Mannfjöldaspá Hagstofu gerir ráð fyrir fólksflótta árið 2026

Sér­fræð­ingur hjá Hagstofu segir að taka ætti spár stofn­un­ar­innar um fólks­fækkun vegna mik­ils brott­flutn­ings eftir fimm ár með fyr­ir­vara. Hins vegar er stuðst við þessar spár í fram­tíð­ar­mati Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar á íbúða­þörf.

Taka ætti spár Hagstofu um fólksfækkun eftir fimm ár með miklum fyrirvara, samkvæmt sérfræðingi hjá Hagstofu.
Taka ætti spár Hagstofu um fólks­fækkun eftir fimm ár með miklum fyr­ir­vara, sam­kvæmt sér­fræð­ingi hjá Hagstofu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Mann­fjölda­spá Hagstofu gerir ráð fyrir fækkun íbúa á tíma­bil­inu 2026-2030 þar sem búist er við að fleiri muni flytja frá land­inu heldur en til þess. Ómar Harð­ar­son, sér­fræð­ingur hjá stofn­un­inni, segir að taka ætti þessum spám með fyr­ir­vara, þær séu til­komnar vegna þess að gera þurfi ráð fyrir að hluti erlendra rík­is­borg­ara sem setj­ast hér að flytji út aftur í spálík­an­inu. Þrátt fyrir það hefur Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun mann­fjölda­spá Hagstofu til grund­vallar í sinni spá á upp­safn­aðri hús­næð­is­þörf.

Samkvæmt mann­fjölda­spánni, sem kom út á mánu­dag­inn, er gert ráð fyrir tölu­verðri fjölgun íbúa á næstu árum, sem drifin verður áfram af fjölgun aðfluttra umfram brott­fluttra. Búist er við að fjölg­unin nái hámarki á milli áranna 2025 og 2026, en þá er gert ráð fyrir að íbúum fjölgi um 13 þús­und manns.[adspot]

Á milli áranna 2026 og 2029 gerir spálíkan Hagstofu hins vegar við að íbúum fækki á milli ára, þar sem mun fleiri muni flytja frá land­inu heldur en til þess. Eftir níu ár er svo búist við stöðugri fólks­fjölgun, sem og búferla­flutn­ingum til og frá lands­ins, út spá­tíma­bilið. Þróunina má sjá á mynd hér að neðan. Samkvæmt henni fara sveiflur í mann­fjölda­þróun á næstu árum að miklu leyti eftir fólks­flutn­ingum, en búist er við að fjöldi fæddra umfram lát­inna muni hald­ast nokkuð stöð­ugur á sama tíma.

Í sam­tali við Kjarnann segir Ómar Harð­ar­son, sér­fræð­ingur hjá Hagstofu, að mann­fjölda­spáin byggi á tveimur spám. Annars vegar er það skamm­tíma­spá, sem byggir meðal ann­ars á hag­fræði­legum stærðum og mati á fólks­flutn­ingum á næstu árum vegna þeirra, og hins vegar lang­tíma­spánni, sem byggir meira á áætl­aðri þróun í ald­urs­sam­setn­ingu og frjó­semi.

Ómar segir þró­un­ina í lík­an­inu á tíma­bil­inu 2026 til 2029 vera vegna þess að Hag­stofan þurfi að taka til­lit til þess að fjöldi erlendra rík­is­borg­ara sem flytja hingað til lands á næstu árum flytji af landi brott innan nokk­urra ára. Væri það ekki gert gæti lang­tíma­spáin falið í sér ofmat á þróun mann­fjölda til lengri tíma. Samkvæmt honum þyrfti því að taka þró­un­ina á þessu tíma­bili með fyr­ir­vara.

Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun (HMS) gaf út grein­ingu um íbúða­þörf til árs­ins 2030 fyrr í ár, en þar er mann­fjölda­spá Hagstofu höfð til grund­vallar. Samkvæmt HMS er búist við að íbúða­þörf hér á landi nái hámarki árið 2025, en muni svo minnka á tíma­bil­inu 2026-2030 vegna minni fólks­fjölg­unar.

Konráð S. Guð­jóns­son, hag­fræð­ingur og aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs, vakti athygli á þessu mis­ræmi í væntri þróun aðfluttra umfram brott­fluttra á þessum ára­tug og hvernig hún getur haft áhrif á íbúða­þörf­ina hér­lendis í Twitter-færslu í dag. Samkvæmt henni þyrfti að byggja um 3-5.000 íbúðir á hverju ári til árs­ins 2026, á meðan nær engin þörf væri á nýjum íbúðum árin 2027-2030. Twitter-færsl­una má sjá hér að ofan.

Athuga­semd rit­stjórnar: Í upp­haf­legu fyr­ir­sögn frétt­ar­innar stóð að Hagstofa hefði litla trú á eigin mann­fjölda­spá fyrir tíma­bilið 2026-2030. Sú full­yrð­ing er ekki rétt og hefur fyr­ir­sögn­inni því verið breytt í sam­ræmi við það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagstofa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár