Björn Leví: „Ásmundur Friðriksson er lýðskrumari af verstu gerð“

„Engar áhyggjur krakkar, það er ekki bannað að tala um spill­ingu í Evr­ópu­ráðs­þing­inu öfugt við það íslenska,“ segir Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir um bréf Ásmundar Friðiks­sonar. Björn Leví Gunn­ars­son segir bæði siða­nefnd og meiri­hluta for­sætis­nefndar hafa verið í rugl­inu.

Björn Leví: „Ásmundur Friðriksson er lýðskrumari af verstu gerð“
Ásmundur Frið­riks­son Þing­mað­ur­inn skrif­aði bréf til Evr­ópu­ráðs­þings­ins þar sem bent var á brot Þór­hildar Sunnu á siða­reglum. Mynd: Morgunblaðið/Eggert

„Þetta bréf hans er algjör við­bjóður, ofan í allt það sem á undan hefur gengið þá dirf­ist hann til þess að leit­ast eftir refs­ingu á vegum Evr­ópu­ráðs­þings­ins gagn­vart Sunnu,“ skrifar Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, um Ásmund Frið­riks­son, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks í færslu á Facebook í dag. „Þvílíka og aðra eins mann­leysu hef ég aldrei á ævi minni hitt.“

Ásmundur sendi for­seta Evr­ópu­ráðs­þings­ins erindi þar sem hann lét vita af broti Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, þing­manns Pírata, á siða­reglum Alþingis. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Siða­nefnd Alþingis komst að þeirri nið­ur­stöðu í vor að Þór­hildur Sunna hefði brotið gegn siða­reglum fyrir alþing­is­menn þegar hún sagði í Silfrinu þann 25. febr­úar 2018 að uppi væri rök­studdur grunur um að Ásmundur hefði dregið sér fé. Vörðuðu ummælin 4,6 milljón króna end­ur­greiðslur á akst­urs­kostn­aði Ásmundar. For­sætis­nefnd féllst í kjöl­farið á nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar.

„Engar áhyggjur krakkar, það er ekki bannað að tala um spill­ingu í Evr­ópu­ráðs­þing­inu öfugt við það íslenska,“ skrif­aði Þór­hildur Sunna í færslu á Facebook í dag.

Björn Leví reis sam­flokks­manni sínum til varnar á Facebook í dag. „Þetta mál hingað til hefur verið einn risa­vax­inn farsi sem byrj­aði á sjálf­sagðri beiðni um rann­sókn á akst­urs­kostn­aði þing­manna eftir svar sem ég fékk frá for­seta Alþingis, þar sem sást að starfs­kostn­aður þing­manna jókst til­finn­an­lega rétt fyrir kosn­ingar,“ skrifar hann. „Samkvæmt lögum á þing­maður ein­ungis að geta fengið end­ur­greitt vegna kostn­aðar sem hlýst vegna starfa. Að flakka fram og til baka á kosn­inga­fundi sem fram­bjóð­andi eru ekki þing­störf. Að nota ráð­herra­bíl til þess eins og núver­andi fjár­mála­ráð­herra gerði passar ekki heldur við þær reglur.“

„Ég veit ekki hvort er verra, að vera svona heimskur eða vera svona vondur nema hvort tveggja sé“

Segir hann ljóst að Ásmundur sjálfur hafi við­ur­kennt að hluti af greiðsl­unum hafi verið vafa­samar og að hann hafi end­ur­greitt 180 þús­und krónur vegna þess. „Ásmundur Frið­riks­son er lýð­skrum­ari af verstu gerð. Heim­sóknir hans út um allt kjör­dæmið eru ekk­ert annað en atkvæða­veiðar sem kosta him­in­háar upp­hæðir í akst­urs­greiðslur og skila engu í þing­störfin. Skiln­ings­leysið gagn­vart þeirri máls­með­ferð sem var í þessu máli í for­sætis­nefnd og siða­nefnd hér á landi hentar honum auð­vitað gríð­ar­lega vel. Það skiln­ings­leysi er annað hvort ein­lægt, sem segir þá sitt um gáfur (eða skort á þeim) eða þá að það er vilj­andi, sem segir þá sitt um hans innri mann. Ég veit ekki hvort er verra, að vera svona heimskur eða vera svona vondur nema hvort tveggja sé.“

Björn Leví Gunn­ars­sonÞing­mað­ur­inn seg­ist „hrauna yfir Ása“ af fullri yfir­vegun.

Björn Leví segir siða­nefnd Alþingis hafa verið „í rugl­inu“ við afgreiðslu máls­ins og sömu­leiðis meiri­hluta for­sætis­nefndar fyrir að hafa ekki tekið til­lit til sann­leiks­gildis ummæla Þór­hildar Sunnu. „Undir engum kring­um­stæðum þá getur það talist brot á siða­reglum að segja satt. Því skiptir mjög miklu máli hvort Sunna sagði satt eða ekki og meti nú hver fyrir sig miðað við játn­ingu Ásmundar og end­ur­greiðslu hans á vafasömum kostn­að­ar­greiðslum. Allir sem eru ekki hlut­drægir í mál­inu ættu að sjá hið aug­ljósa, Sunna var nákvæm og mál­efna­leg í gagn­rýni sinni í þessu máli.“

Loks seg­ist hann ekki skamm­ast sín fyrir að „hrauna yfir Ása“ og að skrifin hafi verið með fullri yfir­vegun. „Kannski finnst þetta ein­hverjum óvægin gagn­rýni. Þá er það bara nákvæmur skiln­ingur á því sem ég er að reyna að segja. Ég skil ekki af hverju ég ætti að halda eitt­hvað aftur af skoð­unum mínum í þessu máli. Það gerir nákvæm­lega ekk­ert fyrir heið­ar­leika að halda aftur af gagn­rýni í þessu máli, svo alvar­legt er það. Að því sögðu. Gleðileg jól.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár