Ásjárvert um mann á miðjum aldri

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um Ör eftir Auði Övu Ólafs­dóttur sem sýnt er í Þjóð­leik­hús­inu.

Þjóðleikhúsið: Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur)

Höfundur: Auður Ava Ólafs­dóttir

Leik­stjórn: Ólafur Egill Egilsson

Leikmynd og bún­ingar: Sigríður Sunna Reyn­is­dóttir

Tónlist: Damien Rice

Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason

Myndband Elmar Þór­ar­ins­son

Hljóð­mynd: Aron Þór Arn­ars­son

Leikarar: Baldur Trausti Hreins­son, Guðrún Snæ­fríður Gísla­dóttir, Birgitta Birg­is­dóttir, Pálmi Gestsson, Hildur Vala Bald­urs­dóttir

Það fer ekki á milli mála að Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) er metn­að­ar­fullt verk – bæði af hálfu höf­und­ar­ins, Auði Övu Ólafs­dóttur og svo þess list­ræna teymis sem hefur tekið verkið að sér, gert að sínu og ber það fram á svið. Og því er ekki að neita að hér er margt sem gleður auga og eyra. Verkið sjálft, leik­ritið, sagan, er fremur laust í reipum og leik­myndin grípur það á lofti. Sigríður Sunna Reyn­is­dóttir skapar umgjörð sem sam­anstendur af snún­ings­hurðum sem þjóna marg­vís­legum til­gangi en nið­ur­staðan er sú að engu (eða fáu) er að treysta, fólk birt­ist og hverfur líkt og í draumi og það er fátítt að sjá leik­mynd sem fangar svo ger­sam­lega anda leiktext­ans. Þessu er vand­lega fylgt eftir í bún­ingum, lýs­ingu og mynd­bands­vinnu og úr verður fjöl­breyti­leg og lit­rík sjón­ræn heild sem ein og sér nægir til að halda athygli áhorf­anda frá upp­hafi til enda. Stíl­hrein og smekk­leg. Má og bæta því við að lýs­ing Jóhanns Bjarna Pálma­sonar fylgir anda leik­myndar ger­sam­lega og bætir í þar sem þarf til að styðja atriða­skipti, inn og útkomur leik­ara og breyta stemn­ingu; þar kemur einnig til vel unnið mynd­band Elmars Þór­ar­ins­sonar sem hnykkir á umhverfi og auð­veldar áhorf­anda að átta sig á hvar sagan er stödd í hinn óræðu umgjörð. Leik­myndin er á nær stöð­ugu iði frá upp­hafi sýn­ingar til enda og það skapar ákveð­inn ryþma sem einnig fylgir hug­mynd sýn­ing­ar­innar eftir.

[adspot]Allt er þetta vönduð leik­hús­vinna sem ber vitni fag­legum vinnu­brögðum og mark­vissri leik­stjórn Ólafs Egils Ólafs­sonar, sem sannar enn og aftur hvers hann er megn­ugur þegar kemur að því að hlúa að frum­sömdum íslenskum verkum og koma þeim vel til manns (ef svo má að orði kom­ast). Það er nefni­lega tals­verð vinna í því fólgin að vera hinn fyrsti könn­uður mögu­leika nýs sviðs­verks, aðlaga það frá­sagn­ar­tækni og frá­sagn­ar­stíl leik­húss­ins án þess að hafa nokkrar fyr­ir­myndir að styðj­ast við, hvort sem er til að forð­ast eða fylgja.

Í þess­ari umgjörð er svo sögð saga Jónasar Ebenesar, manns á miðjum aldri sem hefur skilið við eig­in­konu sína og er á full­komnu reiki með það hver hann er og hvert hann stefnir – hann er að taka til í húsi sínu (og lífi) og stefnir að því er virð­ist í þá dap­ur­legu leið að stytta sér aldur; hefur enda fengið framan í sig hreytt að hann sé ekki faðir dóttur sinnar sem hann þó virð­ist elska; en það er kunn­ara en frá þurfi að segja að margur mað­ur­inn hefur orðið fyrir veru­legu lífs­hnjaski við að heyra að fað­erni hans til margra ára sé í efa dregið.

Hvað þetta varðar er Ör saga sem sækir efni­við og nær­ingu í veru­leik­ann og ekki nema gott eitt um það að segja. Í kringum Jónas Ebeneser er svo nokkur hópur fólks sem ýmist hrekur hann eða hvetur eins og sæmir í góðri drama­t­úrgíu – og það er rétt að segja, að hvað sem líður ýmsum ósam­stæðum atriðum sem ýta undir hina óræðu draum­kennd, þá er leik­ritið vel samið hvað varðar bygg­ingu og flæði og er eitt af þeim mik­il­vægu, ósýni­legu atriðum sem halda áhorf­and­anum við efnið. Einnig þar fag­leg vinnu­brögð og til verka vandað.

Hins vegar vand­ast málið aðeins þegar kemur að per­sónum verks­ins. Jónas Ebeneser er á vondum stað í líf­inu, það er aug­ljóst og hann þarf að ráða bót á því. Honum dugar aug­ljós­lega ekki að syngja í kór og það er varla fyrr en dóttir hans spyr hann – og það er að mínu viti ein lyk­il­setn­ing verks­ins – hvort hún eigi að fara skipta um föður, komin á full­orð­ins­aldur. Það atriði allt, í lok sög­unnar, er fal­legt og þar gang­ast per­sónur verks­ins við líf­inu eins og það er. En Jónas Ebeneser hefði þurft að vera nær­ing­ar­meiri af höf­undar hálfu til að kveikja áhuga af eigin krafti – nú er það fólkið í kringum hann sem heldur uppi áhug­anum á per­sónu hans og afdrifum.

Baldur Trausti Hreins­son hefur löngum verið vel skip­aður leik­ari í auka­hlut­verk, “sidekick” hlut­verk og staðið sig einatt með stakri prýði. Hann er, ef eitt­hvað má segja um leikstíl hans, mínímal­ískur leik­ari og beitir litlum en áhrifa­ríkum með­ulum til að tjá hug per­sóna sinna og setja þeim stað í sögu. Hann greinir hlut­verk sín vand­lega og gerir ekk­ert fyrir til­viljun eða órök­stutt. Þessir eig­in­leikar nýt­ast honum til fulls í hlut­verki Jónasar Ebenesar og þar sem skortir á vinnu höf­undar í per­sónu­sköpun bætir Baldur Trausti það full­kom­lega upp með vand­virkni sinni í leik. Það er óhætt að tala um leik­sigur, þótt hann sé unnin með smáum með­ulum.

Í kringum Jónas Ebeneser eru aðal­lega tvær per­sónur sem reka hann áfram, með góðu og illu. Fyrsta skal telja móður hans, leikna af öryggi og hreint ekki lít­illi kómík af Guðrúnu Snæfríði Gísla­dóttur. Það er eins og galdur hvernig ólík­leg­ustu karakt­erar lifna við og verða trú­verð­ugir í með­förum Guðrúnar Snæ­fríðar; móðir Jónasar Ebenesar er haldin þrá­hyggju hvað varðar töl­fræði styrj­alda og þótt erfitt sé að sjá hvernig það þjónar sögu sonar hennar, verður móð­irin engu að síður mik­il­væg í sög­unni með því að hennar vegna er heim­il­is­hjálpin til staðar: útlenda þjón­ustu­stúlkan Maí, leikin af Birgittu Birg­is­dóttur. Maí kemur frá stríðs­hrjáðu landi og hefur hér hlotið sama­stað og hlut­verk hennar þjónar í raun aðeins einum til­gangi sem upp­lýs­ist í lokin og væri leitt að koma upp um hér; hins vegar er það veik lausn eins og hún birt­ist í sög­unni og hefði höf­undur mátt hugsa það betur.

Eitt atriði veldur undrun: Maí er útlend­ingur og fram­andi fugl í hinu íslenska umhverfi. Það er und­ir­byggt með því að á köflum tala þau Jónas Ebeneser og móðir hans ensku við hana. En hún talar aftur á móti lýta­lausa íslensku og gæti þess vegna verið úr Húna­vatns­sýsl­unni eða Hafn­ar­firði. Er hér kannski um að ræða fíl í stof­unni, ótt­ann við að vera tal­inn gera grín að útlend­ingum með því að láta íslenska leikkonu tala með hreim? Það stang­ast þá alger­lega á við hinn raun­sæi­lega bak­grunn verks­ins og ástæða fyrir aðstand­endur sýn­ing­ar­innar að skoða þetta betur.

Dóttirin, Vatna­lilja, kemur þekki­lega fyrir í leik Hildar Völu Bald­urs­dóttur. Hildur Vala er nýút­skrifuð leik­kona frá Lista­há­skóla Íslands, hún hefur góða nær­veru á sviði, heldur vel um hlut­verk sitt og gæðir Vatna­lilju þeim þokka sem þarf til að mynda mót­vægi við dep­urð föður hennar. Vatna­lilja er boð­beri þeirrar hugs­unar að skylt sé að gang­ast við líf­inu og Hildur Vala skilar því trú­verð­ug­lega.

Ekki verður hjá því kom­ist að nefna að Hildur Vala glímir við sama vanda og margir ungir leik­arar, sem er radd­beit­ingin; um leið og hún snýr sér frá áhorf­endum heyr­ist illa eða ekki hvað hún segir. Þetta myndi hugs­an­lega sleppa í öðru sam­hengi, en hér er hún á sviði með þraut­reyndum harð­j­öxlum íslensks leik­húss hvað þetta varðar; það er ekki heiglum hent að standa Pálma Gests­syni, Guðrúnu Snæfríði Gísla­dóttur og Baldri Trausta Hreins­syni á sporði hvað varðar radd­beit­ingu og radd­túlkun og í raun ógreiði gerður ungri leikkonu að stand­ast slíka raun, nema til komi aðstoð leik­húss­ins til að bæta úr því sem aug­ljós­lega virð­ist vera van­ræksla þeirrar stofn­unar sem hefur hlotið traust og fjár­magn til að mennta leik­ara þjóðar vorrar og rís greini­lega ekki undir þeirri ábyrgð.

[adspot]Enn hefur ekki verið nefndur Svanur, nágrann­inn, kór­fé­lag­inn og veiði­mað­ur­inn, sem er “sidekick” Jónasar Ebenesar og gerir sitt til að örva hinn dapra vin sinn til dáða með ýmsum ráðum – ekki síst með því að miðla honum fróð­leik um konur ef það mætti verða til að kæta hann. Hlut­verkið er veru­lega kómískt og veitir létt­leika í sög­una sem er þakk­ar­verður á köflum; það hefur Pálmi Gestsson full­kom­lega á valdi sínu enda ókrýndur meist­ari hinnar vel fram bornu replikku svo ekki sé minnst á vald hans á því sem kall­ast „tim­ing”, sem er sú list að doka við nákvæm­lega eins lengi og þarf til að vekja kæti áhorf­and­ans yfir því sem á sér stað í sam­skiptum per­són­anna á svið­inu. Pálmi bregður sér í fleiri hlut­verk í sýn­ing­unni og alls staðar sýnir hann hvert vald hann hefur á þessum vand­með­farna hluta af list leik­ar­ans.

Hins vegar læð­ist að þeim sem hér ritar sá grunur hvort ekki væri hrein­lega meira spenn­andi að gefa þeim félögum, Svani og Jónasi Ebeneser, þeirra eigin tví­leik þar sem mætti flétta harmi og sorg beggja saman við kómíkina. Það hefði áreið­an­lega betur byggt undir hinn óvænta endi, sem þó hefði mátt vera und­ir­rit­uðum fyr­ir­sjá­an­legur þótt ekki væri nema vel­þekktra orða Tsjekovs um að ekki láta byssu hanga á vegg nema hún sé notuð áður en tjaldið fellur. Hér er orðum Tsjekovs fylgt út í æsar og samt kemur lausnin full­kom­lega á óvart og hefði eins og nefnt var, mátt vera betur und­ir­byggð. Kómíkin ber þarna sög­una ofur­liði og hefði kannski verið auð­velt að kom­ast hjá því.

Sem fyrr sagði er Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) metn­að­ar­fullt verk og fag­mennska og vand­virkni ein­kennir sýn­ing­una. Hún vekur einnig spurn­ingar um til­gang lífs­ins og veg­ferð manns­ins í þessu jarð­lífi í því mikró­kos­mosi sem honum er úthlutað á bil­inu milli vöggu og grafar. Ásjár­verð – ekki spurn­ing og full ástæða til að óska henni langra líf­daga á íslensku sviði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár