Töluverður munur á atvinnuleysistölum Vinnumálastofnunar og Hagstofunnar

Almennt atvinnu­leysi í júní var 7,5 pró­sent sam­kvæmt Vinnu­mála­stofnun og 9,5 pró­sent með til­liti til hluta­bóta­leiðar. Samkvæmt Hag­stof­unni var atvinnu­leysi 3,5 pró­sent. Brott­falls­skekkja gæti hafa leitt til van­mats á atvinnu­leysi hjá Hag­stof­unni.

Mikill munur er á mældu atvinnu­leysi á Íslandi eins og það birt­ist í tölum frá Vinnu­mála­stofnun ann­ars vegar og í tölum frá Hag­stof­unnar hins vegar. Almennt atvinnu­leysi í júní­mán­uði mæld­ist 7,5 pró­sent hjá Vinnu­mála­stofnun og ef til­lit er tekið til hluta­bóta­leiðar stjórn­valda var atvinnu­leysi 9,5 pró­sent. Þessar tölur koma úr mán­að­ar­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar sem birt var fyrr í mán­uð­inum. Samkvæmt nið­ur­stöðum vinnu­mark­aðs­rann­sóknar Hag­stof­unnar fyrir júní sem birtar voru í gær mæld­ist atvinnu­leysi í mán­uð­inum hins vegar 3,5 pró­sent.

Reglu­lega spretta upp umræður um mun á atvinnu­leysis­tölum stofn­an­anna en ástæð­una má rekja til þess að mæl­ing­arnar eru fram­kvæmdar á ólíkan hátt. Kjarninn hafði sam­band við starfs­fólk Hag­stof­unnar til að reyna að kom­ast að því í hverju mun­ur­inn liggur.

Rannsóknin framkvæmd í hverri viku frá 2003

Í svari frá Hag­stof­unni segir að vinnu­mark­aðs­rann­sókn Hag­stof­unnar sé hluti af vinnu­mark­aðs­rann­sókn Evr­ópu­sam­bands­ins og að hún fylgi alþjóð­legum skil­grein­ingum slíkra rann­sókna. „Rann­sóknin er fram­kvæmd á sam­bæri­legan hátt í öllum löndum evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins og eru spurn­ingar sam­bæri­legar milli land­anna. Þetta er gert til að fá gögn sem hægt er að nota í sam­an­burði milli landa. Hagstofa Íslands hefur fram­kvæmt Vinnu­mark­aðs­rann­sókn sam­fellt allar vikur árs­ins frá árinu 2003.“

Samkvæmt skil­grein­ing­unni sem Hag­stofan notar þá telj­ast þeir atvinnu­lausir sem voru án atvinnu í við­mið­un­ar­viku rann­sókn­ar­innar. Atvinnu­lausir telj­ast þeir sem „höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu (í eina klukku­stund eða lengur) sem laun­þegi eða sjálf­stætt starf­andi, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan 3 mán­aða.“

Varðandi síð­asta hluta skil­grein­ing­ar­innar þá telj­ast þeir ein­stak­lingar sem komnir eru með vinnu sem hefst innan þriggja mán­aða atvinnu­lausir. Þeir ein­stak­lingar sem hafa fengið vil­yrði um vinnu sem hefst eftir lengri tíma en þrjá mán­uði eru taldir óvirkir og því utan vinnu­afls. Það sama gildir um þá sem ekki geta hafið störf innan tveggja vikna, þeir ein­stak­lingar telj­ast óvirkir. Samkvæmt skil­grein­ingu Vinnu­mála­stofn­unar getur fólk verið atvinnu­laust að hluta en ekki sam­kvæmt skil­grein­ingu Hag­stof­unnar.

Þá er líka munur á fjölda þeirra sem eru til skoð­unar hjá hvorri stofnun fyrir sig. Vinnu­mark­aðs­rann­sókn Hag­stof­unnar miðar við áætl­aðan með­al­fjölda ein­stak­linga á aldr­inum 16 til 74 ára fyrir hvern mánuð. Áætluð mann­aflstala Vinnu­mála­stofn­unar miðar við fólk á aldr­inum 18 til 69 ára.

Miklir fyrirvarar með nýjustu niðurstöðum

Í frétt á vef Hag­stof­unnar frá því í gær eru settir fram ákveðnir fyr­ir­varar vegna nið­ur­staðna vinnu­mark­aðs­rann­sóknar. Þar segir að árs­tíð­ar­leið­réttar tölur geti verið óná­kvæmar við óvenju­legar aðstæður líkt og nú eru á vinnu­mark­aði. Árs­tíð­ar­leið­réttar tölur gera ráð fyrir hefð­bundnum sveiflum á vinnu­mark­aði, til dæmis auknum fjölda atvinnu­lausra þegar náms­fólk hefja leit að sum­ar­vinnu. Og eins og segir á vef Hag­stof­unnar: „Slíkar leið­rétt­ingar duga skammt þegar óvæntir og ein­stakir atburðir hafa áhrif á atvinnu­stöðu fólks.“

Þá er einnig gerður fyr­ir­vari vegna mögu­legrar brott­falls­skekkju. „Vís­bend­ingar eru um brott­falls­skekkju í nið­ur­stöð­unum sem lýsa sér í því að ein­stak­lingar sem fengu greiddar atvinnu­leys­is­bætur í júní voru ólík­legri til að svara spurn­inga­lista rann­sókn­ar­innar heldur en þeir sem ekki fengu greiddar þess háttar bætur. Þetta kann að leiða til van­mats á atvinnu­leysi fyrir júní­mánuð.“

Í sam­tali við Kjarnann segir Anton Örn Karlsson, deild­ar­stjóri hjá Hag­stof­unni, það ekki liggja fyrir hversu mikil áhrif mögu­leg brott­falls­skekkja hafi á nið­ur­stöð­urnar. Tölurnar séu bráða­birgða­tölur og þær verði end­ur­skoð­aðar áður en yfir­lit yfir árs­fjórð­ung­inn verður birt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár