Rúmlega 300 þúsund ökutæki í umferð

Öku­tækjum Íslend­inga hefur fjölgað úr 132 þús­und árið 1995 í 309 þús­und árið 2018. Hlutfall heim­ila af heild­ar­bíla­flot­anum er enn langstærst en alls voru 229 þús­und öku­tæki skráð á heim­ili í fyrra.

Fjölgun öku­tækja hér á landi hefur verið umfram fólks­fjölgun í land­inu síð­ustu ár. Alls hefur öku­tækjum, bif­reiðum og bif­hjólum, fjölgað úr 132 þús­und árið 1995 í 309 þús­und árið 2018. Hlutur heim­il­anna af bíla­flot­anum er langstærstur en alls voru 658 bílar skráðir á hverja þús­und ein­stak­linga í jan­úar í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands. 

659 bílar á hverja þúsund einstaklinga

Öku­tækja­floti Íslend­inga hefur vaxið að með­al­tali um 4 pró­sent milli ára allt frá árinu 1995. Í sam­an­tekt Hag­stof­unnar segir að smá­vægi­leg fækkun hafi orðið fyrstu tvö árin eftir hrunið árið 2008 en að vöxt­ur­inn hafi náði sér aftur á strik árið 2015. [adspot]

Þrátt fyrir hraða fólks­fjölgun á síð­ustu árum, aðal­lega vegna aðflutts vinnu­afls, hefur öku­tækjum fjölgað umfram fólks­fjölgun hér á landi. Í ágúst í fyrra voru tæp­lega 230 þús­und öku­tæki skráð á heim­ili lands­ins.

Heimilin eiga flesta rafbíla

[links]Ef öku­tækjum hér á landi er skipt niður eftir umráð­anda þá er hlutur heim­ila langstærstur. Hlutfall heim­ila af heildar bíla­flot­anum hefur hins vegar lækkað úr 89,6 pró­sent árið 1995 í 74,3 pró­sent árið 2016.

Stærsti hluti öku­tækja á heim­ilum er enn knúin með bens­íni og fjöldi þeirra hefur lítið breyst frá árinu 2007. Á sama tíma hefur öku­tækjum sem knúin eru með dísel eða öðru elds­neyti, hefur fjölgað.

Samkvæmt Hag­stof­unni var hlut­fall raf­knú­inna öku­tækja og tvinn­bíla með hleðslu­getu, vart mark­tækt af heild­inni fyrr en árið 2018, en þá voru slík öku­tæki 2,4 pró­sent af bíla­flot­anum í heild eða alls 7.445 þannig öku­tæki, eða 2,4 pró­sent af bíla­flot­anum í heild. Þá er stærstur hluti raf­knú­inna öku­tækja eða tvinn­bíla skráður á heim­ili.

Eina leiðin til að höggva á umferðarhnútinn er að minnka bílaumferð

Fjallað hefur verið um mik­inn umferð­ar­þunga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á morgn­anna og síð­degis eftir að sum­ar­fr­íum lauk og skól­arnir byrj­uðu á ný í fjöl­miðlum und­an­farna daga. Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, for­maður skipu­lags­ráðs Reykja­vík­ur­borgar sagði í sam­tali við frétta­stofu RÚV síð­asta laug­ar­dag að umferð­ar­vand­inn verði aðeins leystur með einum þætti og það er að minnka bíla­um­ferð.

Sig­ur­borg sagði jafn­framt að það sé á ábyrgð stjórn­valda að gera fólki kleift að nota almenn­ings­sam­göngur. „og þá erum við að skoða borg­ar­línu, þá erum við að skoða hjól þá erum við að skoða allan pakk­ann.“

Að mati Sig­ur­borgar er nauð­syn­legt að grípa til aðgerða sem sam­fé­lag fyrr en seinna. „Ég held að við sem sam­fé­lag þurfum að þora að taka þessar ákvarð­anir, við glímum við mik­inn umferð­ar­vanda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og við glímum við lofts­lags­vanda og hann er bara leystur með einum hætti og það er að minnka bíla­um­ferð. Við höfum það í raun og veru í hendi okkar og getum gert það strax á næsta ári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár