Dregur fyrir sólu í Úganda vegna ebólu

Er stjórn­völd í Úganda gripu til ferða­tak­mark­ana til og frá svæðum þar sem til­felli ebólu höfðu greinst var það um seinan. Veiran var komin til höf­uð­borg­ar­innar. Viðbrögð stjórn­valda í land­inu fagra umhverfis Vikt­or­íu­vatn og Níl eru harð­lega gagn­rýnd.

Stór hluti Úgandabúa aflar sér tekna frá degi til dags með sölu á landbúnaðarvörum og öðrum varningi.
Stór hluti Úganda­búa aflar sér tekna frá degi til dags með sölu á land­bún­að­ar­vörum og öðrum varn­ingi. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

Að minnsta kosti sex börn hafa greinst með ebólu í Kampala, höf­uð­borg Úganda. Átta full­orðnir hafa greinst í borg­inni. Fleiri sýna ein­kenni og grein­ingar er beðið. 26. októ­ber höfðu 115 til­felli ebólu verið stað­fest í land­inu og 32 þeirra endað með dauða. Ellefu heil­brigð­is­starfs­menn höfðu þá greinst og fjórir þeirra lát­ist úr sjúk­dómnum.

[adspot]

Þetta eru slæmar fréttir fyrir millj­ón­irnar sem búa í Austur-Afr­íku­rík­inu Úganda við mið­baug. Íbúarnir og efna­hag­ur­inn var við það að rétta úr kútnum eftir mjög strangar ferða­tak­mark­anir og fjölda ann­arra aðgerða í kór­ónu­far­aldr­inum. Í landi þar sem flestir afla sér tekna frá degi til dags við að rækta mat­væli og selja varn­ing sinn voru tak­mark­anir vegna far­ald­urs­ins veru­lega íþyngj­andi. Fátækt jókst og börn flosn­uðu upp úr námi í stórum stíl. Ein stærsta atvinnu­grein lands­ins, ferða­þjón­ustan, var þurrkuð út á einu bretti.

Og loks þegar allt var að fara í samt horf þá birt­ist hún: Veiran sem veldur ebólu. Sjúk­dómnum sem hefur slæmt orð á sér enda getur hann verið ban­vænn. Hann upp­götv­að­ist fyrst árið 1976 í nágranna­ríki Úganda. Það hét þá Zaire en heitir í dag Austur-Kongó. Síðan þá hefur veiran vonda skotið upp koll­inum hist og her í Afríku – í ríkjum þar sem heil­brigð­is­kerfið er almennt veikt, fátækt útbreidd, hreint vatn á fæstra færi og allar hömlur sem settar eru á athafnir fólks bíta fast­ast þá verst settu.

Þetta er í fimmta sinn sem ebóla breið­ist út í Úganda. Versti far­ald­ur­inn var árið 2000. Þá lét­ust yfir 200 manns.

Ríki í Afríku hafa mörg hver orðið góða þekk­ingu og reynslu af því að fást við ebólu. Að grípa til aðgerða sem virka hratt og vel. En stjórn­völd í Úganda voru sein til og aðgerð­irnar fálm­kenndar.

Far­ald­ur­inn hófst í lok sept­em­ber er nokkur til­felli greindust í mið­hluta lands­ins. Börnin sex sem nú hafa greinst í Kampala eru talin hafa smit­ast af karl­manni sem hafði farið til þessa svæðis og komið svo aftur til borg­ar­innar þar sem hann lést skömmu síðar, sýktur af ebólu. Í síð­ustu viku hafði rík­is­stjórn Yoweri Museveni for­seta þver­tekið fyrir það að ebóla væri komin til borg­ar­innar. „Okkur tókst að greina þetta hópsmit vegna umfangs­mik­illar smitrakn­ingar ráðu­neyt­is­ins,“ sagði Jane Ruth Aceng, heil­brigð­is­ráð­herra, sér og stjórn­inni til varnar er sann­leik­ur­inn kom í ljós.

Vantraust grafið enn frekar um sig

Sér­fræð­ingar í heil­brigð­is­málum hafa hins vegar gagn­rýnt stjórn­völd fyrir aðgerða­leysi. Útfærsla aðgerða hafi verið veik­byggð og sömu­leiðis kenna þeir stjórn­völdum um aukið van­traust fólks á yfir­völd almennt. Það hafi orðið til þess að fólk fór ekki eftir leið­bein­ingum og huns­aði var­úð­ar­orð. Ástæðan fyrir van­traustinu á sér m.a. rætur í aðgerðum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Nær hvergi í heim­inum var ströngum tak­mörk­unum haldið jafn lengi til streitu og í Úganda. Skólar voru lok­aðir í tæp tvö ár. Útgöngu­bann var algjört á tíma­bili og allt þar til í byrjun árs­ins mátti ekki vera á ferli eftir kl. 19 á kvöldin.

En þetta er líka talin skýr­ingin á því að stjórn­völd voru treg til að grípa til harðra aðgerða um leið og fyrstu til­felli ebólu greindust. Fyrsta til­fellið var stað­fest 20. sept­em­ber í Mubende-hér­aði í um 150 kíló­metra fjar­lægð frá Kampala. Það var hins vegar ekki fyrr en um miðjan októ­ber að Museveni for­seti setti á ferða­bann á því svæði og fyr­ir­skip­aði að Kampala yrði sett á óvissu­stig og að sér­stak­lega ætti að gæta að smit­vörnum og fleiri atriðum í borg­inni til að verj­ast stórum far­aldri.

Um miðja síð­ustu viku höfðu til­felli greinst í sjö hér­uðum, þar á meðal í Kampala.

[adspot]

En eru ferða­bönn og útgöngu­bönn rétta aðferðin?

Far­alds­fræð­ing­ur­inn Samuel Etajak, sem starfar við Makarere-háskóla í Úganda, segir við Al Jazeera að rík­is­stjórnin hafi átt í erf­ið­leikum með að hefta útbreiðsl­una þar sem ekki hafi verið farið í ítar­legra smitrakn­ingu þegar í stað. Þá hafi ekki verið við­haft nægj­an­legt eft­ir­lit með fólki sem átti í sam­skiptum við smit­aða. En Etajak vill ekki skella skuld­inni ein­göngu á rík­is­stjórn Úganda. Hann segir að til að ná góðum tökum á útbreiðslu þurfi að vera til staðar ákveðin verk­færi; lyf, bílar til flutn­inga og fleira, svo að skipu­lagn­ing gangi upp og aðgerðir skili árangri. Slíkt sé ein­fald­lega ekki alls staðar til­tækt í Úganda.

Stjórn­ar­and­staðan, sem er veik í land­inu enda haldið niðri af vald­höfum, hefur einnig gagn­rýnt stjórn­völd og segir þau hafa dregið lapp­irnar við að senda neyð­ar­að­stoð til hér­að­anna þar sem fyrstu til­fellin greindust. Grein­ing­ar­tól og tæki, svo sem til smitrakn­ingar, hafi einnig verið í skötu­líki. Fyrr­ver­andi leið­togi FDC, flokks sem kennir sig við lýð­ræð­isum­bætur, segir við úganska dag­blaðið New Vision að þegar fyrstu sýk­ing­arnar voru greindar hafi veiran þegar verið farin að breið­ast út. Yfirvöld hafi sofið á verð­inum gagn­vart þess­ari heilsu­far­sógn.

Sá er alls ekki á því að útgöngu­bann for­set­ans sé til bóta. Það rústi efna­hagnum á örskots­stund. Hann bendir á að boda-boda, skell­inöðr­urnar sem flestir Úganda­búar nota til að ferð­ast um, megi ekki aka til og frá mið­hér­uð­unum. Þetta finnst honum „fárán­legt“ þar sem sjúkra­bílar séu alltof fáir og fólk noti boda-boda til að sækja sér lækn­is­að­stoð. Smitrakn­ing og ein­angrun séu miklu öfl­ugri tæki en tak­mark­anir á ferða­lögum allra.

Bóluefni handan við hornið?

Á sunnu­dag­inn ávarp­aði heil­brigð­is­ráð­herr­ann Aceng þjóð­ina og bað alla að vera vel á verði. Til­kynnti hún að héðan í frá þyrftu þeir sem hefðu verið í nánum sam­skiptum við sýkta að fara í 21 dags ein­angrun. „Ég skora á alla Úganda­búa að taka mark á þessu og reyna að skilja af hverju það þarf að grípa til þessa. Ég hvet þá alla til að fylgja þessu svo að við getum náð tökum á far­aldr­inum sem fyrst og snúið aftur til venju­legs lífs.“

Ekkert bólu­efni er til við þessu til­tekna afbrigði ebólu. Hins vegar eru nokkur bólu­efni langt komin í þróun og að mati Alþjóða heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar (WHO) verður mögu­lega hægt að nota þau bráð­lega í klínískum rann­sóknum.

Sér­fræð­ingar WHO virð­ast bjart­sýnir á að yfir­völdum í Úganda tak­ist að hemja veiruna. Þeir sögðu í lok októ­ber að til nauð­syn­legra aðgerða hefði verið gripið, að heil­brigð­is­yf­ir­völd í nágranna­ríkj­unum, m.a. Rúanda, Búrúndi og Kenía, væru einnig á tánum. Hins vegar bendir stofn­unin á þá stað­reynd að heil­brigð­is­kerfið í Úganda sé veikt og að útbreiðsla ebólu hafi þegar valdið gríð­ar­legu álagi á kerfið. Sér­fræð­ingar stofn­un­ar­innar vara við því að ferða- og við­skipta­tak­mörk verði sett á Úganda vegna far­ald­urs­ins, unnið sé að því hörðum höndum að ná utan um smit með þekktum ráðum á borð við smitrakn­ingu og ein­angrun. Enn sem komið er virð­ist slíkt duga.

Næstu dagar og vikur munu leiða í ljós hvort yfir­völdum tak­ist ætl­un­ar­verk sitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ebóla

ErlentEbóla

Fyrsta dauðs­fallið af völdum ebólu í sex vikur skráð í Líberíu

Stjórn­völd í Líberíu til­kynntu í dag að ebólu­veiran hafi dregið mann til dauða. Enginn hefur lát­ist af völdum sjúk­dóms­ins í meira en sex vikur í Líberíu. Frá þeessu greinir AFP-frétta­veitan. „Nýtt ebólu­til­vik hefur verið skráð í Margiby-sýslu. Mann­eskja er látin sem hafði verið greind með veiruna áður en hún lést,“ sagði Tolbert Nyensuah, stað­geng­ill heil­brigð­is­ráð­herra lands­ins. Þegar hafa allir þeir...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár