Mikill vöxtur í hugverkaiðnaði, sjávarútvegi og álframleiðslu

Samhliða veik­ari krónu hafa tekjur í helstu útflutn­ings­greinum okkar, að ferða­þjón­ust­unni und­an­skil­inni, auk­ist tölu­vert á síð­ustu mán­uðum. Hug­verka­iðn­aður er nú orðin næst stærsta útflutn­ings­grein lands­ins.

Velta í sjávarútvegi frá janúar til september var meiri í ár heldur en nokkru sinni fyrr.
Velta í sjáv­ar­út­vegi frá jan­úar til sept­em­ber var meiri í ár heldur en nokkru sinni fyrr. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Heild­ar­veltan í sjáv­ar­út­vegi, álf­ram­leiðslu og hug­verka­iðn­aði á fyrstu átta mán­uðum árs­ins er nú tæpum fimmt­ungi hærri en hún var á sama tíma í fyrra og 15 pró­sentum hærri en á sama tíma­bili árið 2019, sam­kvæmt nýbirtum tölum Hagstofu. Ef miðað er við veltu í atvinnu­grein­unum frá jan­úar til sept­em­ber í ár er hug­verka­iðn­aður næst stærsta útflutn­ings­grein lands­ins, á eftir sjáv­ar­út­vegi.

Krónan enn veikari en 2019

Gengi íslensku krón­unnar hefur tekið nokkrum sveiflum á þessu tíma­bili, en það var um níu pró­sentum lægra frá jan­úar til sept­em­ber í fyrra en það var á sama tíma­bili árið 2018, sam­kvæmt geng­is­skrán­ingu Seðla­bank­ans.

Síðan þá hefur veik­ing krón­unnar gengið að ein­hverju leyti til baka, en í ágúst var hún þó enn sjö pró­sentum veik­ari en hún var í sama mán­uði árið 2019.

Sjávarútvegur stærstur, svo hugverkaiðnaður

Á meðan krónan hefur veikst hefur veltan í helstu útflutn­ings­grein­unum að ferða­þjón­ust­unni und­an­skil­inni, það er að segja sjáv­ar­út­vegs, hug­verka­iðn­aðar og álf­ram­leiðslu, auk­ist stöðugt. Samkvæmt veltu­tölum Hagstofu hefur sjáv­ar­út­vegur verið stærsta útflutn­ings­greinin það sem af er ári, en hann velti 283 millj­örðum króna frá jan­úar til sept­em­ber.

Tækni- og hug­verka­iðn­að­ur­inn er hins vegar ekki langt undan, en veltan í þeim atvinnu­flokki nam 259 millj­örðum króna á sama tíma. Í þriðja sætið kemur svo ferða­þjón­ustan með 225 millj­arða króna veltu á fyrstu átta mán­uðum árs­ins, en álf­ram­leiðslan er í því fjórða með 184 millj­arða króna veltu.

Sam­an­lögð velta álf­ram­leiðslu, hug­verka­iðn­aðar og sjáv­ar­út­vegs­ins á þessu tíma­bili var 18 pró­sentum hærra en á sama tíma í fyrra. Umfang þess­ara greina hefur ekki auk­ist jafn mikið á þessu tíma­bili á síð­ustu tíu árum, en til sam­an­burðar dróst heild­ar­velta þeirra saman um tvö pró­sent í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagstofa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár