Verðmiðinn á verksmiðjunni í Helguvík hefur lækkað um 1,4 milljarða

Kís­il­málm­verk­smiðja United Silicon hefur hríð­fallið í verði síð­asta hálfa árið og er nú metin á rúm­lega 20 pró­sent lægra verði en í lok mars síð­ast­lið­ins. Arion banki stefnir að því að selja hana, en rúm þrjú ár er síðan að slökkt var á verk­smiðj­unni.

Arion banki, sem heldur á kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon í Helguvík, hefur fært niður virði hennar í bókum sínum um 1,4 millj­arða króna á hálfu ári. Í lok mars síð­ast­lið­ins var virðið sagt vera 6,9 millj­arðar króna en í nýjasta upp­gjöri bank­ans er það bók­fært á 5,5 millj­arða króna, eða 41 milljón evra.

Í upp­gjöri Arion banka fyrir fyrstu níu mán­uði árs­ins kemur fram að Stakks­berg ehf., félag bank­ans sem heldur á verk­smiðj­unni, sé á loka­stigum þess að ljúka nýju umhverf­is­mati vegna hennar. Til að áform bank­ans vegna verk­smiðj­unnar gangi eftir þar Reykja­nes­bær þó að breyta deiliskipu­lagi svo hægt sé að ljúka við þær lag­fær­ingar sem Arion banki vill gera á henni til að koma starf­sem­inni aftur í gang.

[adspot]Á meðal þess sem stefnt var að því að gera vegna þessa var að byggja 52 metra háan skor­stein sem draga ætti úr mengun frá verk­smiðj­unni, þar á meðal lykta­meng­un. Til sam­an­burðar er Hall­gríms­kirkja 74,5 metrar á hæð. Mikil and­staða hefur verið við það á meðal íbúa Reykja­nes­bæjar að verk­smiðjan verði end­ur­ræst og hávær krafa hefur verið um íbúa­kosn­ingu um starf­sem­ina.

Arion banki telur íbúakosningu baka bótaskyldu

Arion banki hefur ekki viljað láta undan kröfum um slíka kosn­ingu. Í bréfi sem Stakks­berg sendi til Skipu­lags­stofn­unar í fyrra sagð­i: „Verk­smiðjan hefur þegar verið byggð á lóð­inni fyrir um 22 millj­arða króna. Um er að ræða rétt­indi sem njóti verndar eign­ar­rétt­ar­á­kvæðis 72. gr. stjórn­ar­skrár­innar og atvinnu­rétt­indi sem njóti verndar 75. gr. stjórn­ar­skrár. Um slík rétt­indi verði ekki kosið í almennum kosn­ingum að mati Stakks­berg ehf.“

Ef til kosn­inga kæmi þá taldi Stakks­berg að Reykja­nes­bær hefði bakað sér bóta­skyldu. Ef kosn­ing myndi leiða til þess að ekki væri hægt að starf­rækja þá verk­smiðju sem þegar hefur verið byggð á lóð­inni mun það að mati Stakks­berg ehf. leiða af sér skaða­bóta­skyldu gagn­vart eig­anda lóð­ar­innar[...]Sökin væri nokkuð aug­ljós enda um að ræða ásetn­ing til þess að koma í veg fyrir til­tekna starf­sem­i/­upp­bygg­ingu sem þegar hafði verið fall­ist á og hefði þegar leitt til veru­legrar fjár­fest­ing­ar.“

Meira en þrjú ár síðan að slökkt var á

Rúm þrjú ár eru síðan að kís­il­málm­verk­smiðj­unni, sem er stað­sett í Helgu­vík á Suð­ur­nesjum, var lok­að. Félagið utan um rekstur hennar var svo sett í þrot í jan­úar 2018.

[adspot]Fjöl­margir töp­uðu háum fjár­hæðum á ævin­týr­inu. Frjálsi líf­eyr­is­­­­­­sjóð­­­­­­ur­inn, sem fjár­­­­­­­­­­­festi 1.178 millj­­­­­­ónum króna í United Silicon, hefur fært niður virði þeirra hluta­bréfa og skulda­bréfa sem sjóð­­­­­­ur­inn á í félag­inu um 100 pró­­­­­­sent. Sömu sögu er að segja af Eft­ir­­­­­­launa­­­­­­sjóði félags íslenskra atvinn­u­flug­­­­­­manna (EFÍA). Þar nemur nið­­­­­­ur­­­­­­færslan einnig 100 pró­­­­­­sent­­­­­­um.

Líf­eyr­is­­­­­­sjóð starfs­­­­­­manna Bún­­­­­­að­­­­­­ar­­­­­­banka Íslands (LSBÍ) fjár­­­­­­­­­festi einnig í verk­efn­inu. Arion banki rekur alla sjóð­ina þrjá, starfs­­­­­­fólk bank­ans gegnir stjórn­­­­­­un­­­­­­ar­­­­­­stöðum í þeim og þeir eru til húsa í höf­uð­­­­­­stöðvum hans í Borg­­­­­­ar­­­­­túni.

Sá sem stóð fyrir verk­efn­inu, Magnús Garð­ars­son, hefur verið til rann­sóknar vegna gruns um að hafa framið stór­felld auðg­un­ar­brot og að hafa svikið út háar fjár­hæð­ir. Þrotabú United Silicon hefur einnig stefnt honum fyrir meint fjár­svik hans. Á meðal þess sem rök­studdur grunur er um er að Magnús hafi, í starfi sínu sem for­­stjóri United Silicon, falsað reikn­inga og und­ir­­skrift­ir, átt við lána­samn­inga og búið til gervi­lén í við­­leitni sinni til að draga að sér fé úr fyr­ir­tæk­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár