Topp tíu: Heimsfaraldrar

Heims­far­aldrar koma og fara, og verða sumum að ald­urtilla því miður. Nú geysar stríðið gegn ebólu-vírusnum sem hefur kostað þús­undir manna lífið, en miklar vonir eru bundnar við að lækna­vís­indin muni með tíð og tíma vinna bar­átt­una gegn sjúk­dómnum.

Kjarninn tók saman topp tíu lista yfir heims­far­aldra.

10. Ebóla


Ebóla er vírus sem kom fyrst fram á sjón­ar­sviðið árið 1976 í Súdan og hefur komið upp ann­ars lagið síðan, en nær ein­göngu í Afríku. Talið er lík­legt að vírus­inn eigi upp­tök sín í leð­ur­blökum en hann getur einnig smit­ast í apa. Ebóla er sér­stak­lega skæður sjúk­dómur sem drepur um helm­ing allra smit­aðra. Einkenni geta verið margs konar, þar á meðal sótt­hiti, upp­köst, nið­ur­gangur, óráð og önd­un­ar­færa­vanda­mál. Algengt er að fólk falli í dá um viku eftir smit og flestir deyja af völdum ofþorn­unar. Ebóla hefur ekki drepið marga í gegnum tíð­ina (aðeins nokkur þús­und manns) en far­ald­ur­inn sem nú stendur yfir í Vestur-Afríku er sá langstærsti sem komið hefur upp. Dán­ar­tíðnin er líka óvenju há (um 70 pró­sent) og því ekki að ósekju sem menn séu smeykir við vírus­inn.

9. Berklar (Tubercule bacillus)


Berklar, sem eru bakt­er­íu­sýk­ing, hafa fylgt mann­inum frá fornöld og komu upp­runa­lega úr naut­gripum. Berklar urðu eig­in­legur far­aldur á Vest­ur­löndum ca. 1800-1950. Sér­stakir berkla­spít­alar voru settir upp, eins og til dæmis Víf­ils­staðir hér á landi, og allt að fjórði hver maður lést af völdum berkla. En um miðja 20. öld­ina var fundin lækn­ing. Með lyfja­gjöf, almennu hrein­læti og betri loft­ræst­ingu var berklum nán­ast eytt á Vest­ur­löndum. Einkenni berkla eru mik­ill hósti með blóði, sótt­hiti, sviti og þyngd­ar­tap. Berklar eru enn mjög útbreiddir í þró­un­ar­löndum og áætlað er að um einn þriðji hluti mann­kyns hafi bakt­er­í­una í sér í dag. Helstu vanda­málin eru vax­andi ónæmi bakt­er­í­unnar fyrir lyfjum og svo þeirri skömm og útskúfun sem sjúk­lingar verða fyrir sem veldur því að smit­aðir reyna frekar að fela sjúk­dóm­inn.

[caption id="attachment_11580" align="alignnone" width="400"] Víf­ils­staðir voru berkla­spít­ali um ára­tuga­skeið.[/caption]

8. Holdsveiki (Mycobacterium leprae)


Holds­veiki er bakt­er­íu­sýk­ing sem ræðst á taugar í útlimum, and­liti og fleiri stöðum. Smitaðir geta misst til­finn­ingu, lam­ast, afmynd­ast og jafn­vel misst útlimi, nef, eyru og svo fram­vegis. Stundum er því talað um lima­fallas­sýki, en smit­aðir geta dáið af ein­kennum sínum. Holds­veiki varð að far­aldri í Evrópu á mið­öldum og var sér­stak­lega slæm hér á Íslandi. Hræðslan var mikil og var holds­veikum safnað saman á sér­staka „spít­ala“ eða „nýlendur“ þar sem stundað var nokk­urs konar klaust­ur­líf. Sagt var að holds­veikir væru að gang­ast undir hreins­un­ar­eld á jörð. Holds­veiki hefur nán­ast verið útrýmt á Vest­ur­löndum en hún er ennþá land­lægur sjúk­dómur í Indlandi, auk nokk­urra ann­arra landa. Í dag er hægt að lækna holds­veiki með lyfja­gjöf en skað­inn sem hún veldur er var­an­legur.

7. Lömunarveiki (poliomyelitis)


Löm­un­ar­veiki er veiru­sýk­ing sem hefur verið til í árþús­undir. Flestir sem smit­ast sýna engin ein­kenni, sumir fá tíma­bundna vöðva­lömun, sumir var­an­lega og sumir deyja. Fólk getur endað í hjóla­stól eða afmynd­ast á útlimum. Sjúk­dóm­ur­inn er algengastur hjá börnum en alvar­legri og ban­vænni hjá full­orðnum. Um alda­mótin 1900 juk­ust til­felli löm­un­ar­veiki umtals­vert, sér­stak­lega á Vest­ur­löndum. Talað var um eig­in­legan far­aldur sem stig­magn­að­ist þangað til um miðja öld­ina þegar bólu­efni var uppgvötvað af Jonas Salk. Stefna Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO) er að upp­ræta sjúk­dóm­inn árið 2018 en hann er nú þegar nánst horf­inn á Vest­ur­löndum. Löm­un­ar­veiki hafði mikil áhrif á sam­fé­lag fatl­aðra. Þeir sem lifðu far­ald­ur­inn af beittu sér fyrir auknum rétt­indum fatl­aðs fólks, end­ur­hæf­ingu, sam­göngum og fleira.

[caption id="attachment_11581" align="alignnone" width="640"] Svokölluð járnlungu voru notuð til að vinna gegn far­aldr­inum á sjötta ára­tugnum.[/caption]

6. Mislingar (Morbilli)


Misl­ingar eru veiru­sýk­ing sem herjar mest á börn. Einkenni misl­inga eru yfir­leitt sótt­hiti, höf­uð­verkur, lyst­ar­leysi, hósti og loks bólur eða dílar á öllum lík­am­anum. Misl­ingar eru bráðsmit­andi en flestir lifa þá af. Fólk getur fallið í dá og lát­ist eða hlotið heila­skemmdir. Misl­inga­far­aldrar hafa margoft blossað upp í sög­unni og drepið millj­ónir. Verstu far­ald­arnir voru í Ameríku eftir komu Spán­verja þangað á 15. og 16. öld því að Indjánar höfðu ekk­ert upp­safnað mótefni eins og Evr­ópu­menn. Bóluefni var uppgvötvað á sjö­unda ára­tugnum og misl­ingar hafa síðan verið á miklu und­an­haldi en far­aldrar koma ennþá upp ann­ars lagið, sér­stak­lega í Afríku.

[caption id="attachment_11582" align="alignnone" width="639"] Azteka teikn­ing frá 16. öld.[/caption]

5. Kólera (Vibrio cholerae)


Kólera var stað­bundin sjúk­dómur í Indlandi um aldir. Sjúk­dóm­ur­inn er garna­sýk­ing sem ein­kenn­ist af nið­ur­gangi og upp­köstum, loks ofþornun, krömpum og dauða. Árið 1817 hófst fyrsti kól­eru­far­ald­ur­inn og dreifð­ist sjúk­dóm­ur­inn langt út fyrir land­steina Indlands. Sex heims­far­aldrar af kól­eru hafa fylgt í kjöl­farið og millj­ónir legið í valnum. Með betri gæðum neyslu­vatns og auk­ins hrein­lætis hefur tek­ist að vinna bug á pest­inni að mestu leyti. Hún dúkkar þó alltaf upp ann­ars lagið, sér­stak­lega á átaka-eða ham­fara­svæðum þar sem aðgangur að hreinu vatni er lít­ill. Seinast kom upp kól­eru­far­aldur í Haítí eftir jarð­skjálft­ann mikla þar árið 2010.

4. Alnæmi (HIV/AIDS)


Alnæmi er sjúk­dómur sem orsakast af HIV veirunni. Veiran kom upp­runa­lega frá öpum í Afríku (SIV) og þróð­að­ist yfir í HIV um miðja sein­ustu öld. Sjúk­dóm­ur­inn lýsir sér í nið­ur­broti ónæm­is­kerf­is­ins, sótt­hita, eitla­bólgu, húðsárum, þyngd­ar­tapi og fleira. Alnæm­is­far­aldur braust út upp úr 1980 á Vest­ur­löndum. Þá var sjúk­dóm­ur­inn mest áber­andi meðal sam­kyn­hneigðra karl­manna og sprautu­fíkla. Sjúk­dóm­ur­inn stig­magn­að­ist ár frá ári og meðal þeirra sem lét­ust af völdum hans voru Freddie Mercury, Rock Hudson og Liberace. Gríð­ar­legur ótti greip um sig á þessum tíma. Á tíunda ára­tugnum náð­ist að halda sjúk­dómnum niðri með lyfjum en þau eru dýr. Alnæmi er ennþá stórt vanda­mál í Afríku þar sem dýr lyf eru ekki í boði fyrir almenn­ing. Talið er að um 15 til 25% íbúa í sunn­an­verðri Afríku séu smituð af HIV í dag.

3. Bólusótt (Variola)


Bólusótt var sigruð með bólu­efnum árið 1979 eftir að hafa drepið hund­ruðir millj­óna fólks um árþús­unda skeið. Það var einn af stærstu sigrum lækna­vís­ind­anna frá upp­hafi. Veiran olli því að lík­ami þol­and­ans steypt­ist út í litlum bólum og oft fylgdu blæð­ingar, bæði inn og útvortis með. Önnur ein­kenni á borð við lungna­bólgu gátu einnig fylgt. Sjúk­dóm­ur­inn gat verið mis­al­var­legur en að með­al­tali lét­ust um 30% þolenda, yfir­leitt á um tveimur vikum eftir smit. Börn, þá sér­stak­lega nýfædd börn, lentu sér­stak­lega illa í sjúk­dómnum. Þeir sem lifðu af fengu gjarnan ör eftir bólurnar eða urðu jafn­vel blindir. Skæðir far­aldrar komu oft upp í sög­unni, til dæmis í Ameríku eftir komu Spán­verja á 15. öld og svo í Evrópu á 18. öld. Fjöldinn allur af stór­mennum sög­unnar fengu bólu­sótt og má þar nefna Ramses V faraó, Elísa­betu I, George Washington og Jósef Stalín.

2. Svarti dauði (Yersina Pestis)


Frægust allra plága er svarti dauði. Plágan er bakt­er­íu­sýk­ing, upp­runin í asískum nag­dýrum og hefur reyndar margoft komið upp og er í raun ennþá til í dag. Mesti far­ald­ur­inn kom upp um miðja 14. öld. Í Evrópu. Hann byrj­aði í hafn­ar­borgum Ítalíu en breidd­ist hratt út og þriðj­ungur Evr­ópu­manna lá í valnum á aðeins örfáum árum. Það tók um 150 ár fyrir mann­fjöld­ann að ná sér á strik. Smitaðir fengu kýli í nára, hand­ar­krika og háls, mik­inn hita og upp­köst með blóði. Fólk dó aðeins nokkrum dögum eftir smit. Fólk taldi guð vera að refsa sér og alls kyns ofsóknir hófust, sér­stak­lega gegn gyð­ingum. Svarti dauði kom hingað til lands mun seinna, árið 1402, en hafði sömu skelfi­legu afleið­ingar. Þó að Svarti dauði sé frægastur fyrir að leggja Evrópu að fótum sér má ekki gleyma því að Asíulönd eins og Kína og Indland fóru einnig mjög illa út úr sjúk­dómnum.

1. Spænska veikin (H1N1 Influenza)


Flensan kemur á hverju ári og drepur hund­ruðir þús­unda eða millj­ónir um allan heim. Sum árin er hún verri en önnur en aldrei hefur hún orðið jafn slæm og árið 1918, eftir fyrri heim­styrj­öld­ina. Mikið var um her­flutn­inga og rót í sam­fé­lag­inu. Um 500 millj­ónir manna sýkt­ust og á bil­inu 60-100 millj­ónir lét­ust (sem var á bil­inu 3-5% af íbúum jarðar). Helstu ein­kenni veik­innar voru inn­vortis blæð­ingar, aðal­lega í melt­ing­ar­færum og önd­un­ar­færum, og lungna­bólga sem leiddi sjúk­linga til dauða á fáum dögum. Ólíkt hefð­bund­inni inflú­ensu lagð­ist þetta afbrigði sér­stak­lega á ungt og hraust fólk. Hér á Íslandi dóu um 500 manns af völdum spænsku veik­innar. Þessi veiki á ekki upp­runa sinn á Spáni, þrátt fyrir nafnið. Ekki er vitað hvaðan hún kom er grunur leikur á að hún hafi annað hvort komið frá Asíu eða Banda­ríkj­unum.

[caption id="attachment_11584" align="alignnone" width="400"] Spænska veikin drap fleiri en fyrri heim­styrj­öldin.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár