Gistinóttum erlenda ferðamanna fækkar í fyrsta skipti í áratug

Erlendir ferða­menn eyddu færri nóttum á skráðum gisti­stöðum í júní í ár sam­an­borið við í júní í fyrra. Þetta er í fyrsta skipti sem gistin­óttum erlendra ferða­manna fækkar milli júní­mán­aða frá 2008.

Grand hótel í Reykjavík. Fjöldi hótelgistinga hefur aukist um 4%, en gistinætur aukast mest meðal íslenskra ferðamanna.
Grand hótel í Reykja­vík. Fjöldi hót­elgist­inga hefur auk­ist um 4%, en gistinætur aukast mest meðal íslenskra ferða­manna.

Fjöldi skráðra gistin­átta erlendra ferða­manna fækk­aði milli júní­mán­aða 2017 og 2018, í fyrsta skipti í tíu ár. Samhliða því fjölg­aði þó gistin­óttum Íslend­inga, en þær hafa aldrei verið fleiri. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu sem birtar voru í dag.

Hótelgistingum fjölgar um 4%

Samkvæmt talna­birt­ing­unni hélst fjöldi gistin­átta nær óbreyttur milli júní­mán­aða í ár og í fyrra, en hann jókst lít­il­lega úr 1,189 millj­ónum upp í 1,195 millj­ónum nótta. Mest fjölg­aði gistin­óttum á hót­elum á tíma­bil­inu, eða um 4%. Rúmur helm­ingur allra gistin­átta voru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða um 54%.

Framboð gisti­rýmis, mælt í fjölda her­bergja, jókst um 5,5% á tíma­bil­inu. Þar sem fjöldi gistin­átta hélst nær óbreyttur lækk­aði því her­bergj­a­nýt­ingin, en hún var 77,7% í ár miðað við 80,9% í fyrra. Nýtingin í júní var besta á Suð­ur­nesjum, eða 84,7%.

Gistinætur Íslendinga aukast mikið

Af heild­ar­fjölda gistin­átta voru Íslend­ingar með 163 þús­und þeirra, en það er 21% aukn­ing frá því á árinu áður. Þetta er mesta aukn­ing í fjölda inn­lendra gistinótta frá fjölgun erlendra ferða­manna til lands­ins árið 2010 og jafn­framt mesti fjöldi inn­lendra gistin­átta sem mælst hefur í júní­mán­uði.

Á hinn bóg­inn nam fjöldi erlendra gistin­átta 835 þús­undum, sem jafn­gildir 3% fækkun frá því á síð­asta ári. Þetta er lang­mesta fækkun sem mælst hefur milli júní­mán­aða frá því mæl­ingar Hagstofu hófust árið 1998. Mynd af þró­un­inni má sjá hér að neðan.

Fjöldinn hefur ekki sveifl­ast mikið milli ára, en fækk­aði um 1% milli áranna 2007 og 2008. Þess utan hefur hann auk­ist með nokkuð stöð­ugum hætti á síð­ustu tveimur ára­tugum, en hraða tók á henni eftir árið 2010.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár