Stjórn VR samþykkti að fara í stríð við smálánafyrirtækin

Á stjórn­ar­fundi í VR í kvöld var sam­þykkt með öllum greiddum atkvæðum að fjár­magna bar­áttu neyt­enda gegn smá­lána­fyr­ir­tækjum og þeim sem inn­heimta kröfur þeirra. Lántakar verða hvattir til þess að hætta að borga af smá­lánum.

Stjórn stétt­ar­fé­lags­ins VR sam­þykkti í kvöld, með öllum greiddum atkvæðum, að ger­ast fjár­hags­legur bak­hjarl neyt­enda í bar­átt­unni gegn smá­lán­um.

[links]Í því mun fel­ast að VR, í sam­starfi með Neyt­enda­sam­tök­un­um, mun leggja út fyrir kostn­aði vegna lög­fræði­vinnu og dóms­mála sem þarf að höfða til að koma í veg fyrir að smá­lána­fyr­ir­tæki og þeir sem sinna inn­heimtu fyrir þau geti haldið áfram að inn­heimta okur­vexti frá lán­tök­um.

Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, myndi leggja fram til­lögu þess efnis fram á fund­inum. Hann sagði í sam­tali við Kjarnann að mark­miðið með til­lög­unni væri að algjört stöðvun verði á greiðslum á öðru en höf­uð­stól til smá­lána­fyr­ir­tækja eða inn­heimtu­fyr­ir­tækja sem starfi fyrir þau.

[adspot]Fyrstu skrefin verði að hvetja fólk til að hætta að greiða af lánum sem séu ólög­leg. Þá verði fyr­ir­tæk­inu Almennri inn­heimtu ehf., sem hefur séð um að rukka inn smá­lána­skuld­ir, og for­svars­mönnum þess stefnt. „Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem við erum að fara í skít­verkin eftir að lög­gjaf­inn bregst. Fólkið sem er að lenda í klónum á þessum fyr­ir­tækjum fær að finna að það hefur ein­hvern bak­hjarl. Það mun breyta mjög miklu gagn­vart þeim.“

Stuðn­ingur VR mun ná til allra smá­lána­taka sem þurfi á honum að halda, ekki ein­ungis félags­manna VR. Verið er að meta kostn­að­inn við aðgerð­ina en fyrir liggja ákveðna hug­myndir um kostnað við fyrstu skref og við að halda úti lög­manni til að taka við fyr­ir­spurnum frá þeim sem hyggj­ast nýta sér aðgerð­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár