Mýta að rafmagnsbílar séu óumhverfisvænni

Raf­bíla­væð­ing er mik­il­væg til að stand­ast skuld­bind­ingar Íslands gagn­vart Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu, segir for­maður starfs­hóps­ um orku­skipti í sam­göngum.

Sigurður Ingi Friðleifsson
Sigurður Ingi Frið­leifs­son Mynd: Bára Huld Beck

Íslend­ingar spara hlut­falls­lega meira en aðrar þjóðir á því að skipta yfir í raf­bíla. Ávinn­ingur á hverjum bíl er meiri en til dæmis í ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins. Það væri enn fremur mýta að raf­magns­bílar séu óum­hverf­is­vænni. Þetta kom fram í máli Sigurðar Inga Frið­leifs­sonar á blaða­manna­fundi þann 4. júní siðast­lið­inn.

Sigurður kynnti meg­in­efni skýrslu starfs­hóps á vegum umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins, ásamt sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu á blaða­manna­fundi þann 4. júní.

Hann sagði stærsta hluta beinna skuld­bind­inga stjórn­valda þegar kemur að lofts­lags­málum vera olíu­notkun, þar af væri stærsti hluti olíu­notk­unar bif­reiðar. Olíu­notkun á Íslandi hefði minnkað alls staðar nema í vega­sam­göngum, þar væri hún í vexti.

Sigurður sagði lausnir við því vanda­máli vera skýrar, þ.e. minni notkun fólks­bíla og svo orku­skipti. Hann sagði enn fremur að Íslend­ingar spör­uðu hlut­falls­lega meira en aðrar þjóðir af því að skipta yfir í raf­bíla.

[adspot]Sigurður sagði að kaup og rekstur nýorku­bíla verði að vera sam­keppn­is­hæfur gagn­vart neyt­endum, inn­viðir þurfa að vera til staðar, auk þess sem neyt­endur þurfa einnig sjálfir að velja hrein­orku­bíla.

Rafmagnsbílar alltaf með minna kolefnisspor

Í sam­tali við Kjarnann segir Sigurður telja að ýmsir fjöl­miðlar nýti sér þær stöku rann­sóknir sem sýni fram á að raf­bílar séu óum­hverf­is­vænni til þess að grípa athygli fólks. Hins vegar sýni meg­in­hluti rann­sókna fram á hið and­stæða.

„Enginn hefur áhuga á því að lesa eitt­hvað sem fer með meg­in­straumnum. Fólk þráir eitt­hvað öðru­vísi. Alvöru rann­sóknir sýna að þegar allt er tekið í mynd­ina eru kolefn­is­spor raf­bíla miklu minna. Mis­mun­andi miklu minna eftir kerfum, orkan er t.d. einna hrein­ust á Íslandi, þá er það afger­andi og mun­ur­inn mik­ill.”

„Í hraða heim­inum sem við búum við þá er litli sann­leik­ur­inn vissu­lega réttur þá getur raf­magns­bíll verið með örlítið stærra kolefn­is­spor. Það eru rosa­lega fáir bílar sem eru fram­leiddir og ekki keyrðir. Þegar bíll­inn fer af stað þá breyt­ist myndin hratt. Það er mis­mun­andi eftir kerfum en staðan er alls staðar betri. Það tekur mis­mun­andi tíma, en á end­anum er hann alltaf með minna kolefn­is­spor.”

Fullkomin lausn að benda á aðra verri

Sigurður segir sögu­sagnir um raf­hlöður í raf­bílum valdi áhyggjum og að slíkar sögu­sagnir séu lífs­seigar.

„Gott að menn séu að pæla í fram­leiðslu þess­ara málma sem fara í raf­hlöð­urnar. Til eru námur sem eru ekki nógu góðar, t.d. í Kongó fyrir kóbalt. Þá er verið að kenna raf­bílnum um það. Olían hefur aldrei þurft að þola þetta sem hefur valdið styrj­öldum, deilum, sýkt vatns­ból og óþarfa íkveikjuslysum í þró­un­ar­löndum því ekki er farið nógu vel með þetta. Maður vill ekki fara þar, við í umhverf­is­brans­anum viljum ekki gera það og vera að benda á aðra. Það er þessi flótti frá því að gera eitt­hvað því aðrir eru verri. Bíl­stjóri bendir á skemmti­ferða­skip sem bendir svo á bíla­flota heims­ins. Þetta er hin full­komna lausn ef þú þráir að gera ekki neitt.”

Svarið sé ekki að kaupa ekki rafbíl

Sigurður segir mik­il­vægt að velja raf­bíl í bíla­kaupum.

„Fólk hefur áhyggjur af barna­þrælkun í Kongó sem er með 30 pró­sent af kóbalti sem fer í raf­hlöð­urnar. Svo eru ekki nema 20 pró­sent sem hafa verið skil­greindar sem barna­þrælk­un­ar­námur. Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa lagt áherslu á að svarið sé ekki að stoppa kaup á kóbalti því það gerir aðstæð­urnar verri heldur að greina og finna þessar námur til að tryggja að þetta ger­ist ekki. Áhersla ætti að vera að breyta námunni frekar en að klippa á eft­ir­spurn­ina.“

„Ef alþjóða­sam­fé­lagið ætlar að taka á mis­notkun ákveð­inna aðila á hákarli við fisk­veiðar á Íslandi væru harka­legar aðgerðir að kaupa ekki fisk frá Íslandi í stað­inn fyrir að finna dýra­níðs­menn og koma í veg fyrir að það komi aftur.”

Skorar á gagnrýnendur að koma með betri lausnir

„Það truflar mig ekki rosa­lega að menn séu per­sónu­lega á móti raf­bílum en það truflar mig hversu margir láta ekki þar við sitja heldur reyna að sann­færa fólk um að breyta ekki.

Ég hef fengið það hlut­verk að vinna að aðgerð­ar­á­ætlun þess­arar og fyrri rík­is­stjórnar gagn­vart Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu. Þegar kemur að beinum skuld­bind­ingum Íslands, sem er aðal­verk­efnið, þá eru vega­sam­göngur stærsti ein­staki bit­inn. Þegar maður er með töl­urnar fyrir framan sig gengur dæmið ekki upp nema með stór­tækri raf­bíla­væð­ingu. Þá meina ég það plús breyttar ferða­venjur. Maður er ein­angr­aður þegar það hrúg­ast gagn­rýni á raf­bíla, hún kemur víða og er fjöl­breytt. Enginn hefur þó komið með aðra hug­mynd um hvernig töl­fræði­lega er hægt að ná því án þess,“ segir hann.

[adspot]Sigurður skorar á menn að koma fram með aðrar tölur sem sýni fram á að hægt sé að ná settum mark­miðum án raf­bíla­væð­ingar. Enn sem komið er hafi eng­inn komið fram með aðrar lausnir sem gangi töl­fræði­lega upp.

„Við þurfum að styðja þetta töl­fræði­lega en gagn­rýnendur ekki. Ef ein­hver lausn er þarna úti að við náum Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu töl­fræði­lega er ég galop­inn fyrir slíku.“

Ef ekki við, hver þá?

Sigurður segir að tækni­lega hafi Ísland alla burði til þess að ná settum árangri Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins árið 2030.

„Spurning ef for­rík, vel menntuð tækni­vædd þjóð á ekki að taka á sig stórar skuld­bind­ingar, er þá betra að ein­hverjar fátæk­ari og van­þró­aðri ríki geri það í stað­inn?“ spyr hann.

„Við erum með mark­aðs­lausnir fyrir sam­göngur sem geta gert okkur kleift að ná þessu. Hvort póli­tískur vilji mun duga er svo eitt­hvað sem þarf að vona. Það hjálpar alls ekki þessi gagn­rýni á þessar tækni­lausnir. Ég hef verið lengi í þessum bransa og var í þessum pæl­ingum áður en tækni­lausn­irnar, sem voru ekki til eða voru hrika­lega dýrar, voru mark­aðs­lausnir. Þá var ég bjart­sýnn þegar ég sá raf­bíla og raf­magns­strætóa og allar þessar umhverf­is­lausnir. Þær hrynja í verði og þá fyllist maður bjart­sýni á meðan eru aðrir ennþá stífir er pínu merki­legt,“ sagði Sigurður.

„Eftir því sem úrvalið verður meira á bílum á hag­stæðu verði verður auð­veld­ara fyrir póli­tíkusa að hækka álögur á bensín og dísel­bíla því þá er það ekki svo harka­leg aðgerð.“

Rafbílar nú þegar hagstæðari

Sigurður segir stærsta hlut lands­manna vera mót­tæki­legan fyrir upp­töku ann­arra orku­gjafa í sam­göngum.

„Úrvalið er mik­il­vægt núna því maður vonar að raf­bíll­inn lækki. Hann er þegar hag­stæð­ari miðað við kaup og rekstur. Fólk er ennþá að horfa á upp­hafs­kostn­að­inn og reiknar ekki dæmið til enda. Það mun batna með lækk­andi kostn­aði og úrvali.“

[adspot]Sigurður segir erfitt að skipta yfir í eitt­hvað sem hafi meiri tak­mark­anir en hlut­ur­inn sem fólk á fyrir. Það eigi t.d. við umhverf­is­væna snjall­síma sem fólk væri hik­andi að kaupa ef hann gæti ekki tekið myndir, jafn­vel þó hann sé umhverf­is­vænni kostur.

Stærsta einstaka umhverfisákvörðunin

Sigurður segir mark­miðið vera að þjón­usta á land­inu öllu verði á pari við það sem fyrir er og inn­viða­upp­bygg­ing sé hluti af því. Hrað­hleðslu­stöðvar úti á landi muni hafa áhrif á val bíla­kaup­enda.

Hann segir bíla­kaup vera stærstu ein­stöku ein­staka umhverf­is­á­kvörðun sem við tökum. Nú þegar séu raf­bílar með 400 km drægni. Allir raf­bílar eru háðir því að geta stoppað á leið­inni og því þurfi að fjölga stöðvum og stækka þær. Á Íslandi séu 50 kw stöðvar en á mark­aði séu þær komnar upp í 150 til 350 kw stöðvar.

Verst ef menn gera ekkert

Sigurður segir sumar bíla­leigur sýna raf­bíla­væð­ingu áhuga en það geti verið erfitt fyrir þær að skipta yfir í raf­bíla. Þrep verði tekin til þess að raf­bíla­væð­ing bíla­leiga verði raun­hæf. Vinna sé nú hafin að koma upp hleðslu­stöðvum á gisti­stöðum um allt land.

Hann segir fullan skiln­ing vera á því að annað sé fyrir íbúa að hlaða bíla heima hjá sér eða að þjón­usta þús­undir ferða­manna.

„Stóru bíla­leig­urnar munu ekki skipta út sínum þús­und bílum á einu bretti. Mik­il­vægt er að þeir taki 5-10-20-30-100 bíla í þrepum og búi til þessa vöru sem er raf­bíla­leiga sem er geggjuð vara. Vonandi nær hún svo flugi en það verður ein­hvern tím­ann að byrja. Verst er ef menn gera ekki neitt,“ sagði Sigurður Ingi að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

umhverfi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár