„Í þjóðinni býr náttúrulegur kraftur ...“ – YEAH!

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um Independent Party People eftir Davíð Þór Katrín­ar­son, Jón­mundur Grét­ars­son, Nína Hjálm­ars­dóttir og Selma Reyn­is­dóttir í Tjarn­ar­bíói.

Independent Party People
Independent Party People Mynd: Owen Fiene

Sálufélagar í Tjarnarbíói: Independent Party People

Höfundar og flytj­endur: Davíð Þór Katrín­ar­son, Jón­mundur Grét­ars­son, Nína Hjálm­ars­dóttir, Selma Reyn­is­dóttir.

Fram­leið­endur: Nína Hjálm­ars­dóttir, Selma Reyn­is­dóttir.

Sviðs­mynd: Katerina Bla­hutová.

Drama­t­úrgisk aðstoð: Brogan Davison, Pétur Ármanns­son.

Tónlist: Sigrún Jóns­dóttir.

Ljós: Aron Martin Ásgerð­ar­son, Magnús Thorlacius.

Búningar: Tanja Huld Levý Guð­munds­dóttir.

Tjarna­bíó er eins og flestum er kunn­ugt heima­völlur sjálf­stæðu leik­hópanna. Þar má einatt sjá verk sem enn er verið að þreifa sig áfram með efn­is­tök og úrvinnslu og oftar en ekki eru við­fangs­efnin nýstár­leg sem og efn­is­tökin. Í Tjarn­ar­bíói verður aldrei gengið að neinu vísu og þess vegna er það spenn­andi leik­hús. Rati þangað sem flestir!

Leikárið hefst á til­raun um ímynd Íslands og Íslend­inga og það er svo sann­ar­lega leikið með þá ímynd útfrá ýmsum sjón­ar­hornum. Þegar áhorf­endur ganga inn í sal Tjarn­ar­bíós mætir þeim leik­hóp­ur­inn sem ýmist situr eða liggur í mak­indum og sötrar rauð­vín, íklæddur afkára­legum bún­ingum sem vísa í þjóð­leg gildi – lopa­peysan íslenska með sínu klass­íska munstri – og partí­stemn­ingu nútíma­fólks með lit­ríkum pífum, blúndum og krögum en umgjörðin er hvítur bak­veggur úr hey­böggla­plasti og allt sem fyrir augu ber af leik­mynda­tagi er gert úr plasti og það er vissu­lega ákveðin afstaða sem birt­ist í því. Lýsingin fylgir stemn­ingu og stíl, afdrátt­ar­laus og ótví­ræð.

[adspot]

Í þessu ofur­hvíta umhverfi spjallar leik­hóp­ur­inn saman og við áhorf­endur á afslapp­aðan og til­gerð­ar­lausan máta; í byrjun er sam­vera beggja, leik­hóps og áhorf­enda útskýrð útfrá til­gangi sýn­ing­ar­innar og óborg­an­legar útskýr­ingar á sam­setn­ingu leik­hóps­ins gefnar til að ekk­ert fari á milli mála og það er eins og að vera staddur í vinnu­smiðju þar sem verið er að und­ir­búa sýn­ingu en ekki að sjá leik­sýn­ingu flutta í raun­tíma – þetta er leikur með tíma, afstöðu og umhverfi þar sem allt flétt­ast saman á fynd­inn hátt og auð­skilj­an­legan.

Sviðs­lista­hóp­ur­inn Sálu­fé­lagar sam­anstendur af stofn­endum hans, Nínu Hjálm­ars­dóttur, sem lauk prófi frá Fræði og fram­kvæmd braut Lista­há­skóla Íslands, og Selmu Reyn­is­dóttur, dans­ara, og hér hafa þær sótt sér liðs­auka í leik­ur­unum Davíð Þór Katrín­ar­syni og Jónmund Grét­ars­syni. Sálu­fé­lag­arnir Nína og Selma hafa velt þema verks­ins fyrir sér í lengri tíma og lagst í all­nokkra rann­sókn­ar­vinnu til að kanna fyr­ir­bærið ímynd Íslands – upp­haf­lega voru þær að skoða sjálfs­mynd Íslend­inga sem og hvernig útlend­ingar hugsa um okkur Íslend­inga og fundu útgangs­punkt í skrifum mann­fræð­ings­ins Krist­ínar Lofts­dóttur sem hefur skoðað hug­mynd­ina um Ísland sem hið fram­andi og spenn­andi norður. Og svo gaf For­sæt­is­ráðu­neytið út skýrsl­una Inspired by Iceland, sem hefst á orð­unum: “Í þjóð­inni býr nátt­úru­legur kraftur sem mót­ast hefur í sam­búð við nátt­úr­una”. Sem er nú meira mið­flokks­bullið.

Vissu­lega er þetta kjörið rann­sókn­ar­efni og snjallt að vinna úr því sýn­ingu, sem brýtur gegn hinni venju­bundnu drama­t­úrgíu og verður að flæði hug­mynda þar sem við, áhorf­endur, hættum að vera áhorf­endur og verðum frekar eins konar þátt­tak­endur – við finnum svo sann­ar­lega fyrir því að þegar leik­hóp­ur­inn segir sig ekki geta sam­samað sig í þess­ari opin­beru Ísland­s­í­mynd þá tökum við undir það, við skiljum rök þeirra og gerum þau að okkar rökum. Og förum að efast um hvað sé að vera Íslend­ingur.

Mis­skilji nú eng­inn orð mín sem svo að Independent Party People sé hams­laus og rudda­leg árás á ímynd­arsmiði hins opin­bera. Öðru nær. Hér er borin virð­ing fyrir efn­inu. En hér svo sann­ar­lega skoðað og rann­sakað, varpað fram eðli­legum og sjálf­sögðum spurn­ingum sem, þegar að er gáð, eru líka okkar spurn­ingar.

Ísland er hvítt. Í öllum skiln­ingi. Í ímynd Íslands er áherslan lögð á vík­ing­inn, hvíta mann­inn, sem leggur undir sig landið, og það eru ansi margir sem fá hrein­lega ekki pláss í þeirri ímynd. Þeirri opin­beru. Þeirri við­ur­kenndu.

Leik­hóp­ur­inn sýnir þetta á sjálfum sér: Nína og Selma eru hvítar ungar konur, Davíð Þór og Jón­mundur eru blakkir (já, eða brúnir) ungir karlar. Þau þurfa sjálf að berj­ast við ímynd­ar­hug­takið, þreifa á því, takast á við það og sigr­ast á því. Af því saga vor kúrir kven­manns­laus í kulda og trekki – svo vísað sé til þekkts bar­áttu­söngs – og það þarf nú ekki að ræða blökku­menn­ina, sem á stríðs­ár­unum máttu ekki einu sinni vera her­menn í her Banda­ríkj­anna sam­kvæmt leyni­sam­komu­lagi rík­is­stjórna Íslands og Banda­ríkj­anna. Og má ekki nefna hér oln­boga­barn Íslend­inga­sagna, Geirmund Helj­ar­skinn, son Hjörs og Ljúfvinu, en hann mun hafa erft mongólskt útlit móður sinnar og hefur búið við all­nokkra þöggun síðan, en er nú að hljóta upp­reisn æru með skáld­sögu Berg­sveins Birg­is­sonar um svarta vík­ing­inn.

Þessi tvö dæmi, hin kven­manns­lausa saga vor og Geir­mundur helj­ar­skinn, eru hér nefnd til að sýna fram á að Independent Party People þeirra Sálu­fé­laga hvílir síður en svo í hug­mynda­fræði­legu tóma­rúmi – þetta finnur hver á sér sem vill og við­ur­kennir.

Sú ímynd, sem birt er af opin­berum aðilum, og sem ein­hvers konar óút­skýrð sátt ríkir um, er og verður ímynd sem hampar sumum á kostnað ann­arra. Og það verður ekki fyrr en það er við­ur­kennt og opnað fyrir að allir rúmist innan ímyndar, að tekið sé til­lit til allra og mið af öllum, að við getum öll orðið besta útgáfan af sjálfum okkur. Einhvern veg­inn finnst þeim sem þetta skrifar að það sé nið­ur­staðan þegar öllu er á botn­inn hvolft.

Það má svo ekki gleyma að nefna að sýn­ingin er elsku­leg. Hún kemur fal­lega við okkur áhorf­endur/þátt­tak­endur og gefur okkur mörg tæki­færi til að staldra við og hugsa. En hún er líka fyndin og leik­hóp­ur­inn kann mjög vel að halda utan um húmor­inn. Stundum er hann nefni­lega beittasta vopnið þegar bent er á það sem betur má fara í sam­fé­lagi mann­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár