Fleiri grunnskólakennarar án réttinda

Á sama tíma og grunn­skóla­nem­endur hafa aldrei verið fleiri hefur kenn­urum án kennslu­rétt­inda fjölgað.

Kennurum án kennslu­rétt­inda hefur fjölgað á hverju ári frá 2012 en fram að því hafði þeim fækkað frá 2008. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hag­stof­unnar. Samkvæmt þeim var átt­undi hver kenn­ari við grunn­skóla án kennslu­rétt­inda haustið 2018 og fjölg­aði um 214 á milli ára.

Grunn­skóla­nem­endur hafa aftur á móti aldrei verið fleiri, en frá árinu 1998 hefur þeim fjölgað um 8,2 pró­sent. Starfs­mönnum hefur fjölgað um 39,1 pró­sent á síð­ustu tutt­ugu árum. Fjölgun starfs­manna sem starfa við stuðn­ing hefur verið tölu­verð, meðal ann­ars hefur fjöldi skóla­sál­fræð­inga og náms­ráð­gjafa tvö­fald­ast og fjöldi stuðn­ings- og upp­eld­is­full­trúum fjölgað úr 247 í 1.161.

Karlmönnum fækkar

Kvenkyns skóla­stjórum hefur fjölgað jafnt og þétt frá árinu 1998 og eru nú 123. Á sama tíma hefur karl­kyns skóla­stjórum fækkað um 77 og voru 48 haustið 2018. Alls starfa 169 grunn­skólar á land­inu.

Á sama tíma og konum sem starfa við kennslu fjölg­aði um 1.300 hefur karl­mönnum í grein­inni fækkað um 200. Alls starfa nú 900 karl­menn við kennslu í grunn­skólum.

Aldrei fleiri með erlent móðurmál

Nemendur með erlent móð­ur­mál hafa aldrei verið fleiri. Þeim fjölg­aði um 10,6 pró­sent og voru tæp­lega 4.900 haustið 2018. Hag­stofan tekur þó fram að ein­hverjir þess­ara nem­enda séu tví­tyngdir og hafi einnig íslensku sem móð­ur­mál. Flestir þeirra sem hafa erlent móð­ur­mál tala pólsku, og þá hafa 350 fil­ippseysk mál og á þriðja hund­rað ensku, tælensku eða lit­há­ensku sem móð­ur­mál.

Nemendum með erlent rík­is­fang hefur einnig fjölgað jafnt og þétt og eru 2.500 tals­ins. Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar var fjöldi barna á grunn­skóla­aldri með erlendan bak­grunn rúm­lega 3.300 árið 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagstofa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár