Mikill meirihluti hlynntur banni á einnota plastpokum

Meiri­hluti Íslend­inga er hlynntur banni á einnota plast­pokum í versl­unum sam­kvæmt nýrri könnun MMR. Stuðn­ings­menn vinstri flokk­ana eru hlynnt­ari bann­inu en þeir hægri sinn­uðu.

Plastpoki í sjó
Plast­poki í sjó Mynd: Wikicommons

Nærri tveir af hverjum þremur Íslend­ingum sögð­ust hlynntir banni á einnota plast­pokum í versl­unum í nýrri könnun MMR. Tæp 41 pró­sent sögð­ust vera mjög hlynnt banni á plast­pokum, 61 pró­sent kváð­ust hlynnt því á miðið 21 pró­sent svar­enda sögð­ust vera and­víg banni á einnota plast­pokum í versl­unum og aðeins 9 pró­sent kváð­ust mjög and­víg.

Stuðningsfólks hægri flokkana andvígara banninu

Þegar skoð­aður er munur eftir stjórn­mála­flokkum þá sést að stuðn­ings­fólk vinstri flokk­ana er mun hlynnt­ari bann­inu en stuðn­ings­fólk hægri flokka. Stuðn­ings­fólks Sam­fylk­ing­ar­innar hlynnt­ust bann­inu á plast­pokum eða 71 pró­sent, næstir eru Píratar með 69 pró­sent hlynnt bann­inu og Vinstri grænir þar með 64 pró­sent.

Andstaða við plast­a­poka­bann reynd­ist mest á meðal stuðn­ings­fólks Sjálf­stæð­is­flokks­ins, alls þriðj­ungur voru and­víg og 11 pró­sent mjög and­víg. Þá kváð­ust 28 pró­sent stuðn­ings­fólks Við­reisnar og síðan voru 27 pró­sent stuðn­ings­fólks Fram­sóknar einnig and­víg bann­in­u. Af stuðn­ings­fólki Flokk fólks­ins voru 27 pró­sent and­víg bann­inu.

[adspot]

Tekjulægra fólk hlynntari banninu en það tekjuhærra

Konur voru lík­legri en karlar til að vera hlynntir bann­inu, 69 pró­sent á miðað við 54 pró­sent karla. And­staða við bann á einnota plast­pokum jókst í takt við hækk­andi ald­ur. Yngsti ald­urs­hópur svar­enda voru lík­leg­astir allra ald­urs­hópa til að vera fylgj­andi bann­inu eða 67 pró­sent. And­staða við bannið jókst í takt við hækk­andi ald­ur.

Af þeim sem lokið höfðu háskóla­menntun kváð­ust 67 pró­sent vera fylgj­andi banni, sam­an­borið við 60 pró­sent þeirra með fram­halds­skóla­menntun og 56 pró­sent þeirra með grunn­skóla­mennt­un.

And­staða við plast­poka­bann reynd­ist meiri hjá þeim tekju­hæstu en þeim tekju­lægri. Af þeim með milljón eða meira í heim­il­is­tekjur kváð­ust 27 pró­sent vera and­víg plast­poka­banni. Þá kváð­ust 57 pró­sent þeirra með milljón eða meira í heim­il­is­tekjur vera fylgj­andi banni, sam­an­borið við 63 pró­sent þeirra með heim­il­is­tekjur undir 400 þús­und krón­um.

-

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár