Fyrsta dauðsfallið af völdum ebólu í sex vikur skráð í Líberíu

Stjórn­völd í Líberíu til­kynntu í dag að ebólu­veiran hafi dregið mann til dauða. Enginn hefur lát­ist af völdum sjúk­dóms­ins í meira en sex vikur í Líberíu. Frá þeessu greinir AFP-frétta­veitan.

„Nýtt ebólu­til­vik hefur verið skráð í Margiby-sýslu. Mann­eskja er látin sem hafði verið greind með veiruna áður en hún lést,“ sagði Tolbert Nyensuah, stað­geng­ill heil­brigð­is­ráð­herra lands­ins. Þegar hafa allir þeir sem kunna að hafa verið í návígi við hinn látna verið settir í ein­angrun til að hefta aðra útbreiðslu veirunnar.

Enn er barist við ebólu í nágrana­löndum Líberíu, Gíneu og Síerra Leóne, en Margiby-sýsla er mun nær höf­uð­borg­inni Monróvíu en landa­mær­unum í norðri og vestri.

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­inn (WHO) lýsti Líberíu lausa við ebólu­veiruna þann 9. maí síð­ast­lið­inn eftir 42 daga far­aldur sem dró ríf­lega 4.800 manns til dauða. Það er tvö­faldur sá tími sem það tekur vírus­inn að sýkja ein­stak­ling. WHO telur þetta því vera nokkuð mik­il­vægan atburð í bar­átt­unni við sjúk­dóm­inn.

Stærsti ebólufaraldurinn


Far­ald­ur­inn sem enn geisar í Vestur-Afríku er löngu orð­inn skæð­asti ebólu­far­aldur sem skráður hefur verið. Fyrir viku síðan gaf WHO síð­ast út opin­berar tölur og höfðu þá 11.233 lát­ist af völdum ebólu síðan í des­em­ber 2013 og 27.515 til­vik verið skráð.

Hingað til hefur tek­ist að tak­marka útbreiðslu far­ald­urs­ins við löndin þrjú, Líberíu, Gíneu og Síerra Leóne. Þó hafa komið upp til­vik í nágranna­lönd­unum Nígeríu, Malí og Senegal. Líbería hefur þurft að þola hlut­falls­lega flest dauðs­föll eða 4.807. Í Síerra Leóne hafa verið skráð 3.931 dauðs­fall og í Gíneu 2.480. Erlendir heil­brigð­is­starfs­menn hafa svo smit­ast og verið sendir heim til með­höndl­unar. Á kort­inu hér að neðan má sjá útbreiðslu og umfang sjúk­dóms­ins eftir löndum.

Ebóla­vírus­inn hefur gert vart við sig reglu­lega síðan 1976 þegar 280 manns lét­ust í Saír, þar sem nú heitir Lýð­veldið Kongó, í Mið-Afríku. Stærstu far­aldrar hafa allir geisað í Afríku en minni útbreiðslur hefur verið ann­ars staðar í heim­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ebóla

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár