VR ætlar að fjármagna baráttuna gegn smálánum

Formaður VR mun leggja fram til­lögu á stjórn­ar­fundi í kvöld um að VR verði fjár­hags­legur bak­hjarl bar­átt­unnar gegn smá­lánum. Verði til­lagan sam­þykkt mun inn­heimtu­fyr­ir­tæki verða stefnt og smá­lána­takar hvattir til að hætta að borga.

Á stjórn­ar­fundi í VR í kvöld verður lögð fram til­laga þess efnis að stétt­ar­fé­lagið ger­ist fjár­hags­legur bak­hjarl neyt­enda í bar­átt­unni gegn smá­lánum. Í því mun fel­ast að VR, í sam­starfi með Neyt­enda­sam­tök­unum, mun leggja út fyrir kostn­aði vegna lög­fræði­vinnu og dóms­mála sem þarf að höfða til að koma í veg fyrir að smá­lána­fyr­ir­tæki og þeir sem sinna inn­heimtu fyrir þau geti haldið áfram að inn­heimta okur­vexti frá lán­tökum.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir mark­miðið með þess­ari ákvörðun VR að algjört stöðvun verði á greiðslum á öðru en höf­uð­stól til smá­lána­fyr­ir­tækja eða inn­heimtu­fyr­ir­tækja sem starfi fyrir þau.

[adspot]Fyrstu skrefin verði að hvetja fólk til að hætta að greiða af lánum sem séu ólög­leg. Þá verði fyr­ir­tæk­inu Almennri inn­heimtu ehf., sem hefur séð um að rukka inn smá­lána­skuldir, og for­svars­mönnum þess stefnt. „Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem við erum að fara í skít­verkin eftir að lög­gjaf­inn bregst. Fólkið sem er að lenda í klónum á þessum fyr­ir­tækjum fær að finna að það hefur ein­hvern bak­hjarl. Það mun breyta mjög miklu gagn­vart þeim.“

Vilja stöðva „glæpafyrirtæki“

Hann segir að fyr­ir­tækið Almenn inn­heimta ehf., sem er í eigu lög­manns­ins Gísla Kr. Björns­sonar, hafi þrá­ast við að sýna fram á sund­ur­lið­aðan kostnað af þeim kröfum sem gerðar hafi verið á lán­tak­endur smá­lána. „Við munum taka upp hansk­ann fyrir þetta fólk sem aðrir hafa brugð­ist og snúa við sönn­un­ar­byrð­inni þannig að hún fær­ist yfir á inn­heimt­una. Hún þarf að sýna fram á lög­mætið. Við munum hvetja fólk til að greiða ekki af lán­unum nema að það verði sund­ur­lið­aður allur kostn­aður sem liggur að baki þeim.“

Slíkur kostn­aður hafi ekki fylgt kröf­unum hingað til en það hafi hins vegar ekki komið í veg fyrir að bankar lands­ins hafi spilað með í inn­heimtu fyr­ir­tækj­anna, sem Ragnar Þór kallar „glæpa­fyr­ir­tæki“.

Hann telur að Almenn inn­heimta ehf. sé í her­ferð við að ná inn sem mestu af útistand­andi meintum skuldum á næstu vikum áður en að nýtt frum­varp sem á að koma í veg fyrir starf­semi smá­lána­fyr­ir­tækja, sem verður lagt fram í haust, verður sam­þykkt.

Nær til allra smálánataka

Málið hefur ekki átt sér langan aðdrag­anda en Ragnar Þór hefur fundað með for­svars­mönnum Neyt­enda­sam­tak­anna und­an­farna daga til að forma það. „Við höfum fylgst með bar­áttu Neyt­enda­sam­tak­anna og getu­leysi lög­gjafans viðað sporna við þessu, Bank­arnir virð­ast svo án athuga­semda skuld­færa af reikn­ingum þessa fólks þrátt fyrir mjög veikar laga­heim­ildir. Nú verður þetta stöðvað.“

[adspot]Hann segir að stuðn­ingur VR muni ná til allra smá­lána­taka sem þurfi á honum að halda, ekki ein­ungis félags­manna VR. Verið sé að meta kostn­að­inn við aðgerð­ina en fyrir liggi ákveðna hug­myndir um kostnað við fyrstu skref og við að halda úti lög­manni til að taka við fyr­ir­spurnum frá þeim sem hyggj­ast nýta sér aðgerð­ina.

Heildarendurgreiðslur hærri en lög leyfa

Neyt­enda­sam­tökin hafa staðið í bar­áttu við smá­lána­fyr­ir­tæki hér­lendis árum saman, og hefur meiri þungi færst í hana á síð­ustu mán­uðum. Þau sendu frá sér til­kynn­ingu í síð­asta mán­uði þar sem þau skor­uðu á Almenna inn­heimtu ehf. að stöðva taf­ar­laust inn­heimtu á smá­lána­skuldum sem byggðu á ólög­mætum lánum. Fyrir lægi að vextir á smá­lánum væru marg­falt hærri en heim­ilt væri sam­kvæmt lög­um. Þrátt fyrir það virð­ist ekk­ert fá stöðvað Almenna inn­heimtu við að inn­heimta þessi ólög­legu lán.

Á Íslandi má kostn­aður vegna neyt­enda­lána, smá­lán falla undir þá skil­grein­ingu, ein­ungis vera 50 pró­sent ofan á stýri­vexti Seðla­banka Íslands á árs­grund­velli. ­Neyt­enda­sam­tökin hafa hins vegar undir höndum gögn sem sýna að heild­ar­end­ur­greiðslur lán­tak­enda eru mun hærri en lög leyfa, jafn­vel þó miðað sé við hæstu lög­legu vexti. Þrátt fyrir það heldur Almenn inn­heimta áfram inn­heimtu sinni á ólög­leg­um vöxtum og hót­unum um skrán­ingu á van­skila­skrá Creditinfo, sam­kvæmt til­kynn­ingu Neyt­enda­sam­tak­anna.

Creditinfo hefur stað­fest að ekki verði skráð frek­ari van­skil á fólk vegna smá­lána­skulda nema höf­uð­stóll kröf­unnar sé í van­skil­um. Því hvetja Neyt­enda­sam­tökin þá ein­stak­linga sem eru á van­skila­skrá vegna smá­lána­skuldar að sendu póst á Creditinfo og fara fram á að vera tekin af skrá.

Bótaskylda gæti hafa skapast

Neyt­enda­sam­tökin hafa ­jafn­fram­t beint þeim til­mælum til lán­tak­enda, sem greitt hafa hærri upp­hæð til baka en sem nemur láns­upp­hæð, að fara fram á skýra sund­ur­liðun frá Almennri inn­heimtu ehf. Fyr­ir­tækið hefur hins vegar gefið sér allt að þrjá mán­uði til að veita þessar upp­lýs­ingar sem neyt­enda­sam­tökin segja að lán­tak­endur eiga rétt á.

„Það vekur furðu að fyr­ir­tækið hafi ekki til­tæka sund­ur­liðun á kröfum sem það telur sér þó fært að inn­heimta. Þá telja Neyt­enda­sam­tökin í hæsta máta óeðli­legt að inn­heimta van­skila­kostnað á kröfur sem byggja á ólög­mætum lán­veit­ing­um. Slíkt geti ekki verið lög­leg­t,“ segir í til­kynn­ing­unni.

[adspot]Enn fremur hafa Neyt­enda­sam­tökin ítrekað komið ofan­greindu á fram­færi við Almenna inn­heimtu en engin við­brögð feng­ið. Sam­tökin telja að þar sem eig­end­um, stjórn og starfs­mönnum Almennrar inn­heimtu megi vera ljóst að kröfutil­bún­ing­ur­inn stand­ist ekki lög, séu jafn­vel líkur á að bóta­á­byrgð hafi skap­ast, ekki síst í þeim til­fellum þar sem lán­tak­endur hafa verið settir á van­skila­skrá að ósekju.

Nú eru Neyt­enda­sam­tökin komin með öfl­ugan fjár­hags­legan bak­hjarl sem getur fylgt slíkum málum eftir.

Fleira ungt fólk í skuldavanda

Kjarninn greindi frá því í júlí að á árinu 2019 hefðu borist 258 umsóknir um greiðslu­að­lögun til Umboðs­manns skuld­ar­a. Greiðslu­að­lögun er úrræði fyrir ein­stak­l­inga sem eiga í veru­­legum greiðslu- og skulda­­vanda. ­Mikil fjölgun hefur orðið í umsóknum um greiðslu­að­lögun hjá yngsta ald­urs­hópn­um, 18 til 29 ára, en umsækj­endur úr þeim hópi voru 27 pró­sent allra umsækj­enda í fyrra.

Í yngsta ald­­ur­s­hópnum voru 79 pró­­sent umsækj­enda með skyndilán og voru 22 pró­­sent af heild­­ar­skuldum umsækj­anda til­komin vegna smá­lána á þessu ald­urs­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár