Verðbólga lækkar skarpt og mælist tvö prósent – Ekki verið lægri í tvö ár

Óvænt lækkun hús­næð­isliðar lék lyk­il­hlut­verk í því að verð­bólga fór úr 2,7 í 2,0 pró­sent milli mán­aða. Hún hefur ekki mælst minni í tvö ár og er nú langt undir verð­bólgu­mark­miði.

Óvænt lækkun húsnæðisliðar skipti miklu máli í því að verðbólgan lækkaði jafn skarpt og raun ber vitni.
Óvænt lækkun hús­næð­isliðar skipti miklu máli í því að verð­bólgan lækk­aði jafn skarpt og raun ber vitni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Verð­bólga lækk­aði skarpt milli mán­aða og fór úr 2,7 pró­sent í 2,0 pró­sent. Það er minnsta verð­bólga sem mælst hefur í tvö ár, eða frá því í des­em­ber 2017. Þetta kemur fram í tölum sem Hag­stofan birti í morgun.

Það þýðir að verð­bólgan er komin undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands á ný, en hún var þar síð­ast í júní 2018. Frá þeim tíma reis hún hæst í 3,7 pró­sent í des­em­ber fyrir ári síðan.

Flestar spár gerðu ráð fyrir að verð­bólgan myndi fara niður í átt að verð­bólgu­mark­miði í lok yfir­stand­andi árs, eða snemma á því næsta, en það voru ekki margir sem gerður ráð fyrir svona skörpum sam­drætti hennar.

[adspot]Ef horft er á vísi­tölu neyslu­verðs, sem mælir tólf mán­aða verð­bólgu, án hús­næð­islið­ar­ins þá hefur hún hækkað um 1,7 pró­sent síð­ast­liðið ár, eða aðeins minna en ef hús­næð­islið­ur­inn er tek­inn með í reikn­ing­inn.

Hefur áhrif á lánakjör fjölda Íslendinga

Hin skarpa minnkun verð­bólgu hefur jákvæð áhrif á alla þá sem eru með verð­tryggð íbúða­lán, en þorri íslenskra lán­taka er með slík lán. Kjarninn hefur þó fjallað um það und­an­farna daga að óverð­tryggð lán hafi verið að sækja mjög í sig veðrið það sem af er þessu ári, meðal ann­ars vegna þess að sumir líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa breytt lána­skil­málum sínum þannig að þeir vísa fleirum í átt að slíku lána­formi.

Á þessu ári hefur sam­setn­ing lána tekið stakka­skiptum því óverð­tryggð lán­hafa vaxið um nær 30 pró­sent á milli ára en á móti vegur að hrein ný verð­tryggð lán dróg­ust saman um 37 pró­sent á verð­lagi hvors árs.

Óvænt lækkun húsnæðisliðar

Í grein eftir Jón Bjarka Bentsson, aðal­hag­fræð­ing Íslands­banka, sem birt­ist á heima­síðu bank­ans í dag segir að óvænt lækkun hús­næð­isliðar hafi vegið þungt í því hversu mik­ill munur var á verð­bólgu­spám og mæl­ingu Hag­stof­unnar í des­em­ber. „Lækkandi vextir á íbúða­lánum und­an­farin miss­eri koma af nokkrum krafti inn í mæl­ingu reikn­aðrar húsa­leigu nú um stundir,“ segir hann og bætir við að sú mæl­ing sam­an­standi í raun af tveimur þáttum, ann­ars vegar breyt­ingum á íbúða­verði næstu þrjá mán­uði á undan mæl­ing­ar­mán­uði og hins vegar 12 mán­aða hlaup­andi með­al­tali vaxta á íbúða­lánum.

Að hús­næð­isliðnum frá­töldum vó lið­ur­inn matur- og drykkj­ar­vörur þyngst til lækk­unar í mæl­ingu des­em­ber­mán­aðar. Það helsta í mán­uð­inum sem vó til hækk­unar á verð­bólgu voru flug­far­gjöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagstofa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár