Alþingi gefi út dóma Yfirréttar

For­sætis­nefnd hefur falið Alþingi að birta dóma og skjöl frá 1563 og til alda­móta­árs­ins 1800 í til­efni hund­rað ára afmæli Hæsta­réttar á næsta ári. Samkvæmt nefnd­inni eru máls­skjölin ómet­an­legar heim­ildir um margt í íslensku þjóð­lífi þessa tíma.

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis skoðar nú að fela for­seta þings­ins að standa að útgáfu á dómum og skjölum Yfir­rétt­ar­ins á Íslandi í sam­starfi við Þjóða­skjala­safn Íslands og Sögu­fé­lagið. Yfir­rétt­ur­inn var æðsti dóm­stóll lands­ins sem starf­aði á Alþingi á árunum 1563 til 1800. 

Dómar rétt­ar­ins þykja ekki ein­ungis áhuga­verðir fyrir bæði rétt­ar­sögu og almenna sögu Íslands á þessum tíma, heldur eru máls­skjölin ómet­an­legar heim­ildir um margt í íslensku þjóð­lífi þessa tíma.

100 milljóna styrkur

Lengi hafa verið uppi fyr­ir­ætl­anir um útgáfu á dómum og skjölum Yfir­rétt­ar­ins og hófust áætl­anir um slíka útgáfu árið 1991. Það var þó ekki fyrr en árið 2011 sem fyrsta bindið af dómum Yfir­rétt­ar­ins kom út og stóð Alþingi fyrir þeirri útgáfu í sam­starfi við Sögu­fé­lag og Þjóð­skjala­safn.

Nú hefur for­sætis­nefnd lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um málið þar sem nefndin telur að vel færi á að ljúka því verki í til­efni af 100 ára afmæli Hæsta­réttar á næsta ári. Nefndin leggur því til að Alþingi sam­þykki að styðja útgáf­una fjár­hags­lega um 10 millj­ónir árlega næstu 10 ár.

Í grein­ar­gerð­inni í dag segir að með útgáfu skjala yfir­réttar feng­ist fyllri mynd af rétt­ar­sögu Íslands en nú er fyrir hendi. Gefin hafa verið út dómar Hæsta­réttar frá upp­hafi sem og dóma Lands­yf­ir­réttar, sem var­for­veri Hæsta­réttar Íslands á tíma­bil­inu 1800 til 1920.

Æðsti dómstóll Íslands fram til 1800

Eins og áður segir var Yfir­rétt­ur­inn æðsti dóm­stóll á Íslandi frá 1563 og gegndi því hlut­verki hæsta­réttar á Íslandi þar til Lands­yf­ir­réttur var settur á lagg­irnar árið 1800. Hann var stofn­aður á tíma þegar stjórn­sýsla kon­ungs var að byrja að mót­ast.

Í kon­ungs­bréfi Friðriks II. kemur fram að vandi væri oft fyrir fátæka lands­menn að sækja rétt sinn til Dan­merkur og því væri nauð­syn­legt að koma á yfir­dómi á Íslandi.

Til­gang­ur­inn var því að málum yrði vísað til hans fremur en til Kaup­manna­hafnar. Öll mál sem Yfir­rétt­ur­inn tók fyrir höfðu áður verið tekin til með­ferðar hjá lög­mönnum lands­ins og sýslu­mönnum á Alþingi en dóm­störfin fóru fram í Lögréttu.

Ómetanlegar heimildir um íslenskt þjóðlíf á þessum tíma

Í grein­ar­gerð þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar segir að heim­ild­ar­gildi dóma og máls­skjala Yfir­rétt­ar­ins er ótví­rætt. Mest hafi þó varð­veist af skjölum og dóma­bókum frá 18. öld en sú öld var tími mik­illa breyt­inga í Íslands­sög­unni, hug­myndir um rétt­ar­far breytt­ust og þar tók­ust á eldri laga­hug­myndir Íslend­inga og þeirra dönsku og norsku lög­bóka sem inn­leiddar voru eftir að ein­veldi var tekið upp árið 1662. 

Enn fremur segir í grein­ar­gerð­inni að ekki aðeins séu dóm­arnir áhuga­verðir fyrir bæði rétt­ar­sögu og almenna sögu Íslands á þessum tíma, heldur séu máls­skjölin ómet­an­legar heim­ildir um margt í íslensku þjóð­lífi þessa tíma. Máls­skjölin eru í raun beinar heim­ildir um hug­ar­far, rétt­ar­far og við­horf einnig heim­ildir um aðstæður, stétta­skipt­ingu, sam­göngur, búskap­ar­hætti og margt fleira.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár