Hagstofan leiðréttir tölur í þriðja sinn á nokkrum vikum

Eyðsla útlend­inga á greiðslu­kortum í ágúst 2019 var minni en í ágúst 2018, ekki meiri líkt og Hagstofa Íslands hélt fram fyrir viku síðan. Þetta er í þriðja sinn á örfáum vikum sem Hag­stofan reiknar vit­laust.

Ferðamenn eyddu minna en áður var haldið fram í ágúst síðastliðnum.
Ferða­menn eyddu minna en áður var haldið fram í ágúst síð­ast­liðnum. Mynd: Bára Huld Beck

Hagstofa Íslands hefur birt leið­rétt­ingu á útreikn­ingum sínum á veltu erlendra greiðslu­korta.

Fyrri frétt stofn­un­ar­innar sem birt var 13. sept­em­ber hafði sagði að velta erlenda greiðslu­korta hér­lendis, sem segir meðal ann­ars til um hversu mikið ferða­menn eyða á Íslandi, hafi auk­ist um 4,7 pró­sent í ágúst 2019. Nú hefur sú frétt verið leið­rétt og Hag­stofan segir nú að velta erlendra greiðslu­korta hafi minnkað um 2,7 pró­sent. Því skeik­aði 7,4 pró­sentu­stigum á fyrri útreikn­ingum og þeim nýju og fyrir liggur að eig­endur erlendra greiðslu­korta eyddu minna í ágúst 2019 en í ágúst 2018, ekki meira.

Þá liggur nú fyrir að vöxt­ur­inn í veltu erlendra greiðslu­korta var ekki 5,1 pró­sent í júlí­mán­uði líkt og fyrri tölur höfðu haldið fram heldur lækk­aði veltan um 0,7 pró­sent. Þar er um við­snún­ing upp á 5,8 pró­sentu­stig að ræða. Í þessum tölum hafa við­skipti við íslensk flug­fé­lög verið tekin út úr velt­unni, til að gefa betri mynd af eyðslu útlend­inga á Íslandi.

Í frétt Hag­stof­unnar sem birt­ist í fag segir að áður birtar tölur hafi byggt á villu í gögnum frá greiðslu­korta­fyr­ir­tækjum en að sú villa hafi nú verið leið­rétt.

Reiknuðu hagvöxt vitlaust, tvisvar

Þann 3. sept­em­ber síð­ast­lið­inn leið­rétti Hagstofa Íslands tölur um hag­vöxt á öðrum árs­fjórð­ungi sem hún birti upp­haf­lega nokkrum dögum áður. Í ljós hafði komið að hag­vöxtur á árs­fjórð­ungnum var 2,7 pró­sent en ekki 1,4 pró­sent líkt og sagði í fyrri til­kynn­ingu hennar.

Þegar sú til­kynn­ingin var birt voru fyrri nið­ur­stöður um hag­vöxt á fyrsta árs­fjórð­ungi einnig leið­rétt­ar. Í end­ur­skoð­aðri nið­ur­stöðu Hag­stof­unnar kom í ljós að hag­vöxtur á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins hafi verið nei­kvæður um 0,9 pró­sent en ekki jákvæður um 1,7 pró­sent líkt og fyrri nið­ur­stöður hafi sagt til um.

Því liggur fyrir að Hag­stofa Íslands hefur reiknað út rangan hag­vöxt fyrir báða þá árs­fjórð­unga sem liðnir eru á þessu ári.

Í frétt á vef stofn­un­ar­innar vegna þessa sagði: „Hag­stofu Íslands þykir miður að mis­tök hafi orðið og reynir eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að slíkt end­ur­taki sig.“

Að teknu til­liti til breyt­ing­anna liggur fyrir að hag­vöxtur á fyrri hluta árs var ekki 0,3 pró­sent líkt og fyrri birtar nið­ur­stöður höfðu sagt til um, heldur 0,9 pró­sent.

Mismunandi skekkjur

Skekkjan í útreikn­ingum stofn­un­ar­innar vegna hag­vaxtar fyrsta árs­fjórð­ungs, sem var upp á 2,6 pró­sentu­stig, var vegna þess að „gögn inn­i­halda upp­­lýs­ingar um umfang og fram­vindu bygg­ing­­ar­fram­­kvæmda sem náðu yfir lengra tíma­bil en sam­svarar við­mið­un­­ar­­tíma­bili þjóð­hags­­reikn­inga. Hefur það nú verið leið­rétt á grund­velli nýrra gagna. Sam­­kvæmt end­­ur­­skoðun mæld­ist vöxtur íbúða­fjár­­­fest­ingar á 1. árs­fjórð­ungi 22,2 pró­­sent borið saman við 58,4 pró­­sent sam­­kvæmt áður útgefnum töl­u­m.“

Skekkjan í útreikn­ingum á hag­vexti á öðrum árs­fjórð­ungi átti rætur sínar að rekja til „mis­taka sem urðu til þess að fjár­muna­myndun tíma­bils­ins reynd­ist van­metin um sem nemur 9,1 millj­arði króna á verð­lagi árs­ins. Áhrifin koma fram í tveimur und­ir­liðum fjár­muna­mynd­un­ar, fjár­muna­myndun hins opin­bera og í atvinnu­vega­fjár­fest­ingu, nánar til­tekið í fjár­muna­myndun í skipum og flug­vél­um. Eftir leið­rétt­ingu mælist 16,6 pró­sent vöxtur í fjár­muna­myndun hins opin­bera og 26,5 pró­sent sam­dráttur í atvinnu­vega­fjár­fest­ingu. Sam­dráttur í heild­ar­fjár­muna­myndun mælist 9,2 pró­sent, borið saman við 14,2 pró­sent sam­kvæmt áður birtum nið­ur­stöð­um. Eftir leið­rétt­ingu mælist vöxtur lands­fram­leiðsl­unnar 2,7 pró­sent að raun­gildi á 2. árs­fjórð­ungi, sam­an­borið við 1,4 pró­sent sam­kvæmt áður birtum nið­ur­stöð­um. Lands­fram­leiðslan á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2019 jókst um 0,9 pró­sent borið saman við fyrstu sex mán­uði árs­ins 2018 en sam­kvæmt áður birtum nið­ur­stöðum mæld­ist breyt­ing lands­fram­leiðsl­unnar 0,3 pró­sent á tíma­bil­in­u.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagstofa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár