Úthluta 250 milljónum til uppbyggingar á rafbílahleðslustöðvum

Orku­sjóður hefur aug­lýst fjár­fest­ing­ar­styrki til upp­bygg­ingar á hleðslu­stöðvum fyrir raf­bíla en í heild­ina verður úthlutað 250 millj­ónum. Styrkirnir eru hluti af aðgerða­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar vegna orku­skipta í sam­göngum á árunum 2019 til 2020.

Orku­sjóður mun úthluta 250 millj­ónum í tvenns­konar fjár­fest­inga­styrki til upp­bygg­ingar á hleðslu­stöðum fyrir raf­bíla og aug­lýsir nú eftir umsóknum. Rík­is­stjórnin til­kynnti nýlega um ráð­stöfun 450 millj­óna króna vegna orku­skipta í sam­göngum á árunum 2019 til 2020. Þar af mun rík­is­stjórnin úthluta 200 millj­ónum í styrki til upp­bygg­ingar á hrað­hleðslu­stöðvum fyrir raf­bíla og 50 millj­ónum til upp­bygg­ingar á hleðslu­stöðv­um­fyrir raf­bíla við gisti­staði.

Stuðningur við innviði fyrir rafbíla

Rík­is­stjórn Íslands lagði fram aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum í sept­em­ber í fyrra. Mark­miðið með áætl­un­inni er að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og stuðla að auk­inni kolefn­is­bind­ingu þannig að Ísland geti staðið við mark­mið Par­ís­ar­samn­ings­ins til 2030 og mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar um kolefn­is­hlut­leysi árið 2040. Eitt af áherslu­at­riðum áætl­un­ar­innar eru orku­skipti í sam­göngum sem er stærsti los­un­ar­þátt­ur­inn sem snýr að beinum skuld­bind­ingum Íslands. Í heild­ina áætlar rík­is­stjórnin að verja 1,5 millj­arða króna til orku­skipta á fimm ára tíma­bili.

Eitt af þeim aðgerðum sem finna má í áætl­un­inni er að stuðn­ingur við inn­viði fyrir raf­bíla og aðrar vist­vænar bif­reiðar. Samkvæmt áætl­un­inni er stefnt að því að draga losun frá vega­sam­göngum um 35 pró­sent til árs­ins 2030 eða um helm­ing frá því sem nú er. Einn angi af því mark­miði er að árið 2030 verða 100.000 skráðir raf­bílar og önnur vist­væn öku­tæki á Íslandi.

Í skýrsl­unni segir að sala á raf­bílum og blandbílum hefur tekið kipp í kjölfar íviln­ana í sköttum og gjöldum og upp­bygg­ingar á hleðslu­stöðvum. Nú er hlut­fall end­ur­nýj­an­legrar orku í vega­sam­göngnumum 7,7 pró­sent en stefnt er að því að hlut­fallið verði 40 pró­sent árið 2030 sam­kvæmt þingsályktun um aðgerðaáætlun um orku­skipti.

Hindrunarlaus akstur á langferðum

Því réðst rík­is­stjórnin í átaks­verk­efni með það að mark­miði að fjölga afl­miklum hrað­hleðslu­stöðvum (DC) þar sem þör?f er mest til að tryggja hindr­un­ar­lausan akstur á lang­ferðum. Orku­sjóður mun úthluta 200 millj­ónum í styrki til upp­setn­ingar hrað­hleðslu­stöðv­anna. Sá umsækj­andi verður val­inn sem býður lægsta kostnað við upp­setn­ingu en ein­göngu eru veittir fjár­fest­ing­ar­styrkir og geta styrkir hæst numið 50 pró­sent af áætl­uðum kostn­aði verk­efnis.

Orku­sjóður mun einnig veita styrki til að fjölga hleðslu­stöðvum við gisti­staði þannig mögu­legt verði að auka hlut­deild raf­bíla í ferða­þjón­ustu. Til úthlut­unar eru 50 millj­ónir króna en ein­göngu eru veittir fjár­fest­ing­ar­styrkir og geta styrkir hæst numið 50 pró­sent af áætl­uðum kostn­aði verk­efnis.

Íslend­ingar spara hlut­falls­lega meira en aðrar þjóðir á því að skipta yfir í raf­bíla

[links] Sigurður Ingi Frið­leifs­son, for­maður starfs­hóps um orku­skipti í sam­göngum, sagði í sam­tali við Kjarnann að raf­bíla­væð­ing væri mik­il­væg til að stand­ast skuld­bind­ingar Íslands gagn­vart Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu. Hann sagði stærsta hluta beinna skuld­bind­inga stjórn­valda þegar kemur að lofts­lags­málum vera olíu­notk­un, þar af væri stærsti hluti olíu­notk­unar bif­reið­ar. Olíu­notkun á Íslandi hefði minnkað alls staðar nema í vega­sam­göng­um, þar væri hún í vexti.

Sig­urður sagði lausnir við því vanda­máli vera skýr­ar, þ.e. minni notkun fólks­bíla og svo orku­skipti. Hann bætti hins vegar við að kaup og rekstur nýorku­bíla yrðu að vera sam­keppn­is­hæfur gagn­vart neyt­end­um, inn­viðir þyrftu að vera til stað­ar, auk þess sem neyt­endur þyrftu einnig sjálfir að velja hrein­orku­bíla.

Jafn­framt sagði hann það vera mýtu að raf­magns­bílar væru óum­hverf­is­vænni og að Íslend­ingar spör­uðu hlut­falls­lega meira en aðrar þjóðir af því að skipta yfir í raf­bíla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár