Rafbílasala heldur áfram að aukast

Hreinir raf­magns­bílar, tengilt­vinn­bílar og hybrid bílar voru 22 pró­sent af heildar fólks­bíla­sölu fyrstu sex mán­uði árs­ins. Rík­is­stjórnin hefur sett sér það mark­mið að árið 2030 verði 100.000 skráðir raf­bílar og önnur vist­væn öku­tæki hér á landi.

Íslenski fólks­bíla­flot­inn telur alls 220 þús­und bíla, þar af eru 3.155 hreinir raf­magns­bílar. Þá eru um 7000 tengilt­vinn­bílar og 1551 met­an­bílar hér á landi. Sala á bílum sem eru að ein­hverju eða öllu leyti knúnir af raf­orku hefur auk­ist gríð­ar­lega á und­an­förnum árum. Það sem af er ári hafa hreinir raf­magns­bílar auk tengilt­vinn­bíla og hybrid bíla verið tæp­lega 22 pró­sent af heild­ar­bíla­söl­unni hér á landi.

100.000 rafbílar eða önnur vistvæn ökutæki árið 2030

[links]Rík­is­stjórn Íslands lagði fram aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum í sept­em­ber í fyrra. Mark­miðið með áætl­un­inni er að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og stuðla að auk­inni kolefn­is­bind­ingu þannig að Ísland geti staðið við ­mark­mið Par­ís­ar­samn­ings­ins til 2030 og mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar um kolefn­is­hlut­leysi árið 2040. Eitt af áherslu­at­riðum áætl­un­ar­innar eru orku­skipti í sam­göngum sem er stærsti los­un­ar­þátt­ur­inn sem snýr að beinum skuld­bind­ingum Íslands­. Í heild­ina áætlar rík­is­stjórnin að verja 1,5 millj­arða króna til orku­skipta á fimm ára tíma­bili.

Eitt af þeim aðgerðum sem finna má í áætl­un­inni er að ­stuðn­ingur við inn­viði fyrir raf­bíla og aðrar vist­vænar bif­reið­ar. Sam­kvæmt áætl­un­inni er stefnt að því að draga losun frá vega­sam­göngum um 35 pró­sent til árs­ins 2030 eða um helm­ing frá því sem nú er. Einn angi af því mark­miði er að árið 2030 verða 100.000 skráðir raf­bílar og önnur vist­væn öku­tæki á Ísland­i.

Hindr­un­ar­laus akstur á lang­ferðum

Í skýrsl­unni segir að sala á raf­bíl­u­m og bland­bíl­u­m hefur tekið kipp í kjölfar íviln­ana í skött­u­m og gjöld­um og upp­bygg­ing­ar á hleðslu­stöðv­um. Nú er hlut­fall end­ur­nýj­an­legrar orku í ­vega­sam­göng­unum 7,7 pró­sent en stefnt er að því að hlut­fallið verð­i 40 ­pró­sent árið 2030 sam­kvæmt ­þingsá­lykt­un um að­gerða­áætl­un um orku­skipti.

Því réðst rík­is­stjórnin í átaks­verk­efni með það að mark­miði að fjölga afl­miklum hrað­hleðslu­stöðvum (DC) þar sem þörf er mest til að tryggja hindr­un­ar­lausan akstur á lang­ferð­um. Orku­sjóður mun úthluta 200 millj­ónum í styrki til upp­setn­ingar hrað­hleðslu­stöðv­anna. Sá um­sækj­and­i verður val­inn sem býður lægsta kostnað við upp­setn­ingu en ein­göngu eru veittir fjár­fest­ing­ar­styrkir og geta styrkir hæst numið 50 pró­sent af áætl­uðum kostn­aði verk­efn­is.

Orku­sjóður mun einnig veita styrki til að fjölga hleðslu­stöðv­um við gisti­staði þannig mögu­legt verði að auka hlut­deild raf­bíla í ferða­þjón­ustu. Til úthlut­unar eru 50 millj­ónir króna en ein­göngu eru veittir fjár­fest­ing­ar­styrkir og geta styrkir hæst numið 50 pró­sent af áætl­uðum kostn­aði verk­efn­is.

Hreinir rafmagnsbílar, tengiltvinnbílar og hybrid bílar 22 prósent af bílasölu 

Hreinir raf­magns­bílar eru nú aðeins 1,4 pró­sent af fólks­bíla­flota Íslend­inga. Sala á raf­bílum eykst þó með hverju ári en sam­kvæmt nýj­ustu tölum frá Bíla­greina­sam­band­inu á hafa hreinir raf­magns­bílar verið 6 pró­sent af öllum seldum fólks­bílum það sem af er ári. Til sam­an­burðar voru raf­magns­bílar aðeins 3,8 pró­senta af heild­ar­söl­unni í fyrra og 1,2 pró­sent árið á undan.

Ef skoð­aður eru sam­an­lagðar tölur um sölu tengilt­vinn­bíla(bensín og raf­teng­ill), hybrid bíla(bensín og raf­magn) og raf­magns­bíla þá er sam­an­lögð sala þeirra 21,7 pró­sent af heildar fólks­bíla­söl­unni það sem af er ári. 

Það er tölu­verð aukn­ing frá því í fyrra en þá voru hreinir raf­magns­bílar 3,8 pró­sent af heildar fólks­bíla­söl­unni en hreinir raf­magns­bílar auk tengilt­vinn­bíla og hybrid bíla voru 19,4 pró­sent af söl­unni. Árið 2017 voru raf­magns­bílar aðeins 1,9 pró­sent af söl­unni en sam­an­lögð sala hreinna raf­magns­bíla, auk tengilt­vinn­bíla og hybrid bíla var 13,7 pró­sent af söl­unni.

Í dag eru tengilt­vinn­bílar, raf­magns­bílar og met­an­bílar sam­an­lagt 5,2 pró­sent af heildar fólks­bíla­fjölda Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár