­sentum á meðal inn­flytj­enda.

Í lok des­em­ber 2021 voru svo rúm­lega 42 pró­sent allra atvinnu­lausra á Íslandi erlendir rík­is­borg­arar, þrátt fyrir að vera innan við 15 pró­sent af mann­fjöld­anum. Erlendum rík­is­borg­urum fjölg­aði svo í hópi atvinnu­lausra í jóla­mán­uð­inum.

Mikil fjölgun innflytjenda á síðustu árum

Á ára­tug hefur erlendum rík­is­borg­urum sem búa hér­lendis fjölgað um 33.840 alls, eða 162 pró­sent, sam­kvæmt sam­an­tekt Hagstofu Íslands. Rúmlega 44 pró­sent þeirra sett­ist að í Reykja­vík og tæp­lega 12 pró­sent í Reykja­nesbæ, en þar hefur erlendum rík­is­borg­urum fjölgað um úr 1.220 í 5.130 á ára­tug, eða um 320 pró­sent.

Á sama tíma fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum í Garðabæ, Mos­fellsbæ og á Sel­tjarn­ar­nesi sam­an­lagt um 1.590. Það þýðir að tæp­lega fimm pró­sent þeirra erlendu rík­is­borg­ara sem fluttu til Íslands frá árs­lokum 2011 hafa sest að í þeim sveit­ar­fé­lögum.

Lands­mönnum öllum hefur fjölgað um 56.440 síð­ast­lið­inn ára­tug og voru 376.000 um síð­ustu ára­mót. Það þýðir að 60 pró­sent fjölg­unar lands­manna á síð­ast­liðnum ára­tug hefur verið vegna aðflutn­ings fólks hingað til lands sem er af erlendu bergi brotið.

Mest var fjölg­unin á árunum 2017 og 2018, þegar ferða­þjón­ustu­geir­inn var í mestum vexti, en á þeim tveimur árum fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum sem búa hér um 13.930 alls. Á sama tíma fjölg­aði lands­mönnum öllum um 18.600. Því voru inn­flytj­endur ábyrgir fyrir 75 pró­sent af mann­fjölda­aukn­ingu á þessum tveimur árum.

Brottfallsskekkja áður leitt til misræmis

Hag­stofan hefur áður átt í vand­ræðum með mæl­ingar sínar vegna brott­falls­skekkju, en mik­ill munur var á atvinnu­leysis­tölum úr vinnu­mark­aðs­könnun hennar og mældu atvinnu­leysi sam­kvæmt Vinnu­mála­stofnun stuttu eftir að far­ald­ur­inn hófst. Samkvæmt Hag­stof­unni var ein útskýr­ing á því mis­ræmi sú að um var að ræða mis­mun­andi mæl­ingar byggðar á mis­mun­andi skil­grein­ingum, en ein­stak­lingar sem fengu atvinnu­leys­is­bætur voru einnig ólík­legri til að svara könn­un­inni heldur en þeir sem fengu ekki þess háttar bætur.

Til þess að leið­rétta þessa skekkju breytti Hag­stofan úrvinnslu­að­ferðum sínum í vinnu­mark­aðs­könn­un­inni í fyrra, en sam­kvæmt stofn­un­inni bentu nýjar mæli­að­ferðir til þess að atvinnu­leysi hafi verið nokkuð van­metið fram að því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagstofa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár