2,7 milljónir heimsóttu Ísland í fyrra

Fjöldi ferða­manna jókst um fjórð­ung í fyrra, en aukn­ingin er minni í gistin­óttum, útgjöldum ferða­manna og hlut­deild ferða­þjón­ust­unnar í lands­fram­leiðslu.

Alls fjölgaði ferðamönnum um 25,4% í fyrra.
Alls fjölg­aði ferða­mönnum um 25,4% í fyrra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tæpar 2,7 millj­ónir erlendra ferða­manna komu til lands­ins í fyrra, sem er rúm fjórð­ungs­hækkun frá árinu 2016. Þrátt fyrir það hækk­aði hlut­deild ferða­þjón­ustu í lands­fram­leiðslu lítið milli ára sem og útgjöld ferða­mann­anna auk fjölda gistinótta. Þetta kemur fram í nýjum ferða­þjón­ustu­reikn­ingum Hagstofu.

Samkvæmt Hagstofu er reikn­ing­unum ætlað að leggja mat á hlut ferða­þjón­ust­unnar í hag­kerf­inu og þróun hennar sem atvinnu­greinar. Bráða­birgða­nið­ur­stöður þeirra gefa til kynna að fram­leiðslu­verð­mæti ferða­þjón­ust­unnar hafi numið 8,6% af lands­fram­leiðslu í fyrra, til sam­an­burðar við 8,1% árið 2016. Aukning í hlut­deild­inni var nokkuð minni árið 2017 en árin 2015 og 2016 en aftur á móti sam­bæri­leg því sem hún var árin 2012 til 2014.

Ferða­þjón­ustan heldur sínum stað sem næst stærsta atvinnu­grein Íslands ef miðað er við hlut­deild af lands­fram­leiðslu, en aðeins heild-og smá­sölu­verslun er stærri með tæp 10% hlut. Þó tekur Hagstofa fram að hafa þurfi í huga að ferða­þjón­usta sé ekki til sem sér­stök atvinnu­grein í hefð­bund­inni atvinnu­greina­flokkum, heldur sé hún sam­sett grein þar sem lagt sé sam­ant til­tekið hlut­fall af starf­semi ann­arra atvinnu­greina.

Útgjöld erlendra ferða­manna í fyrra voru metin á 376,6 millj­arða króna, en þau juk­ust um tæp 9% milli ára. Útgjöldin voru hlut­falls­lega mest í þjón­ustu­greinum sem beint tengj­ast ferða­mönnum. Sömu­leiðis eru erlendir ferða­menn mik­il­væg tekju­lind veit­inga­þjón­ustu hér­lendis, en í fyrra stóðu þeir undir 46% af starf­sem­inni.

Mest var þó aukn­ingin í komum erlendra ferða­menna, en þær voru 2.690.465 tals­ins árið 2017 sem var 25,4% aukn­ing frá fyrra ári. Flestir ferða­menn eru gistifar­þegar sem koma til lands­ins með milli­landa­flugi. Gistifar­þegum fjölg­aði um 24,1% sem er mun meiri en 7,3% aukn­ingin í fjölda gistinótta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár