Lækning við Ebólu mögulega fundin

Tvær nýjar til­rauna­með­ferðir hafa reynst afar áhrifa­ríkar gegn Ebólu. Um 90 pró­sent þeirra sjúk­linga sem sýktir eru af Ebólu­vírusnum og gang­ast undir slíka með­ferð hafa lækn­ast.

Tvær nýjar með­ferðir hafa verið afar áhrifa­ríkar gegn Ebólu. Reynt var á með­ferð­irnar í Kongó og hafa bjargað um 90 pró­senta þeirra sjúk­linga sem geng­ust undir með­ferð­irnar. Með­ferð­irnar eru báðar til­rauna­með­ferðir en hafa gengið svo vel að öllum sjúk­lingum með Ebólu í Kongó verður boðið að gang­ast undir þær. Þetta kemur fram í frétt the New York Times.

Með­ferð­irnar sem byggja á mótefni hafa vakið vonir um að hægt sé að stöðva frek­ari útbreiðslu far­ald­urs­ins í Kongó. Samkvæmt Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni eru um 2.800 manns sýktir af vírusnum í land­inu sem stendur.

Skæð blæðingarsótt

Ebóla er bráðsmit­andi blæð­ing­ar­sótt en hún er nefnd eftir Ebólafljót­inu í Aust­ur-­Kongó og var fyrst greind af Peter Piot, belgískum vís­inda­manni, árið 1976. Vírusinn kom á sama tíma fram á sjón­ar­sviðið í Suður-Súdan og hefur komið upp ann­ars lagið síð­an, en nær ein­göngu í Afr­íku. Talið er lík­legt að vírus­inn eigi upp­tök sín í leð­ur­blökum.

[adspot]Ein­kenni sýk­ingar geta verið margs kon­ar, þar á meðal sótt­hiti, upp­köst, nið­ur­gang­ur, óráð og önd­un­ar­færa­vanda­mál. Algengt er að fólk falli í dá um viku eftir smit og flestir deyja af völdum ofþorn­un­ar.

Ebólu vírus­inn hefur valdið dauðs­föllum þús­unda. Ótti við vírus­inn og van­traust á heil­brigð­is­starfs­fólki hafa skapað hindr­anir í að berj­ast gegn útbreiðslu hans. Fjöl­skyldur þeirra sem eru með vírus­inn hafa jafn­vel falið sjúk­ling­ana frá heil­brigð­is­starfs­fólki, að því er kemur fram í fyrr­nefndri frétt.

Vona að orðið dreifist

Hinar tvær nýju sjúk­dóms­með­ferðir voru á meðal fjög­urra sem próf­aðar voru gegn vírusnum. Próf­an­irnar hófust í nóv­em­ber síð­ast­liðnum og hafa alls 700 sjúk­lingar geng­ist undir með­ferð­ina. Tvær þeirra virk­uðu svo vel að mælst var með því að próf­unum á hinum tveimur seinni yrði hætt.

[links]Af þeim sjúk­lingum sem hvorki fá heil­brigð­is­þjón­usti né mótefni við vírusnum lát­ast 70 pró­sent þeirra, segir Dr. Michael J. Ryan, fram­kvæmda­stjóri neyð­ar­við­bragða Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar, í sam­tali við the New York Times. Vís­inda­menn­irnir sem vinna að lækn­ing­unni telja að ef upp­lýs­ing­arnar um mögu­lega lækn­ingu dreifast manna á milli gæti fólk leitað sér hjálpar fyrr, jafn­framt sem það gæti minnkað van­traust fólks á heil­brigð­is­starfs­fólki sem vinnur að umönnun sjúk­linga sýktra af vírusnum.

Miklar óeirðir hafa verið í Kongó einmitt á því svæði sem vírus­inn hefur dreifst víða. Utan­rík­is­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna hefur til að mynda bannað opin­berum starfs­mönnum að vinna á svæð­inu, jafn­vel sér­fræð­ingum sem vinna að sjúk­dómsvörnum og for­vörnum.

Alþjóðasamfélagið lengi að taka við sér

Í aðsendri grein Láru Jón­as­dóttur, tengiliðs verk­efna hjá Læknum án landamæra í Líberíu, frá árinu 2015 kemur fram að alþjóða­sam­fé­lagið hafi ekki tekið við sér fyrr en Ebólu­vírus­inn var orðin að alþjóð­legri öryggisógn og ekki lengur vanda­mál ein­ungis örfárra þró­un­ar­ríkja í Vest­ur­-Afr­íku.

„Þann 8. ágúst 2014 lýsti Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) loks­ins yfir neyð­ar­á­standi. Ebólu­víru­inn var ógn við lýð­heilsu heims­byggð­ar­inn­ar. Þess­ari yfir­lýs­ingu fylgdi gang­verk sem los­aði um fjár­magn og mannauð á miklum hraða, en þá voru þegar 1000 manns fallnir í val­inn,“ segir í grein­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ebóla

ErlentEbóla

Fyrsta dauðs­fallið af völdum ebólu í sex vikur skráð í Líberíu

Stjórn­völd í Líberíu til­kynntu í dag að ebólu­veiran hafi dregið mann til dauða. Enginn hefur lát­ist af völdum sjúk­dóms­ins í meira en sex vikur í Líberíu. Frá þeessu greinir AFP-frétta­veitan. „Nýtt ebólu­til­vik hefur verið skráð í Margiby-sýslu. Mann­eskja er látin sem hafði verið greind með veiruna áður en hún lést,“ sagði Tolbert Nyensuah, stað­geng­ill heil­brigð­is­ráð­herra lands­ins. Þegar hafa allir þeir...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár