FME gerði athugasemdir við framkvæmd virðismats hjá Arion banka

Athugun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á Arion banka sýndi að bank­inn fram­kvæmdi ekki virð­is­mat útlána með full­nægj­andi hætti. Meðal ann­ars var óvissa um trygg­ingar vegna útláns og trygg­inga­skrán­ing­ar­kerfi end­ur­spegl­aði ekki stöðu við­skipta­manns með réttum hætti.

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) gerði athuga­semdir við fram­kvæmd virð­is­mats útlána hjá Arion banka sem eft­ir­litið lagði mat á í vett­vangs­at­hugun sinni í bank­ann í febr­úar og mars á þessu ári. Þetta kemur fram í gagn­sæ­istil­kynn­ingu sem eft­ir­litið hefur birt á vef sínum, en nið­ur­staða athug­un­ar­innar lá fyrir í októ­ber 2019.

Í athug­un­inni tók FME úrtak útlána til fimm við­skipta­manna Arion banka og aðila tengdum þeim og yfir­fór nið­ur­stöður virð­is­mats bank­ans með sér­stakri áherslu á bók­fært virði skuld­bind­ing­anna miðað við 31. des­em­ber 2018. Auk þess var skoðuð fram­kvæmd virð­is­mats útlána í úrtaki sem snéri að verk­lagi og með­höndlun gagna, svo sem skrán­ingu gagna og skjala­vist­unar, fylgni við innri verk­lags­reglur og flokkun í lána­safns­skýrslu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Í frétt FME segir að eft­ir­litið hafi ekki gert athuga­semd við bók­fært virði útlána í úrtaki en á hinn bóg­inn geri það slíkar við fram­kvæmd virð­is­mats útlána í úrtaki og fór fram á við­eig­andi úrbætur. Þær athuga­semdir sem FME gerði snúa að því að trygg­inga­skrán­ing­ar­kerfi Arion banka end­ur­spegl­aði í nokkrum til­vikum ekki stöðu við­skipta­manna með full­nægj­andi hætti, virð­is­mats­ferli bank­ans var ekki fylgt nákvæm­lega í til­viki eins við­skipta­manns og óvissa var um virði trygg­inga vegna útlána til eins við­skipta­manns og aðila honum tengdum vegna þess að bank­inn hafði ekki tekið til­lit til virð­is­hækk­ana til­tek­inna trygg­inga. Þá var skil­yrðum fyrir lán­veit­ingum til tveggja við­skipta­manna ekki full­nægt að öllu leyti og mis­brestur var á flokkun lán­veit­inga til eins við­skipta­manns í lána­safns­skýrslu FME.

Athugasemdir vegna peningaþvættisvarna fyrr á þessu ári

Þetta er önnur gagn­sæ­istil­kynn­ingin vegna brotalama hjá Arion banka sem FME birtir á þessu ári. Kjarninn greindi frá því 31. maí síð­ast­lið­inn að FME hefði fram­kvæmt athugun á aðgerðum Arion banka gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Slík athugun á Arion banka hófst í októ­ber 2018 og leiddi til þess að eft­ir­litið gerði marg­hátt­aðar athuga­semdir við brotala­mir hjá bank­anum í jan­úar 2019.

Nið­ur­staða athug­unar FME á Arion banka var birt 29. maí síð­ast­lið­inn, rúmum fjórum mán­uðum eftir að nið­ur­staða athug­un­ar­innar lá fyrir. Það var gert að beiðni Arion banka sem vildi fá að bregð­ast við úrbóta­kröfum áður en nið­ur­staðan yrði gerð opin­ber. Bankinn seg­ist hafa brugð­ist við öllum úrbóta­kröfum. FME vill ekki svara því hvaða tímara­mma Arion banka var settur til að koma á úrbótum.

Í athugun FME á Arion banka kom meðal ann­ars fram að bank­inn hefði hefði ekki metið með sjálf­stæðum hætti hvort upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur við­skipta­vina væru réttar og full­nægj­andi og að þær upp­lýs­ingar hafi ekki verið upp­færðar með reglu­legum hætti, líkt og lög um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka gerðu ráð fyr­ir. Eft­ir­litið gerði einnig athuga­semd um að Arion banki hefði ekki sinnt rann­sókn­ar­skyldu sinni í til­viki erlends við­skipta­vin­ar, það taldi að reglu­bundið eft­ir­lit bank­ans með við­skipta­vinum hafi ekki full­nægt kröfum laga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka né að verk­lag í tengslum við upp­færslu á upp­lýs­ingum um við­skipta­vini hafi ekki verið full­nægt. Þá taldi FME að skýrslur Arion banka um grun­sam­legar og óvenju­legar færslur hefðu ekki verið full­nægj­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár