Læknar ræða viðbrögð við Ebólu við Alþingi

Sótt­varn­ar­læknir og yfir­læknir sýk­inga­varna komu fyrir fund vel­ferð­ar­nefndar Alþingis í gær og ræddu um við­brögð við Ebólu veirunni og hugs­an­legum afleiðgum þess ef hann berst hingað til lands. Samkvæmt því sem nefndin var upp­lýst um hefur þegar verið útbúin áætlun sem unnið er eftir, en hluti af henni er að 25 til 30 starfs­menn muni verða til taks um leið og merki sjást um að Ebóla sé að teygja sig hingað. Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, for­maður vel­ferð­ar­nefndar, segir í við­tali við RÚV að í gildi sé áætlun um sam­stillt við­brögð Norð­ur­land­anna.

Ebóla er bráðsmit­andi blæð­ing­ar­sótt en hún er nefnd eftir Ebólafljót­inu í Austur-Kongó og var fyrst greind af Peter Piot, belgískum vís­inda­manni, árið 1976. Hann hefur í við­tölum sagt að und­an­förnu að útbreiðsla Ebólu um hinn vest­ræna heim gæti leitt til hörm­unga, ef ekki verður brugð­ist við af festu.

Mikill við­bún­aður er nú í Evrópu og Banda­ríkj­unum vegna hugs­an­legrar meiri­háttar útbreiðslu Ebólu, einkum frá Afríku, þar sem hún hefur verið skæð­ust, einkum Gíneu, Síerra Leóne, Nígeríu og Líberíu. Fyrsti mað­ur­inn sem smit­ast af Ebólu í Banda­ríkj­unum, Thomas Eric Duncan, lést á sjúkra­húsi í Dallas í gær. Heil­brigð­is­eft­ir­lit Banda­ríkj­anna í sam­vinnu við rík­is­stjórn­ina vinnur nú að nýrri við­bragðs­á­ætlun þar sem mark­miðið er að stöðva útbreiðslu veirunnar skæðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár